08.02.1972
Sameinað þing: 35. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1189 í D-deild Alþingistíðinda. (4899)

918. mál, binding innlánsfjár í Seðlabankanum

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Spurt er: „1. Er það ætlun ríkisstj. að breyta gildandi reglum um bindingu hluta innlánsfjár lánastofnana í Seðlabankanum og þá hvernig? 2. Hver eru helztu rök ríkisstj. fyrir stefnu hennar í þessu máli?“

Engin ákvörðun hefur enn verið tekin um breytingar á þessum bindingarreglum, og ég get ekki sagt um það á þessu stigi málsins, hvort til breytinga á þeim kann að koma eða ekki. Það fer að sjálfsögðu eftir því, hvernig ástandið verður almennt í efnahagsmálum. Hins vegar hefur ríkisstj. snúið sér til Seðlabankans og farið þess á leit við hann, að hann auki mjög verulega útlán sín út á framleiddar afurðir til útflutnings, en sú ráðstöfun mun jafngilda því, að mjög verulega sé dregið úr bindiskyldunni gagnvart þeim viðskiptabönkum, sem lána út á útflutningsafurðir. En það var, eins og hér kom fram hjá hv. fyrirspyrjanda, einmitt eitt af því, sem bindingin var rökstudd með á sínum tíma, að fyrir þyrfti að liggja fjármagn í Seðlabankanum, til þess að hægt væri að standa með eðlilegum hætti undir endurkaupalánum.

Frekari svör sé ég ekki, að ég geti gefið við þessari spurningu eins og nú standa sakir, get að vísu aðeins bætt því við, að ákveðið er í stefnuyfirlýsingu ríkisstj., að fram skuli fara sérstök endurskoðun á bankalöggjöfinni sem heild. Þetta verkefni kemur að sjálfsögðu inn í þá almennu athugun, sem unnið hefur nokkuð verið að undirbúningi að, þ.e. hvernig með þessi mál skuli fara, þegar þau almennt, þ.e. rekstur bankakerfisins, verða tekin til endurskoðunar.