20.12.1971
Sameinað þing: 27. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 715 í B-deild Alþingistíðinda. (518)
1. mál, fjárlög 1972
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja tvær brtt. við 3. umr. fjárlaga á þskj. 274, undir lið V og Vl. Önnur brtt., sem ég flyt ásamt hv. 5. þm. Norðurl. e., fjallar um aukið framlag til ferðamála. Ég talaði fyrir þeirri till. við 2. umr. fjárlaga. Þóttist ég færa að henni góð og gild rök. Hæstv. fjmrh. tók máli mínu vel. Hafði ég því nokkra ástæðu til að ætla, að mál þetta yrði athugað milli umr., einkum þar sem hér er um mikilvæga og vaxandi atvinnugrein að ræða að mínum dómi, sem skiptir miklu máli í okkar atvinnumálum. Þessi von mín hefur brugðizt og er því till. endurflutt nú. En ég verð að segja það, að mig undrar nokkuð, að ekki skyldi neitt að þessu hugað í öllu því steypiregni talna og tölvuútreikninga, sem nú flæðir yfir þingsali og þjóðlíf. En till. er nú endurflutt til þess að kanna hug hv. þm. til þessa mikilvæga máls.
Síðari till., sem ég flyt við þessa umr., er við 4. gr. fjárlaga, þar sem rætt er um hafnarmannvirki og lendingarbætur. Er hún á þá leið, að inn verði tekinn nýr liður, til dráttarbrautar í Stykkishólmi, að fjárhæð 2 millj. Í Stykkishólmi starfar myndarleg skipasmíðastöð. Þar er enn fremur dráttarbraut í uppbyggingu, svo að segja í miðjum klíðum, sem gerir við og byggir tréskip. Mér er kunnugt um það, að forráðamenn þessara mála heima fyrir hafa átt ítrekaðar viðræður við þá, sem málum ráða á þessu sviði, m.a. vita- og hafnamálastjóra, margoft á þessu ári. Hafa þeir borið fram sínar beiðnir og óskir um þetta mál. Það má segja, að slíkar óskir þurfi að fara nokkuð langa leið um hendur allmargra manna, hæði sérfræðinga vita- og hafnamála, rn., undirnefndar fjvn. og fjvn. eða fjárveitingavaldsins. Nokkuð er það, að á þessari löngu leið hefur till. orðið úti og verður ekki fundin á úthlutunarskrá fjárveitingavaldsins að þessu sinni. „Víst er þetta löng og erfið leið og lífið stutt og margt, sem út af ber“, stendur þar. Þetta er eigi að síður staðreynd. En þar sem þetta fyrirtæki skiptir miklu máli í atvinnulífi Stykkishólms, veitir mörgum mikla og góða atvinnu og er þarna á hraðri leið uppbyggingar, þá þykir mér sjálfsagt, þótt seint sé, að hreyfa þessu máli, flytja hér till. um þennan nýja lið, þessa hækkun, ef vera mætti, að þessi till. fyndi náð fyrir augum hv. þm. um leið og þeir komast í jólaskapið.