20.12.1971
Sameinað þing: 27. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 705 í B-deild Alþingistíðinda. (512)
1. mál, fjárlög 1972
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Það var rétt hjá hæstv. fjmrh. í ræðu hans síðdegis í dag, að ég lét þess getið við hann að fyrra bragði fyrir helgina, að ég og mínir flokksmenn hér á Alþ. mundum ekki efna til neinna áframhaldandi deilna um fjárlagafrv. almennt við 3. umr., í því skyni að auðvelda þinginu að ljúka störfum sinum á ráðgerðum tíma. Við þetta tel ég mig hafa staðíð og ætla að sjálfsögðu að standa við það. Í orðum mínum við hæstv. ráðh. gat ég hins vegar ekki fallizt á það og féllst heldur ekki á það, að við mundum ekki flytja till. við 3. umr. málsins, eins og mjög algengt er. Slíkar till. hafa þegar komið fram frá fjölmörgum þm., einnig frá Alþfl -mönnum. Við fluttum till., sem ég mælti fyrir í dag í örstuttri ræðu, 6–7 mínútna ræðu. Mér er ljóst, að sú till. er mikilvæg, og ég vona, að efni ræðunnar geti einnig talizt mikilvægt, en í því skyni að standa við orð mín við hæstv. ráðh. hafði ég ræðuna eins stutta og mögulegt var, tel mig hafa sagt það, sem þurfi að segja um málið, og ekki þörf á að taka frekari þátt í umr. um fjárlagafrv. við þessa 3. umr.