08.02.1972
Sameinað þing: 35. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1175 í D-deild Alþingistíðinda. (4879)

88. mál, augnlækningar

Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson):

Herra forseti. Sem svar við fsp. hv. þm. skal þess getið, að alls hafa nú 13 íslenzkir læknar sérfræðiréttindi í augnlækningum, og starfa þeir allir hér á landi. Þrír þeirra eru yfir 70 ára og hafa minnkað við sig störf. Utan Reykjavíkur er nú einn augnlæknir í fullu starfi á Akureyri, Gissur Pétursson, og hefur hann starfsaðstöðu við fjórðungssjúkrahúsið, og hann hefur að jafnaði 3–5 sjúklinga á sjúkrahúsinu. Það er alveg rétt, sem hv. þm. segir, að á Akureyri hefur verið mikill biðtími og erfiðleikaástand þar á sjúkrahúsinu, en nú standa vonir til, að úr þessu rætist nokkuð, því að von er á lækni að sjúkrahúsinu á Akureyri, augnlækni, Lofti Magnússyni, sem að undanförnu hefur verið starfandi í Falun í Svíþjóð. Yrði þá stofnuð augnlækningadeild við fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri með a.m.k. tveimur læknum, og ætti það að geta bætt eitthvað úr því ástandi, sem hv. þm. var að lýsa.

Eins og kunnugt er, hafa um árabil verið farnar augnlækningaferðir á vegum heilbrigðisstjórnarinnar á sumrin. Kristján Sveinsson hefur farið um Vesturland og Vestfirði, Bergsveinn Ólafsson hefur farið um Austfirði, Hörður Þorleifsson hefur farið um Suðurland, aðallega í Vestur-Skaftafellssýslu og til Vestmannaeyja, og Úlfar Þórðarson hefur farið um Norðurland síðan 1967, en áður fór Helgi Skúlason þessar ferðir. Augnlækningaferðum hefur verið hagað þannig, að læknir hefur haft móttöku hjá héraðslækni, venjulega 1–2 daga einu sinni í ferðinni. Úlfar Þórðarson hefur þó farið tvívegis á ýmsa staði norðanlands, en hann fer flugleiðis venjulega um helgar og ekki eingöngu um sumartímann. Eftir augnlækningaferðir stefna augnlæknarnir þeim sjúklingum, sem aðgerðir þurfa, til Reykjavíkur eða Akureyrar til þeirrar meðferðar.

Augnlækningadeild var formlega opnuð á Landakotsspítala í Reykjavík í sept. 1970, og eru þar starfandi fjórir augnlæknar. Hafa þeir aðgang að 12 rúmum og komast allt upp í 20 rúm á sumrin. En þessi aðstaða hefur reynzt of lítil. og þarna eru jafnan langir biðlistar. En starfsaðstaða, föst starfsaðstaða fyrir augnlækna er nú ekki nema í Reykjavík og á Akureyri, og mun tæplega verða á öðrum stöðum að staðaldri í bráð. Hins vegar er unnið að því, að við heilsugæzlustöðvar verði aðstaða til að augnlæknar komi til skoðanaferða eins og aðrir sérfræðingar.

Eins og nú er ástatt, mun landsbyggðinni bezt þjónað með því að fjölga ferðum sérfræðinga út í héruðin og stækka deildir fyrir augnsjúkdóma í Reykjavík og á Akureyri, svo að unnt verði að vinna verkefnin jafnharðan og stytta jafnframt biðtíma til aðgerða.