30.11.1971
Sameinað þing: 18. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1116 í D-deild Alþingistíðinda. (4772)
911. mál, æskulýðsmál
Fyrirspyrjandi (Ellert B. Schram):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fsp. til menntmrh. á þskj. 83, svo hljóðandi:
Er 100 þús. kr. fjárveiting í fjárlagafrv. ríkisstj. til æskulýðsráðs ríkisins í samræmi við óskir og hlutverk æskulýðsráðs?
Með lögum nr. 24 frá 1970 var samþ. frv., sem lengi hafði legið hér fyrir þinginu og varðaði æskulýðsmál. Mál þetta hafði nokkuð dregizt, einkum vegna vissrar tortryggni, sem gætti í röðum æskulýðshreyfingarinnar þess efnis, að þetta mál væri þess eðlis, að þetta ætti að draga úr hinni frjálsu æskulýðshreyfingu og sníða henni þannig stakk, að hún heyrði nær eingöngu undir hið opinbera. Hér var um nokkurn misskilning að ræða, sem í ljós kom, að var að mestu ástæðulaus, og með lögum þessum eru flestir sammála um, að samþ. hafi verið mjög merk ákvæði, sem eiga að stuðla að öflugra æskulýðsstarfi í þessu landi. Það var mat manna, að hér hefðu verið mörkuð tímamót, og því var vel fagnað, ekki sízt meðal þeirra, sem þá sátu í stjórnarandstöðu, og ég minnist þess, að einn hv. þm. notaði þau orð um þetta frv., að það gæti jafnframt orðið til þess að koma á sáttum milli ungra og gamalla Íslendinga í þjóðfélaginu, svo að mikið var nú hlutverk þessa máls.
Samkv. lögunum er gert ráð fyrir því, að æskulýðsráð beiti sér fyrir ýmsu ráðstefnuhaldi á vegum æskulýðssamtaka og æskulýðsleiðtoga, styðji félags- og tómstundastarfsemi, efni til námskeiða, þjálfi leiðtoga, komi á sumarbúðum, stofni til útivistar og efni til ýmissa annarra nýjunga og tilrauna á þessum vettvangi. Það kom því mjög á óvart, þegar í ljós kom í nýútgefnu fjárlagafrv., að til æskulýðsráðs ríkisins var einvörðungu veitt 100 þús. kr. og styrkur til hinna ýmsu samtaka, sem í þessum sama lið eru nefnd, hækkaði lítið eitt. Ég hef ástæðu til að halda, að æskulýðsráð ríkisins hafi hugsað sér að fara af stað með myndarlegri hætti en svo að hafa til þess starfs 100 þús. kr. og vildi af þessum sökum leyfa mér að spyrjast fyrir um það, hvort ekki mætti búast við því, að fjárveiting til þessara mála yrði hækkuð allverulega. Ég hef fyrr á þessu þingi beint fsp. til ráðh. og af öðru tilefni vegna mjög þröngra fjárveitinga til þess máls, og sá ráðh. brást mjög myndarlega við og lofaði hækkun á einu augabragði í svari til mín hér á Alþ. Ég vænti þess, að svör menntmrh. verði jafnmyndarleg í þessu máli.