11.04.1972
Sameinað þing: 55. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1267 í D-deild Alþingistíðinda. (5058)
186. mál, almannavarnir
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. dómsmrh. fyrir svör hans. Það er von mín, að fsp. þessar og svör við þeim veki menn til umhugsunar um þátt almannavarna í þjóðfélaginu, sem ég tel, að hafi mjög verið vanræktur. Þegar sett voru lög um almannavarnir, ollu þau nokkrum deilum, e.t.v. fyrst og fremst vegna þess, að menn einblindu um of á almannavarnir vegna styrjaldarhættu og hugsanlegs styrjaldarástands. Inn í þær deilur blandaðist afstaða manna til dvalar erlends herliðs í landinu, og hefur afstaða margra síðan mótazt af því, hvaða augum þeir líta varnarliðið og dvöl þess hét, og er það mjög miður. Tilgangur almannavarna er skilgreindur svo í 1. gr. laga um almannavarnir:
„Að skipuleggja og framkvæma ráðstafanir, sem miða að því að koma í veg fyrir, eftir því sem unnt er, að almenningur verði fyrir líkamstjóni eða eigna af völdum hernaðaraðgerða, náttúruhamfara eða annarri vá og veita líkn og aðstoð vegna tjóns, sem orðið hefur, enda falli þau störf ekki undir aðra aðila samkv. lögunum.“
Svo sem marka má af þessari skilgreiningu, er hlutverk almannavarna mjög víðtækt og hlýtur því að vera ljóst, að fyrsta skrefið, sem stíga verður, til þess að lög þessi megi ná tilgangi sínum, sé að skipuleggja starfsemi Almannavarna og gera áætlanir um hvernig bregðast skuli við hinum ýmsu vandamálum, sem upp kunna að koma, ef til neyðarástands eða stórslysa kemur. Ég leyfi mér að fullyrða, að mjög lítið hefur verið gert í þessu efni hér á landi, þrátt fyrir þá staðreynd, að nú eru liðin meira en níu ár frá því, að lög voru sett um almannavarnir, og ástæðan er einfaldlega sú, að skilningur hefur ekki verið fyrir hendi.
Svo sem fram kemur í fsp., háttar svo til, að starfi forstöðumanns Almannavarna er gegnt af opinberum starfsmanni í fullu starfi við önnur verkefni, sem sé forstjóra Landhelgisgæzlunnar. Án þess að efast nokkuð um hæfileika þess manns, sem nú gegnir því starfi, er það skoðun mín, að sú skipan geti alls ekki verið til frambúðar, ráða verði forstöðumann Almannavarna, sem sinni því óskiptur, og mikils er um vert, að í þann starfa veljist maður með víðtæka þekkingu og hæfileika. Sá maður þarf að hafa forgöngu um heildarskipulagningu almannavarna, og fyrsta verkefni, sem vinna þyrfti að, er að gera sér grein fyrir því, hvað þarf að vinna, því að svo virðist sem menn hafi alls ekki gert sér grein fyrir því enn.
Svo hefur til tekizt við afgreiðslu fjárlaga nú á þessu þingi, að fjárveiting til almannavarna var ákveðin mun lægri en á síðasta ári eða kr. 4 millj. 80 þús. í stað 5 millj. 732 þús., og mér er kunnugt um, að fjvn. bárust engin tilmæli um hækkun frá því, sem lagt var til í frv. til fjárlaga, og er því ekki við hana að sakast, þó að svo illa hafi til tekizt sem raun ber vitni um fjárveitingu til þessarar starfsemi. Ber þetta ljósan vott um áhugaleysi ráðamanna um eflingu almannavarna og gefur e.t.v. til kynna, að almannavarnaráð og forstöðumaður Almannavarna telji, að draga megi verulega úr starfsemi almannavarnanna. Hitt er mála sannast, að þeir starfsmenn, sem vinna að almannavörnum á vegum almannavarnaráðs, hafa þungar áhyggjur af því, að þessi niðurskurður fjárveitinga til starfseminnar muni Íama hana og gera þeim ókleift að vinna að þeim verkefnum, sem fyrir liggja, eins og æskilegt hefði verið.
