20.12.1971
Sameinað þing: 27. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 693 í B-deild Alþingistíðinda. (507)

1. mál, fjárlög 1972

Inga Birna Jónsdóttir:

Herra forseti. Á þskj. 271, í 2. lið tillögu frá Ingu Birnu Jónsdóttur, Gils Guðmundssyni, Eggert G. Þorsteinssyni og Ásgeiri Bjarnasyni við 4. gr. fjárlagafrv., er farið fram á styrk til Menningar- og friðarsamtaka íslenzkra kvenna að upphæð 50 þús. kr. Þetta er brtt. við fjárlagafrv., og þessi samtök, Menningar- og friðarsamtök íslenzkra kvenna, hafa sent fjvn. bréf, þar sem nefnd er ýmis starfsemi á þeirra vegum, svo sem barátta fyrir friðarstefnu og launajafnréttisbarátta kvenna. Sá liður starfsemi þeirrar, sem ég tel hvað veigamestan, er áhugi þeirra á barnaverndarmálum. Nú hef ég alls ekki hugsað mér að tala fyrir ágæti kvenfélaga, síður en svo. Ég hlakka til þess dags, þegar þau þurfa ekki að vera til. En á meðan uppbygging barnaheimila er svo skammt á veg komin sem raun ber vitni, þá vil ég styðja hvern þann félagsskap, sem hefur slíkt á stefnuskrá sinni. Ég vona, að till. verði samþykkt.