11.04.1972
Sameinað þing: 55. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1245 í D-deild Alþingistíðinda. (5016)
928. mál, menningarsjóður félagsheimila
Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Á Alþ. voru hinn 4. maí 1970 samþykktar breytingar á gildandi lögum um félagsheimili. Meginatriði breytinganna var það, að komið var traustum fjárhagsgrundvelli undir Félagsheimilasjóð, sem átt hafði í fjárhagsörðugleikum um alllangt skeið. En jafnframt var í 1. gr. þessa frv. tekið nýmæli, mjög merkilegt nýmæli að mínum dómi, um starfsemi í félagsheimilunum, þ.e. um menningarsjóð félagsheimila. En síðasta mgr. 1. gr. þessara laga hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Af tekjum Félagsheimilasjóðs skulu 10% renna í menningarsjóð félagsheimila. Skal því fé varið til að stuðla að menningarstarfsemi í félagsheimilunum. Styrkveitingu til menningarstarfsemi einstakra félagsheimila má binda því skilyrði, að tiltekinn hluti aðgangseyris af samkomum félagsheimilisins renni í sérstakan menningarsjóð þess. Skal stjórn félagsheimilisins varðveita þann sjóð, og verður honum eingöngu varið til menningarstarfsemi í því félagsheimili.“
Þetta nýmæli var í frv. því, sem ég hafði flutt á sínum tíma, vegna þess að ýmsum hafði fundizt, að í félagsheimilum kvæði of mikið að ýmiss konar skemmtistarfsemi og hreinni fjáröflunarstarfsemi, en minna en skyldi að ýmislegri nauðsynlegri menningarstarfsemi. Með þessu móti átti að tryggja, að hægt væri að stuðla að heilbrigðri menningarstarfsemi í félagsheimilunum. Með hliðsjón af því, að tekjur Félagsheimilasjóðs hafa á undanförnum árum verið um 15 millj. kr. á ári, var því hér um að ræða um 1.5 millj., sem í þessu skyni skyldi notað.
Það var augljóst mál á vorinu 1970, að menningarsjóður félagsheimila gæti ekki tekið til starfa haustið 1970, því að þá hafði svo lítið í hann safnazt, en hins vegar var gert ráð fyrir því, að hann tæki til starfa haustið 1971. Nú átti það sér hins vegar ekki stað, þó að allmikið fé hljóti þá að hafa verið komið í sjóðinn, og þess vegna er þessi fsp. fram borin, hvers vegna Félagsheimilasjóður hafi ekki tekið til starfa á s.l. hausti og þá hvenær honum sé ætlað að taka til starfa.
Það kom enn fremur í ljós, að menntamálaráð ákvað fjárveitingu úr Menningarsjóði, Í millj. kr. á árinu 1972, til nákvæmlega sömu verkefna og menningarsjóði félagsheimila er ætlað að standa undir. Sú samþykkt var tilkynnt með þeim hætti, að nærri lá að ætla, að forvígismönnum Menningarsjóðs væri ekki kunnugt um, að þegar væri búið að stofna menningarsjóð félagsheimilanna til að halda uppi menningarstarfsemi í þessum stofnunum. Að sjálfsögðu ber því að fagna, ef menntamálaráð vill úr Menningarsjóði leggja viðbótarfé til að halda uppi menningarstarfsemi í félagsheimilunum. Það er alltaf hægt að nota fé í jafngóðu skyni og hér er um að ræða, en þá er auðvitað nauðsynlegt að samræma hagnýtingu þess fjár, sem rennur í menningarsjóð félagsheimilanna annars vegar, og viðbótarfjár, sem kann að koma hverju sinni úr Menningarsjóði. Vænti ég, að um það geti enginn ágreiningur verið, að það þurfi að koma heildarstjórn á þessi mál, fyrst svo ánægjulega vill til, að fé berst úr tveimur áttum til að halda uppi þessari starfsemi.
En aðalatriðið í fsp. er sem sagt að fá upplýsingar um það, hvaða fyrirætlanir séu á döfinni um starfrækslu menningarsjóðs félagsheimila, sem allar götur frá því vorið 1970 hefur haft sérstakan starfsmann til þess að undirbúa þessa mjög svo nauðsynlegu starfsemi.