29.02.1972
Sameinað þing: 43. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1216 í D-deild Alþingistíðinda. (4938)

173. mál, virkjun Jökulsár á Fjöllum

Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson):

Herra forseti. Um það var spurt, hvort unnið væri skipulega að því af núv. ríkisstj. að finna orkufrekan iðnað til þess að auka markað fyrir raforku frá stórvirkjunum hér á landi. Þm. benti réttilega á það, að hraðinn í virkjunum hlyti að fara eftir því, hvað markaðurinn stækkaði ört. Þessar aðstæður um orkufrekan iðnað á Íslandi hafa verið kannaðar skipulega. Eins og kom hér fram í skýrslu hæstv. forsrh. áðan, var sett sérstök nefnd í það á vegum iðnrn. að ræða við erlenda aðila, sem hefðu áhuga á þátttöku í orkufrekri stóriðju á Íslandi. Hins vegar var það afstaða ríkisstj. að tengja slíkar viðræður við erlenda aðila ekki við ákvörðun um virkjanir hér á landi, þannig að ákvörðun um virkjun við Sigöldu var tekin án nokkurs tillits til þess, hvort erlendur aðili yrði þar með sem orkuneytandi eða ekki. Ástæðan fyrir þessu var sú, að við vildum ekki, að neinn erlendur aðili kæmist í þá aðstöðu, að hann gæti talið, að það færi eftir óskum hans, hvort Íslendingar treystu sér til að ráðast í virkjun eða ekki. Og í sambandi við Sigölduvirkjun er af hálfu Landsvirkjunar gerð grein fyrir því, að það væri til innlendur markaður, sem nægði fyrir þá raforku, sem þar yrði framleidd, ef ráðizt yrði í húshitun með raforku í allstórum stíl. Hins vegar er það alveg ljóst, að það verður miklu auðveldara að framkvæma stórvirkjanir og fleiri en eina á skömmum tíma, ef það tekst að koma hér á laggirnar orkufrekum stóriðnaði. En í því sambandi vil ég taka það mjög skýrt fram, að það er afstaða mín í því máli, að Íslendingar eigi sjálfir að eiga meiri hluta í slíkum fyrirtækjum, Íslendingar eigi að eiga þau a.m.k. að 51%. Þetta er regla mjög margra þjóða og hefur verið mjög vaxandi regla á undanförnum árum. Og ég held, að þetta sé algert frumskilyrði af okkar hálfu, að við þurfum að ráða yfir þeim atvinnutækjum, sem stærst eru og öflugust í landi okkar.

Það hefur einnig komið í ljós, að það eru til margir erlendir aðilar, sem telja þessa reglu sjálfsagða og eru reiðubúnir til þess að taka þátt í samvinnu á þessum forsendum. Hins vegar eru þessar kannanir enn þá svo skammt á veg komnar, að það er ekki tímabært að gera frekari grein fyrir þeim, en það er unnið að því kappsamlega að ræða við marga erlenda aðila og gera þeim grein fyrir bæði orkuframleiðslu hér á landi og þeim forsendum, sem við hugsum okkur, að séu fyrir slíkum samningum.