16.12.1971
Neðri deild: 27. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 782 í B-deild Alþingistíðinda. (565)

127. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Ég vil af tilefni ræðu hæstv. forsrh., sem hefur beint hér fjölda spurninga til stjórnarandstöðunnar um önnur mál en þau, sem hér eru á dagskrá, spyrja forseta, hvort dagskrármálið hafi verið tekið út af dagskrá, en hér séu til umr. fjármál, kjaramál og önnur mál.