Ég vil nú leyfa mér að drepa á örfá atriði af fjöldamörgum, sem ég tel, að nauðsyn beri til að vinna að á sviði almannavarna á skjótan og góðan hátt, til þess að við Íslendingar getum talizt sambærilegir við aðrar þjóðir í því efni að tryggja öryggi þegnanna, ef til neyðarástands kemur af einhverjum völdum.
1. Byggja þarf upp rannsóknir á hugsanlegum náttúruhamförum og áhrifum þeirra. Viðurkenna þarf nauðsyn þess, að veitt sé fé til þessara þarfa.
2. Sú staðreynd, að næstum öll símaviðskipti bæði innanlands og til útlanda, eiga sér stað um eina byggingu í miðbæ Reykjavíkur og tjón á rofabúnaði í þeirri byggingu einni mundi stöðva öll slík viðskipti í allt að því eitt ár, sýnir glögglega nauðsyn þess, að komið væri upp varakerfi. Þá má öllum ljóst vera, hvílíkt ástand mundi skapast hér, ef öll símaviðskipti leggjast niður um langan tíma.
3. Viðvörunarmiðstöð þarf að koma upp fyrir allt landið, þaðan sem unnt sé að hafa samband við lögreglu á hverju svæði, yfirvöld, veðurstofu, flugumsjón, símastjórn, útvarpsstjórn, hjálparsveitir og fleiri aðila.
4. Gera þarf áætlun um fljótvirka og viðtæka útköllun manna til starfa í neyðartilfelli. Nauðsynlegt er, að það sé tilgreint, hver gerir hvað, hvenær, hvernig og hvers vegna. Minna má í þessu sambandi á það, hversu lítið samstarf er á milli hinna mismunandi hópa hjálparsveita, svo sem slysavarnafélaga, hjálparsveita skáta, flugbjörgunarsveita og fleiri aðila.
5. Neyðarkerfi þarf að byggja upp í sérhverju sjúkrahúsi landsins. Enn fremur þarf að gera sér grein fyrir hugsanlegum bráðabirgðasjúkraskýlum og koma upp kerfi fyrir þau. (Forseti: Hv. þm. hefur talað í 5 mínútur.) Ég er að ljúka máli mínu.
6. Ríkisvaldið þarf að aðstoða sveitarfélög við að byggja upp almannavarnakerfi. Almannavarnaráð byggi upp „módelplön“ fyrir nokkra kaupstaði. Nauðsynlegt er, að almannavarnaráð ráði fastan starfsmann, er starfi að erindrekstri og aðstoð við almannavarnir úti um landið. Þessi starfsmaður þarf að vera vel hæfur og vel menntaður.
7. Stöðug upplýsingastarfsemi er nauðsynleg til þess að tryggja árangur framkvæmdar neyðarráðstafana. Almenningur hefur rétt á að vita, af hverju stafa hættur, hvað unnt er að gera til varnar gegn þeim og hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar til viðbúnaðar gegn hugsanlegum hættum. Menntmrn. í samráði við forstöðumenn Almannavarna komi á fót námskeiðum fyrir fullorðna um hvað beri að gera, ef hættuástand skapast. Einnig séu útbúnir bæklingar til fræðslu á öllum skólastigum og til dreifingar meðal almennings.
Hér hefur aðeins verið drepið á örfá atriði, sem bíða úrlausnar í málum almannavarna. Forsendur þess, að unnt verði að takast á við þessi mál af festu, eru þessar: Ráðinn verði forstöðumaður, er vinni það starf eingöngu. Viðurkennd verði nauðsyn þess að koma á fót öflugum almannavörnum til þess að tryggja svo sem verða má öryggi þegnanna. Jafnhliða verður að viðurkenna nauðsyn þess, að aukið fjármagn verði veitt til þessara mála.
Ég vona fastlega, að þessi mál verði nú þegar tekin til rækilegrar athugunar af hæstv. ríkisstj., einkum hæstv. dómsmrh., og þær úrbætur gerðar, sem nauðsynlegar eru.