07.12.1971
Sameinað þing: 21. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1150 í D-deild Alþingistíðinda. (4818)
908. mál, stofnlán atvinnuveganna
Jón Árnason:
Herra forseti. Það eru aðeins nokkur orð í framhaldi af þeim umr., sem urðu um þennan dagskrárlið þann 25. nóv. s.l., en þá var það hæstv. viðskrh., sem svaraði fsp., sem þó var samkv. þskj. beint til forsrh. Enda þótt hæstv. sjútvrh. eða viðskrh. sé ekki hér mættur, þá vil ég segja nokkur orð um þetta mál.
Eins og fram kemur í fsp., er fyrst og fremst um það spurt, hvenær þess sé að vænta, að ákveðin atriði í málefnasamningi ríkisstj. muni koma til framkvæmda. Það er um lækkun vaxta af stofnlánum atvinnuveganna og lengingu á lánstíma þeirra, um endurskoðun á reglum um ýmiss konar gjöld, sem nú hvíla á framleiðsluatvinnuvegunum, þar sem stefnt verði að því, að þau verði lækkuð eða felld niður, um, að endurkaupalán Seðlabankans vegna afurðalána verði hækkuð og vextir af þeim lækkaðir. Að lokum um, að vátryggingarmál fiskiskipa verði endurskoðuð.
Öllum þessum fsp. gerði hæstv. ráðh. nokkur skil, en það kom þó ekki skýrt fram, hvenær hugsað væri, að þessi þýðingarmiklu atriði varðandi rekstur sjávarútvegsins mundu koma til framkvæmda. Hann gerði þó grein fyrir því, að lánabreytingar Fiskveiðasjóðs og vaxtalækkanir ættu að koma til framkvæmda um næstu áramót. Ég vil taka það fram, að ég tel, að þessi breyttu lánakjör séu mjög æskileg, og hvað viðkemur Fiskveiðasjóðnum, þá er það augljóst mál, að enda þótt lægri vextir og lengri lánstími eigi aðeins að ná til lána, sem veitt verða frá næstu áramótum, ekki eldri lána, þá hljóta þessar breytingar að hafa í för með sér nokkra tekjuskerðingu fyrir sjóðinn. Ég viðurkenni, að framlag ríkissjóðs, sem er í fjárlögum yfirstandandi árs 35 millj. kr., hefði sannarlega þurft að vera nokkru hærra, enda fengum við fyrrv. stjórnarliðar harða gagnrýni frá þeim flokkum, sem nú mynda ríkisstj., fyrir það, hve framlagið væri lágt. Enginn var harðari í þeirri gagnrýni en einmitt núv. hæstv. sjútvrh. Ég hefði því búizt við því, að þegar fjárlagafrv. fyrir árið 1972 var lagt fram, bæri það með sér hækkaða fjárveitingu til Fiskveiðasjóðs. Þessu er þó ekki fyrir að fara. Í frv. er lagt til, að framlag til Fiskveiðasjóðs verði óbreytt. Þess vegna vildi ég nú beina þeirri fsp. til hæstv. forsrh., þar sem sjútvrh. er hér ekki viðstaddur, hvort þess sé að vænta, að undir afgreiðslu fjárlagafrv. komi till. frá ríkisstj. um verulega aukið framlag til sjóðsins.