20.12.1971
Sameinað þing: 27. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 734 í B-deild Alþingistíðinda. (532)

1. mál, fjárlög 1972

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég skal nú ekki lengja þessar umr., enda hafa þær verið með þeim hætti, að það er ekki ástæða til að fara að deila um það, sem á milli hefur borið, því að tækifæri eru jafnan til þess og ekkert óeðlilegt við það. Það eru aðeins nokkrar spurningar, sem var beint til mín beint, sem ég tel mér nauðsynlegt að svara.

Út af fsp. frá hv. 3. þm. Sunnl. um styrkinn til blaðanna, þá vil ég segja það, að um það hefur ekki verið fjallað í ríkisstj., hvernig með yrði farið í sambandi við kjördæmablöðin, en ég geri ráð fyrir, að það verði a.m.k. ekki nema eitt á hvern flokk í hverju kjördæmi, nema það verði þá innbyrðis skipti hjá flokknum, sem gætu komið þar til greina, en um þetta hafa engar reglur verið settar.

Út af því, sem hv. 1. þm. Norðurl. e. spurði um í sambandi við uppbæturnar á línufisk, þá er því til að svara, að það er reiknað með, að þær gildi allt árið.

Þá eru það fsp. frá hv. 2. þm. Vestf. Í fyrsta lagi um Póst og síma. Það er ekki gert ráð fyrir því að þessu sinni, að þetta fari út í verðlagið né heldur, að það dragi úr framkvæmdum. Það er vonazt til þess, að stofnunin geti komið sínum málum svo fyrir, að það þurfi ekki að hafa áhrif á þetta, en hennar rekstrarmál hafa verið í skipulagningu og athugun, og því er treyst, að a.m.k. á árinu 1972 verði hægt að koma þessu fyrir án þess að það þurfi að draga úr framkvæmdum.

Í sambandi við söluskattinn leiðir það af sjálfu sér, að með þessum hætti verður hann innheimtur mánaðarlega. Síðari hluta ársins er gert ráð fyrir þessu og þýddi það, að í nóv. yrði október- skattur innheimtur og nóvember- skattur í des. í staðinn fyrir, að hann kemur ekki til innheimtu nú fyrr en í febrúar.

Út af þessu, sem hann spurði um varðandi áfengið og tóbakið, hvernig að því skyldi farið að ná í meiri tekjur og draga þó úr drykkjuskap, þá viðurkenni ég, að hv. þm. kom mér í allmikinn vanda, því að honum er kunnugt um kunnáttuleysi mitt í þeirri fræðigrein. En að því er mér er tjáð nú, er það svo, að til er það, sem kallaðir eru mjög sterkir drykkir, og þeir eru nokkuð dýrir, en þeir hafa hins vegar þá náttúru, að þeir eru ekki sú tegund drykkja, sem gefur ríkissjóði beztar tekjur, því að álagningin á þessa sterku og dýrari drykki er tiltölulega miklu minni en á hina, sem eru vægari, en hún hefur ábyggilega þau áhrif, að drykkjuskapur verður meira áberandi. Þess vegna er það mælikvarði þeirra, sem þekkja þar nokkuð til, að ef mjög mikill hluti af áfengissölu sé farinn að vera þessir dýrustu og sterkustu drykkir, þá sé verðið á áfenginu orðið of lágt og auki um leið drykkjuskap. Þess vegna sé það hagkvæmt að hækka verðið, því að þá verði keypt meira af þeim tegundum, sem ekki eru eins sterkar, en gefa ríkissjóði hins vegar meiri tekjur, og þannig er þetta nú sameinað. (Gripið fram í: Á ráðh. við ...„) Ég kann nú ekki nema takmörkuð skil á tegundum, en vel má vera, að hann sé þar í.

Svo skal ég enda þessi orð mín með því að þakka hv. fjvn. fyrir hennar störf og hagsýslustjóra í sambandi við afgreiðslu þessara fjárlaga og hv. alþm. fyrir þessa umr., sem hefur farið fram með friði og spekt.