16.05.1972
Sameinað þing: 71. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1301 í D-deild Alþingistíðinda. (5115)
936. mál, hrygningarsvæði
Fyrirspyrjandi (Guðlaugur Gíslason):
Herra forseti. Fsp. sú, sem ég hef leyft mér að bera fram til hæstv. sjútvrh„ er í þremur tölul. og hljóða 1. og 2. tölul. þannig:
1. Hafa athuganir farið fram á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar á þeim breytingum, sem orðið hafa á hrygningarsvæðum við Suður- og Suðvesturland undanfarin tvö ár?
2. Ef svo er, hverjar eru niðurstöður þeirra athugana?
Þessi fsp. er borin fram vegna þess, að mjög greinilega hefur orðið veruleg breyting á fiskigöngum á þessum svæðum, sem þarna eru tilgreind. Það hefur að sjálfsögðu verið svo undanfarin ár, að misjafnlega mikill fiskur gengur á miðin yfir þennan tíma, hrygningartímann, en að dómi sjómanna hagaði fiskur sér nú á vetrarvertið á allt annan veg en áður hefur verið. Fiskur kom á djúpmið eins og venjulega út af þessum svæðum, og má vitna til þeirra frétta, sem birtust í blöðunum, að togarar fengu þá stundum meira í vörpu sína í einu en dæmi höfðu verið til áður, og bendir það að sjálfsögðu til, að þarna hafi verið um allverulegt fiskmagn að ræða. Hins vegar skeði það, að fiskur gekk nú ekki upp á grunnmiðin, heldur hélt sig á djúpmiðum utan við hrygningarsvæðin, en kom ekki nema í mjög litlu og takmörkuðu magni inn á grunnsvæðin, hrygningarsvæðin. Þetta er mjög óvenjulegt, og fsp. mín til hæstv. ráðh. er um það, hvort á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar hafi farið fram nokkrar athuganir á þessu fyrirbæri.
3. liður hljóðar svo:
Hverjar eru niðurstöður af athugunum Hafrannsóknastofnunarinnar hin síðari ár á þorskstofninum hér við land?
Ég orðaði viljandi þessa fsp. almennt, vildi ekki vera að sundurliða í sérstökum liðum það, sem ég hefði kannske helzt hug á að fá upplýsingar um, því að þessi mál eru kannske nokkuð viðkvæm meðan við stöndum í útfærslunni og erum að vinna að framgangi þess máls, þannig að ég vildi setja það á vald hæstv. ráðh., hvernig hann svaraði þessari fsp., en ég hygg, að það þurfi ekki frekari skýringar við, hvað ég raunverulega meina með henni.