25.11.1971
Sameinað þing: 17. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1111 í D-deild Alþingistíðinda. (4760)
909. mál, bygging héraðsskóla
Fyrirspyrjandi (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Ég þakka svör hæstv. menntmrh. Ég bjóst nú varla við að fá tæmandi upplýsingar um framlög til hinna einstöku héraðsskóla allmörg ár aftur í tímann. Hins vegar hef ég framlög til þessara skóla frá 1963–1971, en þegar ráðh. nefnir upphæðir til stofnkostnaðar skóla, þá auðvitað er ekki hægt að taka þar tiltekið árabil. Skólarnir standa á hverjum tíma misjafnlega hvað snertir framkvæmdir heima fyrir, og ég hygg, að það sé ekki neitt ágreiningsefni þeirra manna, sem þekkja til þessara mála, að skólarnir að Núpi og Reykjanesi voru mjög skammt á veg komnir í uppbyggingu, þegar lögunum var breytt á þann veg, að ríkissjóður kostaði að öllu leyti héraðsskólana. Fleiri héraðsskólar komu þar einnig til greina, enda hefur engin heildaráætlun legið fyrir. Það hafa legið fyrir beiðnir á hverjum tíma, á hverju ári frá hinum einstöku héraðsskólum, sem embættismennirnir hafa lagt fyrir fjvn. og hún hefur svo fjallað um og tekið til greina þær beiðnir, sem hafa verið mest aðkallandi hverju sinni, og þær beiðnir, sem voru mest aðkallandi að dómi fjvn. að fara út í, voru beiðnir þessara þriggja héraðsskóla, sem ég nefndi áðan og voru tekin byrjunarframlög til, Reykholtsskóla, Reykjanesskóla og Reykja í Hrútafirði. Hins vegar hefur það verið áberandi, að héraðsskólinn að Núpi í Dýrafirði hefur verið með tiltölulega hæst framlag á undanförnum árum, en þeim framkvæmdum er nú lokið að verulegu leyti með fjárveitingu þessa árs að undantekinni tiltölulega smárri framkvæmd, sem er í áætlun ársins 1972.
En það, sem mér finnst óeðlilegt að mörgu leyti, er, að ríkisstj. tekur ákvörðun um það að verja árlega ákveðinni upphæð til eins ákveðins skóla. Hvers vegna tekur ríkisstj. sér þá ekki fyrir hendur að ákveða öll stofnfjárframlög til allra skólabygginga á landinu? Hvað er þá orðið starf fjvn. og fjárveitingavaldsins? Er núv. ríkisstj. með þessu að taka ákvörðunarvaldið úr höndum fjárveitingavaldsins hvað snertir einhverjar ákveðnar stofnanir? Þetta hefur ekki þekkzt fyrr, og það er þetta, sem mér finnst athugavert. Það má enginn skilja orð mín á þann veg, að ég vilji á nokkurn hátt minnka eða gera lítið úr hlutdeild þeirrar ágætu menntastofnunar, sem Reykholtsskóli er. Það er aðeins þetta, að þessi ákvörðun hefur verið í höndum fjvn., hún hefur verið í höndum Alþ., en mér finnst, að með þessari ákvörðun sé ríkisstj. eða ríkisvaldið að hrifsa til sín æ meira, en ég verð nú að segja það, að hvort sem ég hef talað við stjórnarandstæðinga eða stjórnarþm. bæði nú og áður, þá hefur það verið mjög ákveðinn vilji alþm. almennt að færa ekki meira vald úr höndum Alþ. til framkvæmdavaldsins, heldur halda í það ákvörðunarvald, sem Alþ. hefur. Ég er einn úr hópi þeirra þm., sem vil halda í það vald, hvort sem ég styð ríkisstj. eða ekki. Og það er þetta, sem ég legg höfuðáherzlu á og vil beina til hæstv. ríkisstj. að fara ekki inn á þessar brautir, því að ég held alveg örugglega, að það sé ekki þingmeirihluti fyrir því að breyta hér um frekar en orðið hefur á undanförnum árum.