08.02.1972
Sameinað þing: 35. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1180 í D-deild Alþingistíðinda. (4885)

917. mál, framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli

Utanrrh. (Einar Ágústsson):

Herra forseti. Ég er hér með örstutt svar við fsp. frá Stefáni Gunnlaugssyni um framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli. 1. liður hljóðar svo:

„Hvað tefur fyrirhugaðar framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli, sem boðaðar voru í fréttatilkynningu utanrrn., sem birtist í dagblöðum 19. febr. 1971, til að auka nýtingarmöguleika og öryggi vallarins?“

Framkvæmdir þær, sem boðaðar voru í umræddri fréttatilkynningu, eru þessar: a) aðflugshallaljós og snertiflatarljós á aðalflugbraut flugvallarins, b) lenging þverbrauta.

Um ljósaútbúnaðinn er þetta að segja: Sökum þess hve afgreiðslufrestur er langur á tækjum þessum, svo og af því að hönnun verksins var ekki lokið fyrr en seint á s.l. hausti, var ekki unnt að hefja framkvæmdir við að koma ljósunum fyrir á síðasta ári. Verður það ekki hægt fyrr en lengra kemur fram á vorið. Þó er gert ráð fyrir, að þessum framkvæmdum verði að fullu lokið á miðju sumri. Eins og áður hefur verið skýrt frá, verður kostnaður við þessar framkvæmdir um 26.5 millj. kr., og greiðir varnarliðið hann.

Í sambandi við lengingu svokallaðrar þverbrautar hefur það verk þegar verið hannað, þar eð öllum tæknilegum undirbúningi er þegar lokið. Þess vegna er ekkert því til fyrirstöðu að hefja það verk í vor, ef nægjanlegt fé verður til ráðstöfunar. Sjálf brautarlengingin og nauðsynlegur öryggisútbúnaður í sambandi við hana kostar mikið fé. Enn hefur ekki verið ákveðið, með hvaða hætti fjár verður aflað til þessarar framkvæmdar, en ríkisstj. mun leggja á það áherzlu, að þessi framkvæmd verði hafin nú í sumar. Ég hef athugað nokkuð möguleika á því að afla lánsfjár til þessa verkefnis, og er ljóst, að þar koma ýmsar leiðir til greina, sem ég tel þó ekki ástæðu til að gera grein fyrir á þessu stigi. Hins vegar mun málið að sjálfsögðu koma til afskipta Alþ. á næstunni, því að auðvitað verður að afla samþykkis fjárveitingavaldsins til þessarar framkvæmdar. Verður eðlilegast að gera það í sambandi við framkvæmdaáætlun yfirstandandi árs.

2. liður fsp. hljóðar svo: „Hvenær verður hafizt handa um aðrar aðkallandi framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli, sem nauðsynlegar eru, til þess að Keflavíkurflugvöllur geti talizt öruggur alþjóðaflugvöllur?“

Til viðbótar því, sem áður segir, eru ráðgerðar eftirtaldar framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli: 1. Aðflugshallaljós á aðrar flugbrautir en aðalbrautina. 2. Aðflugsljós á tvær flugbrautir. 3. Rafeindabúnaður til blindlendinga á eina flugbraut og 4. Tveir radíóvitar. Hönnun þessara verka stendur nú yfir, og er unnið að útboði á þessum tækjabúnaði. Áætlaður kostnaður er 34 millj. kt., og verður hann greiddur úr ríkissjóði.

Um enn aðrar framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli er það að segja, að unnið verður fyrir allt það fé, sem fáanlegt verður hverju sinni. Þeim verkefnum, sem nauðsynlegt verður að sinna á næstu árum, hefur verið raðað eftir því, hversu brýn þau eru álitin. Verða að sjálfsögðu þau verk látin ganga fyrir, sem mikilvægust eru talin hverju sinni. Það er markmiðið að vinna að því, að Keflavíkurflugvöllur verði á komandi árum gerður sem næst óháður veðurfari.

Á sama tíma þarf einnig að gefa því gætur, að farþegaumferð um flugvöllinn hefur aukizt gífurlega á hverju ári í tæpan áratug. Á síðasta ári var farþegatalan rúmlega tvisvar og hálfu sinni hærri en íbúatala Íslands. Engin ástæða er til að álíta annað en að umferð muni halda áfram að aukast verulega á komandi árum. Það gefur því auga leið, að gera þarf ráðstafanir í tæka tíð til þess að geta tekið á móti og veitt nauðsynlega þjónustu þessum aukna fjölda flugfarþega og flugvéla. Er nú unnið að því að rannsaka, hvað gera þurfi á næstu árum í þessum efnum og hvenær.

