11.04.1972
Sameinað þing: 55. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1250 í D-deild Alþingistíðinda. (5023)

225. mál, Egilsstaðaflugvöllur

Helgi F. Seljan:

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. samgrh. skýr og greinargóð svör hans og sérstaklega ítreka einmitt eftir þeim svörum, sem hann gaf, nauðsyn þess, að það verði rækilega athugað, hvernig samræma megi hvort tveggja, endurbyggingu Egilsstaðaflugvallar og gerð flugvallar fyrir millilandaflug, og um leið auðvitað leggja áherzlu á það, að endurbyggingu vallarins verði hraðað sem allra mest að þeim nauðsynlegu athugunum loknum.