21.03.1972
Sameinað þing: 51. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1228 í D-deild Alþingistíðinda. (4970)

925. mál, orlofsmerki

Fyrirspyrjandi (Bjarnfríður Leósdóttir):

Herra forseti. Ég hef á þskj. 398 borið fram fsp. til félmrh.:

Eru hjá póststjórninni seld orlofsmerki, sem ekki hafa verið hafin? Hversu mikið?

Með þessari fsp. er ég að leita eftir svari við þeirri spurningu, hvernig framkvæmdin á orlofslögum hefur orðið í reynd og hvernig verkafólk hefur gætt réttar síns í þessum efnum, hvort póststjórnin hefur í raun og veru ekki þurft að endurgreiða öll þau orlofsmerki, sem hún hefur selt, og ef svo er, hvort þetta fé renni sjálfkrafa til ríkissjóðs. Ef um umtalsverða upphæð orlofsfjár er að ræða, sem liggur hjá póststjórninni, vaknar hjá mér sú spurning, hvort félmrh. geti ekki með reglugerð séð svo um, að orlofssjóður verkalýðsfélaganna eða Alþýðusambandið fái þetta fé til ráðstöfunar. Það eru næg verkefni fyrir verkalýðshreyfinguna að nýta þetta fé, t.d. til þess að skipuleggja ódýrar orlofsferðir fyrir félaga sína, byggja upp staði til orlofsdvalar eða til menningar- og fræðslustarfsemi.

Eins og alþjóð er kunnugt, er það framtíðaráætlun Alþýðusambandsins, að við Ölfusborgir rísi upp menningarmiðstöð verkalýðshreyfingarinnar. Þar eru þegar risin upp orlofshús, sem aðeins eru notuð 3–4 mánuði á árinu. Meiningin hefur verið, að þarna rísi upp myndarleg bygging, sem yrði þjónustustaður fyrir dvalargesti húsanna, einnig að þarna fari fram öll sú fræðslustarfsemi, sem Menningar- og fræðslusamband alþýðu annast. Ég tel, að orlofsfé, sem ekki er hafið, geti ekki verið betur varið en með því að láta það ganga til sameiginlegrar uppbyggingar orlofs- og menningarstofnunar fyrir alþýðu þessa lands.