20.12.1971
Sameinað þing: 27. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 733 í B-deild Alþingistíðinda. (531)
1. mál, fjárlög 1972
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Það var eftirtektarvert, þegar hæstv. ráðh. las upphafið að till.: Heiðurslaun listamanna ákvarðist af Alþ. Það er alveg laukrétt. Heiðurslaunin ákvarðast af Alþ., en það segir ekkert í till. um það, að Alþ. skuli ákveða, hvaða menn njóti þessara launa, og ég ætla nú einmitt, að eftir að við höfum fengið þessa skýringu frá hæstv. ráðh., þá sé ekki nokkur maður í vafa um það, að það hafi verið bráðnauðsynlegt að fá hæstv. ráðh. hér upp til þess að gefa þá skýringu, sem hann nú hefur gefið.