11.04.1972
Sameinað þing: 55. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1249 í D-deild Alþingistíðinda. (5021)
225. mál, Egilsstaðaflugvöllur
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Fsp. þessa til hæstv. samgrh. bar hér fram skömmu fyrir páskaleyfi varamaður hæstv. viðskrh., þáv. hv. 2. þm. Austf., Sigurður Blöndal. Þar sem hann er nú horfinn af þingi, þá ætla ég að fylgja fsp. úr hlaði með örfáum orðum að beiðni hans.
Ekki þarf að taka það fram, að greiðar samgöngur og öryggi í samgöngum eru hiklaust veigamiklar kröfur allra í dag. Ekki sízt eiga þær við hjá fólki, sem þarf á þær að treysta í fjölmörgu tilliti, og til þessa hlutverks er flugið kjörið öðrum samgönguþáttum betur.
Austfirðingar búa við mesta fjarlægð frá Reykjavík — þeirri miðstöð í hverju einu, sem sífellt þarf til að leita með smátt og stórt. Austfirðingum er því kappsmál, að flugsamgöngur við fjórðunginn séu sem greiðastar. Mikið hefur áunnizt í þessum efnum, en eitt er það þó, sem skyggir mjög á um þennan mikilvæga þátt samgangna okkar, en það er ásigkomulag Egilsstaðaflugvallar, sem er vægast sagt í bágbornara lagi nú. Það hefur æðioft komið fyrir nú í vetrarhlýindunum, að flugvöllurinn hefur verið lokaður vegna aurbleytu, sömuleiðis oft verið þar illlendandi af sömu ástæðu, þó gert hafi verið og þá tekin sú mikla áhætta, sem af aurbleytunni gæti stafað. Ég nefni þetta aðeins sem dæmi — dæmi, sem ég þekki af eigin raun og sem ásamt mörgu fleiru knýr á um það, að sem fyrst verði hafizt handa til úrbóta, eins og fsp. þessi lýtur að.
Í fyrsta lagi er spurt: „Er búið að gera áætlun um endurbyggingu Egilsstaðaflugvallar?“ Og í framhaldi af því: „Ef svo er, hvenær er þá gert ráð fyrir, að framkvæmdir geti hafizt?“
Þessi fsp. byggist á því — þessir báðir liðir — að hér duga ekki lagfæringar, heldur þarf til að koma algjör endurbygging vallarins. Sú endurbygging hygg ég, að sé ekki deilumál, heldur veit ég ekki annað en að það sé staðreynd, að þetta sé álit allra þeirra, sem hér til þekkja og af þekkingu mega tala um þessi mál.
Ég vil ekki rekja hér í stuttri fsp. rök með endurbyggingu vallarins, en þau munu vera þungvæg og öll á einn veg. Í tengslum við þessa endurbyggingu Egilsstaðaflugvallar, sem ótvírætt er hin mesta nauðsyn, kemur fram sú spurning, sem er í c-lið fsp., svo hljóðandi: „Er ekki mögulegt að sameina þá endurbyggingu þörfinni fyrir alþjóðlegan varaflugvöll?“
Hér er komið inn á veigamikið atriði og eflaust allviðkvæmt, en það hlýtur ósjálfrátt að tengjast hinum tveim. Spurningin hlýtur að verða um það, hvort hér eigi aðeins að hyggja að endurbyggingu vallarins sem innanlandsflugvallar eða hvort endurbyggingin eigi að verða með hitt atriðið að leiðarljósi einnig.
Það er því eðlilegt og sjálfsagt, að um þetta sé spurt jafnhliða.