25.11.1971
Sameinað þing: 17. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1107 í D-deild Alþingistíðinda. (4754)

75. mál, Vestfjarðaáætlun

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Ég hef nú ekki hugsað mér að halda framboðsfundi Vestfjarðakjördæmis hér undir þessari fsp. Ég fékk nóg af að hlusta á framboðsfund í sambandi við Norðurlandsáætlun fyrir nokkrum dögum hér í hv. Alþ., en þó er maður orðinn nokkuð þreyttur á að heyra þennan söng, sem hv. 1. þm. Vestf. söng hér áðan, að hann hefði ekki fengið að sjá samgönguáætlun Vestfirðinga. Þessi söngur er búinn að vera um alla Vestfirði frá því að áætlunin hófst, en sannleikur málsins er sá, að það hefur verið hægt að s á þessa samgönguáætlun. Mér var aldrei send hún. Ég gekk í þá stofnun, sem endanlega gekk frá þessari áætlun, og bað um að fá eintak af henni afhent. Ég fékk það umyrðalaust án þess að hafa neitt bréf eða meðmæli upp á vasann að fá þetta afgreitt. Ég hygg, að hv. þm. hafi getað sótt þetta plagg einnig. Að minnsta kosti hefði hann átt að geta sótt það eftir að núv. ríkisstj. var mynduð, en í októberlok bað hann allra náðarsamlegast hæstv. forsrh. að útvega sér þetta plagg eftir allt saman. Sannleikur málsins er sá, að sumir menn voru svo blindaðir gegn Vestfjarðaáætlun á sínum tíma, og þar með þessi hv. þm., að hann neitaði algjörlega staðreyndum, að það væri unnið að Vestfjarðaáætlun, og hann neitaði að líta á framkvæmdir lengi vel. Ég fagna því, að nú hefur hann vitkazt svolítið eða opnazt svolítið, því að nú fagnar hann ýmsum áföngum í sambandi við Vestfjarðaáætlun. Mér finnst ánægjulegt til þess að vita, að það séu batamerki á þessum hv. þm., þó að batinn sé mjög hægur.