17.02.1972
Sameinað þing: 39. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1194 í D-deild Alþingistíðinda. (4912)

916. mál, Tækniskóli Íslands

Guðlaugur Gíslason:

Herra forseti. Ég ætla ekki að blanda mér inn í deilur þeirra Norðlendinga og hæstv. menntmrh. um staðsetningu tækniskóla á Akureyri eða hér í Reykjavík, en ég vildi vekja athygli hv. þm. á þeirri stefnubreytingu, sem virðist vera að verða hjá núv. hæstv. menntmrh., sérstaklega í sambandi víð staðsetningu skóla úti á landsbyggðinni. Þessi mál hafa verið rædd hér allmikið á undanförnum árum, hvort ekki væri rétt af Alþ. að taka upp þá stefnu að staðsetja ríkisstofnanir, þar með ríkisskóla, úti í dreifbýlinu í stað þess að staðsetja þá alla hér í Reykjavík. Þetta tókst að nokkru leyti með samþykkt fiskvinnsluskólalaga á síðasta þingi. Það varð þó að verða að samkomulagi til þess að fá málið í gegn og fá það afgreitt hér á þingi, að fyrsti skólinn yrði staðsettur á Suðvesturlandi, það var ekki talað um Reykjavík, heldur Suðvesturland. Þetta var samkomulagsatriði til þess að fá málið afgreitt hér á Alþ. En í þessum lögum voru einnig jafnhliða, í 6. gr. þeirra, bein fyrirmæli, það var engin heimild til hæstv. menntmrh., það voru bein fyrirmæli, að við teljum, að auk þess skyldi verða stofnsettur fiskvinnsluskóli í Vestmannaeyjum. Lögin segja það beint: Skólinn skal staðsettur á Suðvesturlandi. Auk þess skal stofnaður fiskvinnsluskóli í Vestmannaeyjum, sem útskrifi fiskiðnaðarmenn o.s.frv. Ég tel þetta vera bein fyrirmæli til hæstv. ráðh. um, að þar verði staðsettur fiskvinnsluskóli. Sem afleiðing af því og þessum skilningi bar ég fram fsp. til hæstv. ráðh. í byrjun þings, hvenær hann ætlaði sér að skipa skólanefnd fyrir þennan skóla, ekki hvenær hann ætlaðist til þess, að skólinn tæki til starfa. Við töldum það svo sjálfsagt, að það yrði á þessu ári. Ég fékk það svar, að hann ætlaði alls ekki að flýta sér neitt að því og var ekkert ákveðinn í því einu sinni, hvenær hann ætlaði að stofna skólanefnd þessa skóla, sem auðvitað er fyrsta verkið til að koma skólanum á laggirnar. En þegar ég segi, að við hljótum að skilja þetta ákvæði laganna þannig, að þennan skóla hafi átt að stofnsetja á árinu 1971, þá er það út af 2. mgr. í 6. gr. þessara laga, þar sem segir: Á árunum 1972–1975 skal enn fremur undirbúa stofnun fiskvinnsluskóla 1. og 2. stigs á Suðurnesjum og víðar. Ég tel, að þetta gefi beint til kynna það, sem er tekið fram í lögunum, að á eftir þessum tveimur skólum skuli fara að vinna að því á árunum 1972–1975 að undirbúa stofnun fiskvinnsluskóla á öðrum stöðum á landinu.

Ég vildi í sambandi við þetta mál vekja athygli á þessu, að mér finnst vera kominn verulegur afturkippur í þetta hjá núv. hæstv. menntmrh., í þá stefnu, sem Alþ. var þó að marka sér, að fara með slíkar stofnanir út í dreifbýlið, þegar með eðlilegum hætti er hægt að koma því við. Ég fullyrði hiklaust, að í Vestmannaeyjum er hægt að koma á stofnun fiskvinnsluskóla með eðlilegum hætti. Þar er nú komin sams konar rannsóknastofnun eins og er hér í Reykjavík, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Hún er tekin þar til starfa og er stjórnað af Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins hér í Reykjavík, þannig að það fer ekkert á milli mála, að það atriði er ekki lengur í veginum. En ég vildi vekja athygli á þessu og harma það, að hæstv. menntmrh. skuli vera að marka þessa stefnu nú eða stíga skref til baka í þeirri stefnu, sem Alþ. var þó að marka sér, og kemur fram bæði í sambandi við stofnun fiskvinnsluskólans og eins virðist það koma fram í sambandi við stofnun eða staðsetningu tækniskóla á Akureyri.