22.02.1972
Sameinað þing: 40. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1231 í D-deild Alþingistíðinda. (4976)
920. mál, ráðstöfun minningarsjóðs
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Fsp. hv. 1. þm. Norðurl. e. er í tveimur liðum, og eins og hann tók fram, er fsp. um það, hvort ríkisstj. hafi í hyggju að framkvæma ákvæði í reglugerð um minningarsjóð hjónanna Jóhanns Jóhannessonar og Sigurbjargar Guðnadóttur, sem stofnaður var á árinu 1914, á þann veg, að hann nýtist til stofnunar elliheimilis í sveit á næstunni, og í öðru lagi, hverjar séu nú orðnar eignir sjóðsins. Svörin eru í mjög stuttu máli á þessa leið:
Vegna ákvæða skipulagsskrárinnar og rýrnandi verðgildis krónunnar frá 1914 til þessa dags er augljóst, að fyrirhugaðri stofnun, elliheimili í sveit, verður ekki komið á fót á árinu 1973, svo sem gert er ráð fyrir í skipulagsskrá sjóðsins. Raunar má fullyrða, að ákvæði skipulagsskrárinnar séu, eins og raunar ræðumaður sjálfur komst að niðurstöðu um, óframkvæmanleg miðað við aðstæður nú á tímum.
Það hefur verið talið, að heimild skorti til þess að breyta ákvæðum skipulagsskrárinnar. Fyrir um það bil aldarfjórðungi síðan var lagt fyrir Alþ. frv. til l. um heimild til að breyta slíkum skipulagsskrám, sem geymdu ákvæði, er ekki væri unnt að framfylgja. En frv. þetta hlaut ekki afgreiðslu á Alþ. Þar eð skipulagsskrár eru staðfestar á vegum dómsmrn., tel ég eðlilegast, að frumkvæði að slíkri löggjöf kæmi frá dómsmrn. Að öðrum kosti, ef ekki verður sett um þetta sérstök löggjöf, sem heimili breytingar á slíkum skipulagsskrám, þá verða þær í ýmsum tilfellum, fleiri en þessu tilfelli, óframkvæmanlegar. En Alþ. hefur ekki komizt að þeirri niðurstöðu fram til þessa, að það sé heimilt að breyta dánargjöfum eða reglugerðum, sem hafa síðan úrelzt. Þetta er svarið við fyrri spurningunni.
Þá er það svarið við 2. lið spurningarinnar. Það er á þessa leið: Eignir sjóðsins við reikningslok 1970 voru 3 millj. 961 þús. 607 kr. Má gera ráð fyrir, að eignirnar verði ca. 4 millj. 271 þús. við reikningslok ársins 1971. Þó að þarna sé um 4 millj. að ræða, þá er gefinn hlutur, að ekkert elliheimili, hvorki í sveit eða kaupstað, verður byggt fyrir þá upphæð. Svarið, sem ég hef við báðum liðum spurningarinnar, er á þessa leið.4976