08.02.1972
Sameinað þing: 35. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1178 í D-deild Alþingistíðinda. (4884)
917. mál, framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli
Fyrirspyrjandi (Stefán Gunnlaugsson):
Herra forseti. Hinn 19. febr. s.l. birtist svo hljóðandi fréttatilkynning frá utanrrn. í dagblöðum:
„Í tilefni af umræðum um flugvelli landsins undanfarið skal eftirfarandi tekið fram:
Um alllangt skeið hafa verið í undirbúningi ýmsar framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli, m.a. lenging þverbrautar og aukinn tækjabúnaður, er lækki blindflugsmörk þar, til að auka nýtingarmöguleika vallarins umfram það, sem nú er. Hönnun og öllu öðru undirbúningsstarfi vegna brautarlagningarinnar var lokið í ágústmánuði 1970, en fé er enn eigi til ráðstöfunar til að hefja framkvæmdir við hana. Að því er varðar tækjabúnað vallarins verða bráðlega hafnar framkvæmdir fyrir um 26.5 millj. kr., er Bandaríkjamenn greiða. Gert er ráð fyrir, að innan skamms verði unnt að skýra frá öðrum framkvæmdum, sem fyrirhugaðar eru.“
Svo mörg eru þau orð. Með öðrum orðum, fyrir tæplega ári síðan var frá því skýrt með sérstakri fréttatilkynningu frá hlutaðeigandi rn., að bráðlega yrðu hafnar framkvæmdir við tækjabúnað á Keflavíkurflugvelli fyrir um 26.5 millj. kr., sem Bandaríkjamenn mundu greiða, og auk þess yrði innan skamms unnt að skýra frá öðrum fyrirhuguðum framkvæmdum á flugvellinum. Hefur þar sjálfsagt fyrst og fremst verið átt við lengingu svokallaðrar þverbrautar á vellinum, sem um skeið hefur verið aðkallandi framkvæmd. Þrátt fyrir að svo langt er um liðið síðan umrædd fréttatilkynning var gefin út, hefur ekkert bólað á framkvæmdum eða efndum á því, sem þar var boðað.
Það ætti að vera óþarfi að fjölyrða um nauðsyn þess að gera stórt átak á Keflavíkurflugvelli til að gera hann þannig úr garði út frá öryggis- og nýtingarsjónarmiðum, að hann geti kallazt öruggur alþjóðaflugvöllur, svo mjög sem um það hefur verið rætt á opinberum vettvangi undanfarið. Fregnir hafa borizt um, að á Bandaríkjaþingi hafi komið fram till. um tæplega 12 millj. dollara fjárframlag á tveimur árum til lengingar áðurnefndrar þverbrautar á Keflavíkurflugvelli. Till. mun enn ekki hafa fengið fullnaðarafgreiðslu.
Hvernig og hvenær ætlar hæstv. ríkisstj. að hefjast handa um framkvæmdir til að koma Keflavíkurflugvelli í það horf, sem nauðsynlegt og aðkallandi er talið, til að hann verði það, sem hann þarf að verða til að geta flokkazt undir það, sem nefnt er öruggur alþjóðaflugvöllur? Þetta er spurning, sem brennur á vörum margra. Í sjónvarpsþætti 1. febr. s.l., þar sem mál þessi komu til umr., sagði hæstv. utanrrh. aðspurður, að fjármagn til flugbrautarlengingar á Keflavíkurflugvelli mundi ekki koma frá Bandaríkjunum. Ég hygg, að flestir hafi skilið ummæli hæstv. ráðh. við þetta tækifæri á þann veg, að búið væri að útvega innlent fjármagn til þessara framkvæmda. Í blaðaviðtölum við hæstv. ráðh. eftir þennan sjónvarpsþátt hefur hann þó sagt, að þetta væri á misskilningi byggt. Orðrétt segir hæstv. ráðh. í Tímanum s.l. sunnudag, með leyfi hæstv. forseta:
„Það er auðvitað alveg ljóst, að flugbrautir á Keflavíkurflugvelli þarf að lengja til þess að auka nýtingarhlutfallið og fá aukna umferð um völlinn. Bandaríkjaþing hefur nú stöðvað fjárveitingar til þessa verks, sem þó var búið að lofa. Af því leiðir, að framkvæmdir verður að fjármagna með öðru móti. Til þess eru að sjálfsögðu ýmsar leiðir, og ég hef nú til athugunar nokkrar þeirra, þ. á m. hugsanlega möguleika á innlendri fjármögnun.“
Þannig hljóðar þessi tilvitnun úr Tímanum. Þarna er sem sagt gefið í skyn, að Bandaríkjamenn hafi svikið gefið loforð. Hvers vegna hefur Bandaríkjaþing nú stöðvað fjárveitingar til lengingar flugbrauta, eftir því sem hæstv. ráðh. segir? Það væri vissulega fróðlegt að fá svar við því.
