09.05.1972
Sameinað þing: 65. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1287 í D-deild Alþingistíðinda. (5089)
265. mál, stofnun Leiklistarskóli ríkisins
Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Leiklistarskóli Þjóðleikhússins hefur nú starfað í 22 ár. Í 10–12 ár rak Leikfélag Reykjavíkur einnig leiklistarskóla, en hefur nú lagt hann niður fyrir þrem árum.
Þegar ég veitti menntmrn. forstöðu skipaði ég nefnd til þess að kanna leiklistarkennslu á Íslandi og gera tillögur til úrbóta. Sú nefnd skilaði áliti í ársbyrjun 1970. Í ítarlegu nál. hennar voru upplýsingar um leiklistarkennslu á Norðurlöndum og tillaga gerð um stofnun leiklistarskóla, fullkomins leiklistarskóla, sem rekinn yrði af ríkinu. Það er mikið áhugamál íslenzkra leikara og raunar allra, sem íslenzkri leiklist unna, að menntunarmálum leikara sé komið í sem bezt og fullkomnast horf. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að mjög ör vöxtur hefur orðið í íslenzkri leiklist undanfarinn aldarfjórðung, og það er alvarlegt áfall fyrir íslenzka leiklist og framþróun hennar, ef afturkippur verður í menningarmálum íslenzkra leikara. Á þessu vori munu 10 ungir leikarar brautskrást frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins eftir þriggja ára nám þar. En jafnhliða því sem Leikfélag Reykjavíkur hefur lagt niður sinn leiklistarskóla, hafa forráðamenn Þjóðleikhússins lýst því yfir, að engir nýir nemendur verði teknir í leikskóla þess á hausti komanda. Hér er um að ræða stóralvarlega þróun í íslenzkum leiklistarmálum, sem gera verður ráðstafanir til að koma í veg fyrir. Það kann vel að vera rétt, að á þeim tíma, sem nú er til næsta hausts, sé ekki ráðrúm til þess að undirbúa áframhald leikskóla Þjóðleikhússins, ef það er rétt, að raunveruleg ákvörðun hafi verið tekin um það að taka enga nýja nemendur í skólann á næsta hausti. En við svo búið má með engu móti standa. Það verður að taka ákvörðun um það að halda áfram leiklistarkennslu á Íslandi. Þó að ekki verði hægt að halda áfram skólanum næsta haust, verður að ákveða, hvenær honum skuli haldið áfram og í hvaða formi það skuli gerast. Til þess að fá upplýsingar um, hvernig nú horfir í þessum mikilvægu málum íslenzkrar leiklistar, er þessi fsp. fram borin.