Við þetta svar rn. hef ég ekki miklu að bæta. Ég minni hv. fyrirspyrjanda á það, að í fréttatilkynningu utanrrn. frá tíð fyrirrennara míns er tekið sérstaklega fram, að fé sé enn eigi til ráðstöfunar til þess að lengja þessar brautir og fyrrv. ríkisstj. hafði ekki gert ráðstafanir til þeirrar fjármagnsútvegunar, sem til þess þarf.

Hv. fyrirspyrjandi minntist enn fremur á till. á Bandaríkjaþingi um 12 millj. dollara, sem enn hefði eigi fengið fullnaðarafgreiðslu. Um þetta er mér nú ekki kunnugt, en hins vegar er mér fullkunnugt um það, að fjárlög yfirstandandi árs í Bandaríkjunum hafa verið afgreidd og þar er sérstaklega fjallað um byggingarframkvæmdir á Íslandi og sérstaklega þann lið, sem ætlaður er til þess að lengja flugbraut á Keflavíkurflugvelli, 5.8 millj. dollara. Og þar segir, að þessi fjárveiting sé tekin með í fjárlögin vegna þeirrar skýrslu, sem nefnd, er kom hér til Íslands í sept. 1970, hafi gefið um hernaðarlegt mikilvægi Íslands. Og svo segir í minni þýðingu:

„Þessi liður var innifalinn á fjárlögum þrátt fyrir augljósar vísbendingar um, að ný ríkisstjórn á Íslandi gæti reynt að fá Bandaríkin til þess að yfirgefa herstöðvar á Íslandi. Þessi liður hefur verið látinn halda sér til þess að veita embættismönnum ráðrúm til samninga við íslenzku ríkisstjórnina.“ Og svo endar umsögnin á því, að nefndin telur sig hafa séð allt of margar yfirgefnar herstöðvar annars staðar í veröldinni til þess að vilja eiga það á hættu, að hér sé lagt fram fjármagn til herstöðva, sem þeir verði síðan að yfirgefa. Þetta hélt ég satt að segja, að áhugamönnum um lengingu flugbrautarinnar á Keflavíkurflugvelli væri ljóst. A.m.k. hafa fregnir af þessu birzt í íslenzkum blöðum, en það er sjálfsagt að rifja það upp, fyrst hér eru inni menn áhugasamir um lengingu flugbrauta, sem ekki vita þetta.

Ég tel, að þessi umsögn og þessi skilmáli í fjárlögum Bandaríkjaþings geri það alveg ljóst, að við getum ekki treyst á það, að fjármagn til flugbrautalengingar á Keflavíkurflugvelli komi frá Bandaríkjamönnum, því að það er háð því skilyrði, að hér verði herstöðvar um ófyrirsjáanlega framtið, eins og segir í þeim fræðum.

Það er alveg rétt, sem hv. þm. sagði, flugbrautarlengingin er nauðsynleg, hana verður að framkvæma. Og ég heyri það á honum a.m.k., sem þekkir þessi mál vafalaust töluvert, að þetta á að verða mjög góð fjárfesting. Þess vegna ber ég engan kvíðboga fyrir því, þó að Íslendingar sjálfir lengi þessa braut, og það munum við gera. Og ég endurtek það, að það verður ekki langt þangað til fjárveitingavaldið, Alþ., verður beðið um heimild til handa ríkisstj. til þess að taka lán til þessarar sérstöku framkvæmdar.

Ég held, að ég hafi ekki meira um þetta að segja að svo stöddu, nema frekara tilefni gefist til. Það er auðvitað alveg rétt, sem hv. þm. sagði, að við þurfum sjálfsagt líka á næstunni að fá nýja flugstöð á Keflavíkurvelli. Það er vafalaust alveg rétt. Það er unnið nokkuð að athugun á því. Þó er það sjálfsagt ekki eins aðkallandi verkefni og sú flugbrautarlenging, sem hér er um að tefla, því að flugstöðin hefur nokkuð verið endurbætt og hún getur dugað. Hún er ekki til muna lakari en maður sér á flugvöllum annars staðar, þó að reyndar komi að því, að hún verði ófullnægjandi. En fyrst og fremst til þess að auka nýtingarhlutfall Keflavikurflugvallar verður þessi flugbraut að koma, og til þess að auka öryggi á flugbrautunum verða þau ljós að koma, sem ég hef hér gert grein fyrir, og ég hef beztu trú á því, að þetta muni koma, ekki sízt þegar þm. stjórnarandstöðunnar eru svo áhugasamir um flugbrautalengingu eins og hér kom fram í síðustu ræðu.