Það hefur ekki farið fram hjá mönnum, að atvinnuflugmenn hafa talið sig tilneydda til að vekja athygli fjölmiðla sérstaklega á því, að töluvert skortir á, að Keflavíkurflugvöllur standist þær kröfur, sem gera verður til nútímaflugvallar. öryggisbúnaður og tækjaútbúnaður vallarins er ekki fullnægjandi að þeirra áliti. Þá hafa forráðamenn Loftleiða bent á á opinberum vettvangi, hversu mikið það fjárhagstap er, þegar erlendar þotur, sem hyggjast nota Keflavíkurflugvöll, hætta við það vegna brautarskilyrða, sem iðulega kemur fyrir, eins og kunnugt er, en orsakir þess eru oftast fyrst og fremst of stuttar lendingarbrautir. Tölur, sem komið hafa frá Loftleiðum um þetta efni, bera með sér, að hugsanlegt brúttótekjutap í hvert skipti, sem erlend þota, t.d. af gerðinni DC 8 63, hættir við að nota Keflavíkurflugvöll vegna ófullnægjandi lendingarbrauta, geti numið um 500 þús. kr. Sé um flugvélagerðina Boeing 747 að ræða, sem hættir við að nota Keflavíkurflugvöll af áðurgreindum ástæðum, má áætla, að brúttótekjutapið geti numið rúmlega 800 þús. kr. Hér er vissulega um stórar fjárhæðir að ræða. Þá hafa Loftleiðir komið með tölur í fjölmiðlum, sem leiða í ljós, að ef unnt verður með brautarlengingum og öðrum nauðsynlegum framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli að auka umferð um eina lendingu á dag, á 250 manna vél, mætti áætla, að brúttótekjuaukning yrði rúmlega 164 millj. kr. á ári.
Talsverð brögð hafa verið að því, að íslenzkar áætlunarflugvélar gætu ekki lent á Keflavikurflugvelli, vegna þess að flugbrautirnar eru of stuttar. Keflavíkurflugvöllur er sem sagt ekki lengur talinn samkeppnisfær við þá flugvelli, sem fullnægja fyllstu kröfum samtímans um lendingarskilyrði fyrir þær flugvélar, sem nú eru mest í förum á milli landa. Sá álitshnekkir, óþægindi og fjárhagstjón, sem íslenzk flugfélög verða fyrir, þegar flugvélar þeirra verða að yfirfljúga, liggur víssulega í augum uppi. Um það er óþarfi að hafa mörg orð.
Þá skal að lokum minnzt á, að enda þótt ýmsar breytingar hafi verið gerðar á flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli undanfarið og stækkun orðið á húsakynnum, þá varð það ljóst á s.l. sumri, að byggingin er orðin allt of litil til þess að geta sinnt þeirri farþegaumferð, sem þar hefur átt sér stað, svo að vel sé. Mjög aðkallandi er því orðið, að ný flugstöðvarbygging verði reist.
Herra forseti. Ég skal ekki orðlengja þetta meira að svo stöddu. Augljós er knýjandi þörf fyrir tafarlausar aðgerðir, sem gagn er að og leysa þann vanda, sem hér er við að etja. Spurningar minar til hæstv. utanrrh. í framhaldi af því, sem ég hef hér þegar sagt, eru þessar:
1. Hvað tefur fyrirhugaðar framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli, sem boðaðar voru í fréttatilkynningu utanrrn., sem birtist í dagblöðum 19. febr. 1971, til að auka nýtingarmöguleika og öryggi vallarins?
2. Hvenær verður hafizt handa um aðrar aðkallandi framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli, sem nauðsynlegar eru til þess, að Keflavíkurflugvöllur geti talizt öruggur alþjóðaflugvöllur?