08.02.1972
Sameinað þing: 35. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1185 í D-deild Alþingistíðinda. (4891)
155. mál, fjármagn til Landnáms ríkisins
Fyrirspyrjandi (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Ég vil nú þakka hæstv. ráðh. fyrir þau svör, sem hann hefur hér gefið, svo langt sem þau ná. Hann lýsti því yfir, að þessi heimild yrði notuð. Hann minntist þó engu orði á það, hvernig ætti að afla fjár, til þess að heimildin gæti orðið notuð, og hann ræddi um það, að einstakir þættir í þessum málum, til íbúðarhúsa, yrðu greiddir nú fljótlega, en aðrir þættir málsins biðu fram á árið ótiltekið og það færi í athugun á milli sín og Landnáms ríkisins, hvernig það mætti verða. Ég verð að segja, að mér finnast þessi svör vera nokkuð óákveðin og loðin, svo að ekki sé meira sagt. Það verður þó að ætla, að það eina, sem skýrt kom fram í máli hans, að heimildin verði notuð, muni standa.
Ég lít svo á, að ef ætlunin er að taka fjármagn til þessara hluta af því fé, sem Landnámi ríkisins er ætlað nú á þessu ári til þess að sinna þessum sömu verkefnum eftir lögunum um stofnlánadeild o.fl., þá er það ekki úrlausn að mínu mati. Ég lít einnig svo á, að langeðlilegast hefði verið að taka þessa fjárhæð, sem er um 20 millj. kr. eða rétt rúmlega það, inn í fjárlög ársins 1972, ekki sízt með tilliti til þess, að við afgreiðslu þessara fjárlaga varð meiri hækkun á fjárlögum íslenzka ríkisins en nokkru sinni hefur áður gerzt, eða á einu ári um 5.4 milljarða kr. eða 46%. Slík hækkun fjárlaga hefði átt að gefa tækifæri til þess að koma inn smávægilegum lið eins og þessum til þess að styðja þá þætti, sem hvað brýnast er að styðja í elztu og einni virðulegustu atvinnugrein landsmanna, landbúnaðinum.
Hæstv. ráðh. talaði um það, að lögin frá því í fyrra um Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveitum, fælu ekki í sér neitt fjárveitingavald. Það er rétt. Í þessum lögum er þó sett fram ákvæði um lágmarksfjárveitingu. Því lágmarki var að vísu sinnt, en það var ekki við fjárlagaafgreiðslu, eins og þegar er komið fram, að neinu leyti reynt að rýmka til, hvorki til að mæta hækkunum á verðlagi, sem orðið hafa á milli ára, eða að neinu leyti komið til móts við þær óskir, sem fram komu frá Landnámi ríkisins til þess að geta sinnt þeim verkefnum, sem mest var aðkallandi að sinna varðandi þau verk, sem unnin voru og tekin út á síðasta ári. Þetta vil ég, að komi hér glöggt fram, og það má minna á það í þessu sambandi, að núv. hæstv. landbrh. og hans flokksmenn hafa löngum talið sig helztu málsvara landbúnaðarins. Ég lít svo á, að í sambandi við þessa fjárlagaafgreiðslu hafi það ekki komið fram.