25.04.1972
Sameinað þing: 61. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1270 í D-deild Alþingistíðinda. (5066)

931. mál, hækkun á verðlagi

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Fsp. sú, sem hv. 7. þm. Reykv., Gylfi Þ. Gíslason, hefur lagt fram, er mjög yfirgripsmikil og ekki auðvelt að svara henni í stuttu máli. Ég hef því valið þann kost að láta dreifa meðal þm. skriflegu svari við fsp„ og ég hygg, að þar sé vikið að öllum þeim atriðum, sem um er spurt, eftir því sem hægt er að gera við þessar aðstæður. En ég tel rétt að láta fylgja með þessum svörum nokkrar almennar skýringar frá minni hálfu.

Verðlagshækkanir þær, sem stjórnarvöld hafa heimilað síðustu mánuði, má greina í fjóra aðalflokka, eftir því hvaða ástæður eru fyrir þessum hækkunum. Í fyrsta flokki eru þær verðhækkanir, sem stafa frá ákvörðunum, sem teknar voru í tíð fyrrv. ríkisstj. eða frá kostnaðarhækkunum, sem urðu á verðstöðvunartímanum. Dæmi um slíkar verðhækkanir, sem nú koma fram í verðlagi, eru m.a. þessi: Hækkun á hitaveitugjöldum, rafmagnsverði, strætisvagnagjöldum, sementsverði, gjöldum símans, afnotagjöldum útvarps og sjónvarps, bifreiðatryggingum, dagblöðum, olíuflutningum innanlands, steypustöðvartöxtum og á verði ýmiss konar iðnaðarvöru. Þeir, sem sótt hafa um verðhækkanir vegna þessara þjónustugreina, hafa fyrst og fremst rökstutt hækkunarbeiðnir sínar með því, að þeir hafi ekki fengið nauðsynlegar verðhækkanir samþykktar á verðstöðvunartímanum og því margir rekið með halla. Þannig telja t.d. forsvarsmenn Sementsverksmiðjunnar, að hækka hefði þurft verð á sementi nú um 16.7% vegna synjunar um hækkun á s.l. ári og tapreksturs fyrirtækisins. Ríkisstj. heimilaði þó aðeins 10% verðhækkun á sementi.

Fjármálastjóri útvarpsins taldi einnig, að hækka þyrfti afnotagjöld þess um 32.2% til þess að ná fullum rekstursjöfnuði, eins og nú er komið, en ríkisstj. féllst aðeins á 10% hækkun afnotagjalda. Á svipaðan hátt var rökstuðningur borgaryfirvalda í Reykjavík fyrir hækkunarbeiðnum á hitaveitugjöldum og strætisvagnagjöldum. Eigendur steypustöðva í Reykjavík töldu sig þurfa að fá 34–39.5% verðhækkun, m.a. vegna tapreksturs á s.l. ári. Ríkisstj. heimilaði þeim 10% verðhækkun.

Landsvirkjun taldi óhjákvæmilegt að hækka verð á raforku í heildsölu um 20%, til þess að fyrirtækið gæti staðið við samninga við erlenda aðila um rekstursafkomu. Af þeim ástæðum var síðan heimiluð 10% verðhækkun á almennri raforkusölu rafveitna. Mörg iðnfyrirtæki hafa talið nauðsynlegt að fá að hækka útsöluverð á framleiðslu sinni, vegna þess að á tíma verðstöðvunarinnar hafi framleiðslukostnaður þeirra farið vaxandi, m.a. vegna hækkunar á erlendu efni eða rekstrarvörum. Verðhækkanir af þessu tagi, sem rekja verður til þess, sem gerst hafði í verðlagsmálum fyrir tíð núv. ríkisstj., eru tvímælalaust fyrirferðarmestar og hafa haft mest áhrif til hækkunar á vísitölu.

Í öðrum flokki verðhækkana eru svo þær verðlagsbreytingar, sem beinlínis stafa af erlendum verðlagshækkunum. Þannig hefur verðlag á sykri hækkað mjög mikið á heimsmarkaði. Afleiðingar þess eru m.a. þær, að ýmsar vörur, sem hér eru framleiddar úr sykri, hafa hækkað í verði. Má þar til nefna gosdrykki, sælgæti og ýmsar brauðtegundir. Þá er einnig vitað, að gjaldeyrir flestra viðskiptalanda okkar í Evrópu hefur hækkað síðustu mánuði, en það hefur skiljanlega leitt til hækkunar á verði innfluttra vara.

