11.04.1972
Sameinað þing: 55. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1244 í D-deild Alþingistíðinda. (5010)
927. mál, hlutdeild ríkisins í byggingu elliheimila
Jónas Árnason:
Herra forseti. Þegar ég var einu sinni í vetur fjarverandi — aldrei þessu vant — frá þingi, þá átti sæti hér varamaður minn, frú Bjarnfríður Leósdóttir. Hún leyfði sér þá að leggja fram fsp. til hæstv. heilbr.- og trmrh. Fsp. þessi er svo hljóðandi:
„Í málefnasamningi ríkisstj. er ákvæði um, að sett verði löggjöf um hlutdeild ríkisins í byggingu elliheimila. Hvað líður undirbúningi að framkvæmd þessa atriðis?“