14.03.1972
Sameinað þing: 48. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1226 í D-deild Alþingistíðinda. (4965)
923. mál, frumvörp um skólakerfi og grunnskóla
Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Á síðasta Alþ. lagði ríkisstj., sem þá sat, fram tvo viðamikla lagabálka um nýskipan fræðslukerfisins, frv. til I. um skólakerfi og frv. til l. um grunnskóla. Í þeim fólst m.a., að allir skólar, sem styrktir eru að hálfu eða meira af almannafé, skulu mynda samfellt skólakerfi, skyldunámsstig, framhaldsskólastig og háskólastig. Gert var síðan ráð fyrir víðtækri nýskipan á skyldunámsstiginu, grunnskólanum, sem svo var nefndur, fræðsluskylda lengd í níu ár, skólastarf hvers árs aukið og ráðstafanir gerðar til betri nýtingar, þannig að menntaskólanám þyrfti ekki að taka nema þrjú ár og nemendur gætu lokið stúdentsprófi ári fyrr en nú á sér stað, eða 19 ára.
Fjölmörg önnur nýmæli voru í frv., sem auðvitað er ekki ástæða til að rekja við þetta tækifæri. Þessi frv. voru mjög rækilega undirbúin. Fyrst var unnið að samningu þeirra í menntmrn„ einkum og sér í lagi af ráðuneytisstjóra og forstöðumanni skólarannsóknadeildar, sem höfðu samráð við fjölmarga aðra sérfróða menn.
Þegar rn. hafði lokið rækilegum undirbúningi, var hinn 9. júlí 1969 skipuð nefnd til að endurskoða gildandi lög um þessi efni og áttu sæti í henni bæði embættismenn og skólamenn. Varð nefndin sammála um bæði frv. Rn. leitaði umsagnar fjölmargra aðila um málið, og voru undirtektir allra aðila um meginstefnu frv. jákvæðar, þótt auðvitað hafi komið fram ýmsar hugmyndir um breytingu á einstökum atriðum.
Þegar frv. voru lögð fyrir Alþ., fengu þau mjög góðar undirtektir. Yfirleitt lýstu þeir þm., sem til máls tóku, og þeir voru margir, fylgi við meginstefnu frv. Umsagnir þær, sem menntmn. Nd. bárust, voru í öllum aðalatriðum jákvæðar, og hið sama var uppi á teningnum í menntmn. sjálfri, en í henni átti þá sæti m.a. einn af ráðh. hæstv. núv. ríkisstj. Hins vegar varð samkomulag um það, að hér væri um svo veigamikið mál að ræða, að rétt væri að láta afgreiðslu þess bíða til næsta þings og gefa sem flestum aðilum, ekki sízt úti á landi, tækifæri til þess að kynna sér málið á s.l. sumri. Þegar eftir þinglok voru frv. send til allra skólanefnda og skólastjóra á landinu.
Meðferð málsins á síðasta Alþ. lauk þannig, að ég a.m.k. og ég held þm. yfirleitt reiknuðu með því, að frv. yrðu lögð fyrir aftur strax í byrjun þessa þings. Það var ekki gert, og engin skýring hefur enn verið á því gefin, hvers vegna ekkert hefur um málið heyrzt, þótt fimm mánuðir séu nú liðnir frá upphafi þings. Af þessum sökum er þessi fsp. fram borin.