Í þriðja flokki eru þær verðhækkanir, sem stafa af nýgerðum kaupgjaldssamningum. Vegna lagaákvæða um, að bændur skuli hafa sambærileg laun og verkamenn og iðnaðarmenn, hækkaði verð á landbúnaðarafurðum um 12–14%, og afleiðing þess varð sú, að ýmsar unnar kjöt- og mjólkurvörur hlutu einnig að hækka í verði. Þá hækkaði neyzlufiskur innanlands um leið og fiskverð var hækkað til sjómanna. Og um leið og kaup iðnaðarmanna hækkaði, hlaut útseld vinna þeirra að hækka, þó að dregið væri úr þeirri álagningu, sem meistarar og fyrirtæki höfðu áður haft á útseldri vinnu.

Í fjórða flokki eru svo þær verðhækkanir, sem stafa af sérstökum ráðstöfunum ríkisstj. til tekjuöflunar fyrir ríkissjóð og Vegasjóð. Þar er um að ræða verðhækkanir á áfengi og tóbaki og á bifreiðum vegna nýs innflutningsgjalds.

Þær verðlagshækkanir, sem ríkisstj. hefur heimilað síðan um áramót, eru vissulega meiri en æskilegt hefði verið, en varla er hægt að sjá, að mögulegt hefði verið að komast hjá þeim eins og í pottinn var búið.

Í tíð fyrrv. ríkisstj. var samið um miklar launahækkanir opinberra starfsmanna, þ.e. starfsmanna í þjónustu ríkisins, ríkisfyrirtækja og starfsmanna bæjarfélaga. Þessir samningar voru gerðir í des. 1970 eða nokkru eftir að verðstöðvunin hófst. Þær launahækkanir hlutu að koma fram í opinberum rekstri. En vegna verðstöðvunarinnar komu afleiðingar þeirra hækkana ekki fram í verðlagi, og var því þar um geymdan vanda að ræða. Ljóst er af því, sem hér hefur verið sagt, að meginþunginn af þeim verðlagshækkunum, sem nú hafa verið að koma fram, stafar frá ákvörðunum, sem gerðar voru í tíð fyrr. ríkisstj. eða sem eiga beinlínis rætur að rekja til þess, sem gerst hafði í rekstrar- og verðlagsmálum, áður en núv. ríkisstj. tók við völdum. En rétt er svo að hafa í huga, að enn hafa ekki verið afgreiddar beiðnir um hækkun á álagningu verzlunarfyrirtækja, en sú beiðni er að verulegu leyti rökstudd með kaupgjaldssamningunum, sem áttu sér stað um síðustu áramót, og ekki hefur heldur verið tekin afstaða til beiðni frá skipafélögunum um hækkun á fröktum, en beiðni þessara aðila er að verulegu leyti rökstudd með launahækkunum, sem einnig urðu um síðustu áramót. Afleiðingar í verðlagsmálum af þeim kaupgjaldssamningum, sem þá voru gerðir, eru því að nokkru ókomnar fram.

Eins og fram kemur í hinu skriflega svari, sem hv. alþm. hafa fengið, þá er þar gerð nokkur grein fyrir áhrifum verðlagsbreytinganna á vísitölu, en þó hefur ekki þótt fært að gera ítarlega talningu á áhrifum vegna þeirra verðbreytinga, sem ýmist eru nú að eiga sér stað eða hafa átt sér stað síðustu daga af þeim ástæðum, að þar leikur nokkur vafi á um ýmis atriði. En þó er það álit Hagstofunnar, að gera megi ráð fyrir því, að kaupgjaldsvísitalan geti hækkað um u.þ.b. 5.8 vísitölustig, þegar kaupgjaldsvísitalan kemur næst til framkvæmda, og yrði þá kaupgreiðsluvísitalan í kringum 11 5 stig. En á þessu geta að sjálfsögðu enn orðið breytingar.

Þetta voru nú aðalatriðin, sem ég taldi rétt, að kæmu hér fram til frekari skýringar á þeim ítarlegu skriflegu svörum, sem útbýtt hefur verið við þessari fsp. og allir hv. þm. hafa þegar fengið í hendur.