18.04.1972
Sameinað þing: 57. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1256 í D-deild Alþingistíðinda. (5037)

239. mál, kjarnfóðurinnflutningur

Fyrirspyrjandi (Bragi Sigurjónsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram á þskj. 514 svofellda fsp. til hæstv. landbrh.:

Hve mikill er kjarnfóðurinnflutningur orðinn frá 1. sept. s.l. að telja að magni og verðgildi, og hve mikinn gjaldeyri hefur þjóðin orðið að greiða fyrir hann?

Fsp. skýrir sig sjálf, en ástæðan fyrir því, að hún er fram borin, er m.a. sú, að ég hef grun um, að þessi innflutningur sé drjúgum meiri en heilbrigt geti talizt fyrir þjóðarbúið og þessum vörum sé haldið miklu fastar að bændum af hálfu innflytjenda en forustumönnum bænda mörgum hverjum þykir nokkurt hóf að. Útflutningur landbúnaðarafurða fyrir verð, sem er undir framleiðsluverði og sumt langt undir, getur tæpast talizt skynsamlegur nema í takmörkuðum stíl. En þegar farið er að nota stórar fúlgur gjaldeyris til útflutnings á slíkum undirverðsvörum, verður landbrn. að taka skörulega í tauma, vilji það þjóðarhag vel og bændum vel, og slíkt fer að mínum dómi saman, þegar ofan í alla sauma er skoðað. Tímamörk fsp. hef ég miðað við það, að ekki fer milli mála, að s.l. sumar var mjög hagstætt til fóðuröflunar innanlands.