21.03.1972
Sameinað þing: 51. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1229 í D-deild Alþingistíðinda. (4971)
925. mál, orlofsmerki
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Spurt er um það, hvort hjá póststjórninni séu seld orlofsmerki, sem ekki hafa verið hafin. Að vísu eru engin orlofsmerki hjá póststjórninni, því að það eru atvinnurekendurnir, sem kaupa orlofsmerkin, og gæti þess vegna aðeins verið um það að ræða, hvort andvirði seldra orlofsmerkja væri hjá póststjórninni. En merki eru þar engin. En ég vil fara nokkrum orðum um þessa spurningu, því að ég tel mig alveg vita það, að spurningin sé um, hvort andvirði seldra orlofsmerkja hafi orðið innlyksa hjá póststjórninni. Og svarið, sem ég gef við spurningunni, er á þessa leið:
Andvirði seldra orlofsmerkja er í vörzlu póststjórnarinnar, þangað til það er borgað út gegn framvísun orlofsbóka með merkjunum í og í samræmi við gildandi reglur. Frá því að lög um orlof voru sett hér á landi og til 31. des. 1971 hefur póststjórnin selt orlofsmerki fyrir samtals 956 millj. 808 þús. kr. Á sama tíma nemur útborgað orlofsfé samtals 865 millj. 363 þús. kr. Í vörzlu póststjórnarinnar var því hinn 31. des. 1971 ógreitt orlofsfé, sem nam 91 millj. 445 þús. kr. Í þessari fjárhæð er auðvitað andvirði þeirra orlofsmerkja, sem seld hafa verið frá 15. maí 1971 og til 31. des. 1971, sem greiða verður sem orlofsfé á því orlofsári, sem hefst 1. maí 1972. Til samanburðar í þessu efni má geta þess, að útborgað orlofsfé á árinu 1971 nam 136 millj. 618 þús. kr. Orlofsreikning póststjórnarinnar er erfitt að gera nákvæmlega upp, á meðan orlofsmerki eru notuð. Það liggur á hinn bóginn í augum uppi, að einhverjar eftirstöðvar andvirðis orlofsmerkja hljóta jafnan að vera fyrir hendi hjá póststjórninni af eftirtöldum tveimur ástæðum:
1. Atvinnurekendur kaupa orlofsmerki, sem þeir nota við greiðslu launa. Einhverjar birgðir verða því þar, sem ekki eru komnar í hendur orlofsþegum. Hve mikil sú fjárhæð er, verður ekki auðvelt að áætla og ómögulegt að vita nákvæmlega.
2. Orlofsþegar glata einhverju af merkjum, sem þeim eru afhent eða við því má a.m.k. búast. Sennilega er þó ekki um háa fjárhæð hér að ræða, en þó vitanlega nokkra upphæð. Nú er í undirbúningi að taka upp nýtt kerfi, þar sem orlofsmerki verði ekki notuð við greiðslu orlofsfjár. Er gert ráð fyrir, að þetta kerfi verði tekið í gagnið frá og með 1. maí 1973, með byrjun þess orlofsárs. Þegar unnt verður að leggja niður orlofsmerkin, kemur fljótlega í ljós, hverju þær eftirstöðvar andvirðis orlofsmerkja nema, sem eftir verða hjá póststjórninni. Sennilega verður þar ekki um háa fjárhæð að ræða, en nú er þó með engu móti mögulegt að áætla, hversu há sú upphæð er.
Ég fer ekki út í hugleiðingar um það, hvort hægt sé að ráðstafa þessu fé, sem þarna er um að ræða, mismuninum á seldum orlofsmerkjum og afhentum, því að ég tel það ekki tímabært. Á þessari stundu getum við ekki komizt að niðurstöðu um það, hver þessi upphæð er.