08.02.1972
Sameinað þing: 35. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1184 í D-deild Alþingistíðinda. (4889)
155. mál, fjármagn til Landnáms ríkisins
Fyrirspyrjandi (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. landbrh. á þskj. 292. Fsp. hljóðar svo:
Hefur ríkisstj. í hyggju einhverjar sérstakar ráðstafanir til fjáröflunar, svo að unnt sé að nýta þá heimild, sem fram kemur í 76. gr. laga nr. 45 frá 16. apríl 1971, um stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveitum?
Um leið og þessi fsp. er borin fram er nauðsynlegt að láta fylgja nokkrar skýringar. Þegar stofnlánadeildarlögin voru afgreidd í lok síðasta Alþ., höfðu fjárlög fyrir árið 1971 að sjálfsögðu verið afgreidd fyrir nokkrum mánuðum. Inn í fjárlög ársins 1971 höfðu þess vegna ekki verið teknar fjárhæðir, sem þurfti til þess að mæta auknum útgjöldum Landnáms ríkisins til hinna einstöku þarfa landbúnaðarins, sem ætlað var að styrkja miðað við hin nýju lög. Þetta var öllum hv. þm. ljóst. Vegna þessarar staðreyndar var til þess gripið að fella inn í lögin heimildarákvæði, sem hér er spurt um, í 76. gr., sem hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Heimilt er Landnámi ríkisins að greiða á árinu 1972 framlög samkv. lögum þessum vegna framkvæmda, sem teknar eru út á árinu 1971.“
Með þessu móti var því í rauninni velt til næsta árs, til ársins 1972, að afla fjár til þess að standast þau framlög, sem Landnámi ríkisins var falið að greiða til hinna ýmsu þátta í landbúnaðinum samkv. hinum nýju lögum. Nú hefur sú regla gilt ævinlega hjá Landnámi ríkisins, að framlög þaðan hafa verið greidd á sama ári og verkið er unnið. Þess vegna er ekki unnt að taka þessi framlög af hinu lögboðna framlagi ríkissjóðs til Landnáms ríkisins nú, heldur er þarna um aukafjármagn að ræða, sem verður að koma, til þess að unnt sé að nýta þessa heimild.
Við fjárlagaafgreiðslu nú fyrir jólin í vetur var mjög eftir því leitað, í fyrsta lagi frá Landnámi ríkisins, bæði til fjvn. og til hæstv. landbrh., að taka þessa fjárveitingu upp. Þessu var hafnað, og hv. 6. þm. Sunnl. flutti hér við 3. umr. fjárlaga brtt. við fjárlög, sem fól í sér að leggja þetta fjármagn fram. Þessi brtt. var einnig felld.
Með tilliti til þess, að þessar till. hafa verið felldar, mætti kannske ætla, að þarna væri um þýðingarlítil verkefni að ræða. Mér þykir því rétt að vekja með nokkrum orðum athygli á því, hvað hérna er um að ræða. Það eru í fyrsta lagi verulegar fjárveitingar til grænfóðurræktunar í landinu, það er fjármagn til þess að styðja almenna ræktun, endurræktun kalinna túna og félagsræktun. Allir þessir þættir ræktunar hafa á undanförnum árum verið meðal þess, sem mesta þýðingu hefur verið talið að styðja í landbúnaði okkar þjóðar. Þarna er einnig um að ræða mikla hækkun á framlagi til byggingar íbúðarhúsa í sveitum og framlagi til hyggingar gróðurhúsa, svo að nokkuð sé nefnt. Enn fleiri atriði er þarna um að ræða, sem ekki er tími að þessu sinni til þess að rekja, en má vera, að verði gert síðar.
Í framhaldi af þessu þykir mér eðlilegt, að fram komi nú fsp. til hæstv. ráðh. um það, hvort einhver sérstök ráðstöfun verði gerð til þess að afla þessa fjármagns utan fjárlaga, svo að unnt verði að nýta þessa heimild í lögunum um stofnlánadeild o.fl., en það atriði, hvort tekst að nýta hana, snertir nálega hvern einasta bónda í landinu.