15.12.1971
Sameinað þing: 25. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 660 í B-deild Alþingistíðinda. (494)

1. mál, fjárlög 1972

Bjarni Guðnason:

Herra forseti. Ég vil gera eftirfarandi grein fyrir atkv. mínu. Með því að ég hef nýlega ásamt tveim öðrum þm. staðið að þáltill., sem hnígur í svipaða átt, og vænti þess, að hún verði farsællega rædd í þingi og þn., tel ég þessa skynditillögu við afgreiðslu fjárlaga ótímabæra, og segi því nei.