25.04.1972
Sameinað þing: 61. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1274 í D-deild Alþingistíðinda. (5069)

931. mál, hækkun á verðlagi

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Út af því, sem hv. 5. þm. Reykn. spurði um, þ.e. um það, hvort Eimskipafélaginu mundi vera heimilt að hækka um allt að fjórðung gjöld fyrir útflutning á vörum frá landinu, þá skal ég játa það, að mér er ekki út af fyrir sig kunnugt um neina slíka heimild, og er sjálfsagt að huga að því, hvernig þessu er háttað. En hitt veit ég, að Eimskipafélagið hefur þegar gert samninga til lengri tíma við aðila, sem hafa með höndum mikinn hluta af útflutningi okkar, eins og t.d. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna o.fl., um flutning á frosnum fiski, og þeim samningum, sem eru til miklu lengri tíma, hefur að vísu verið breytt, en þar hefur aðeins orðið um mjög litla hækkun að ræða, ég held innan við 4% frá því, sem áður hafði verið. En þetta atriði mun út af fyrir sig verða tekið til athugunar, hvort um það getur verið að ræða, að þarna hafi átt sér stað óleyfileg verðlagshækkun af hálfu þessara aðila.

Hv. 7. þm. Reykv. sagði, að það hefði öllum verið ljóst, að mikill vandi hefði verið á höndum í verðlagsmálum þjóðarinnar, en sló því svo föstu, að í ljós hefði komið, að ríkisstj. hefði ekki reynzt þeim vanda vaxin að leysa málið. Það er út af fyrir sig mjög athyglisvert, að þessi hv. þm. viðurkennir þá staðreynd, að hér var um mikinn vanda að ræða, sem fyrrv. ríkisstj. skildi eftir sig í þessum efnum. Mér þykir mjög hafa borið á því í málflutningi þeirra, sem tala fyrir fyrr. ríkisstj., að þeir vilji kenna núv. ríkisstj. um þann vanda, sem víð var að glíma í þessum efnum. En það er sem sagt ljóst, að hv. 7. þm. Reykv. viðurkennir það nú, að hér var um gífurlega mikinn vanda að ræða, sem hlaut að fylgja í kjölfar langrar verðstöðvunar. En það væri kannske ekki úr vegi, þó að hér sé ekki staður eða stund til þess að fara út í ítarlegar umr., að spyrja þennan hv. þm. um það, hvernig hann hafi ætlað að leysa þann vanda, þar sem menn höfðu hrúgað því upp fyrir framan sig að leyfa ekki verðlagshækkanir á ýmsum sviðum og þar sem kominn var upp stórfelldur hallarekstur hjá fyrirtækjum. Það var augljóst á orðum hans, að hann gerði sér grein fyrir því, að um verðstöðvun gat ekki verið að ræða endalaust eða áfram, en hvernig átti þá að leysa vandann? Ríkisstj. hefur farið þá leið, að hún hefur ekki orðið við beiðnum aðila nema að litlu leyti. Þegar borgaryfirvöldin í Reykjavík töldu sig þurfa að fá 13.1 % hækkun á hitaveitugjöldum, eins og komið væri, þá samþykkti ríkisstj. aðeins 5% hækkun. Og þegar borgaryfirvöldin í Reykjavík og reyndar forustuaðilar fyrir öðrum rafveitum í landinu töldu sig þurfa að hækka rafmagnsverðið alveg óhjákvæmilega um 16.6%, þá samþykkti ríkisstj. þó ekki meira en 10% hækkun. Og þannig mætti í fjöldamörgum efnum telja upp. Það, sem ríkisstj. hefur gert, er það, að hún hefur reynt að hamla hér á móti og draga úr eins og mögulegt er. Hún hefur reynt að leggja á reksturinn það, sem hægt hefur verið, en hitt er líka alveg augljóst, að það var engin leið í ýmsum tilfellum að neita um einhverja verðlagshækkun, eins og komið var.

En ég get tekið undir með hv. 7. þm. Reykv., að hér er um alvarlega þróun að ræða. Það er rétt. Hér var og er um alvarlegt vandamál að ræða. En hitt þykir mér heldur af smærra taginu, að þeir, sem stofnað hafa til reiknings, þeir, sem stofnað hafa til skuldar, þeir, sem eiga sinn stóra hluta að því að efna til vandans, skuli ætla sér að hlaupa frá vandanum og neita að bera á honum nokkra ábyrgð og vilja aðeins gera þá einföldu kröfu, að aðrir greiði skuld þeirra.

Varðandi umsagnir hv. 7. þm. Reykv. um það, hvað launþegar eigi inni, þá vil ég aðeins segja það, að núv. ríkisstj. leiðrétti vísitöluna um nokkuð á þriðja vísitölustig frá því, sem fyrr. ríkisstj. hafði ákveðið með lögum, og bætti launþegum þar með upp beina skerðingu, sem fyrrv. ríkisstj. hafði gert á launakjörum þeirra, en núv. ríkisstj. hefur ekki gert neitt til þess að breyta gildandi lagaákvæðum um útreikning vísitölunnar, og þar hefur verið farið nákvæmlega samkv. settum lagareglum, og er næsta einkennilegt að heyra þennan hv. þm., að ég tali nú ekki um blað hans, tala um það, hvernig vísitalan hafi verið fölsuð, og segja svo alltaf í hinu orðinu, að hann beri fullt traust til þeirrar nefndar, sem hefur með útreikning vísitölunnar að gera. Og sé um einhverja fölsun á vísitölu að ræða, þá getur þarna ekki verið um neitt annað að ræða en það, að verið er að bera sakir á þá menn, sem samkv. lögum reikna út kaupgjaldsvísitöluna. Hún hefur verið reiknuð út eins og lög standa til í hvert það skipti, sem hún hefur átt að reiknast út. Og það hefur því ekki verið efni til þess að tala um einhverja vísitölufölsun.

Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri, af því að hér er ekki tími til þess að fara í langar umr. Það gefst eflaust tækifæri til þess að ræða þessi mál á öðrum stað og öðrum tíma, þar sem betri tími er til. En hér hafa verið gefnar upplýsingar um það, hvað hefur gerzt í þessum málum, og ég hef dregið fram það, sem ég tel vera beinar staðreyndir um það, af hvaða toga aðallega eru spunnar þessar verðhækkanir, sem hér hafa verið ræddar og hafa verið að ganga yfir, því að ég tel, að það sé ekkert um að villast, að þær séu svona tilkomnar, eins og ég hef greint frá.