07.03.1972
Neðri deild: 47. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 805 í B-deild Alþingistíðinda. (579)
127. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. meiri hl. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Þessu máli var vísað til fjhn. skömmu fyrir jól í vetur. N. tók frv. þá þegar fyrir á fundi og sendi það til umsagnar ýmsum samtökum atvinnuvega og almennra skattþegna, eins og nánar greinir í nál. meiri hl. Eftir að þing kom saman á ný að loknu jólaleyfi, hafa fjhn. beggja þd. fjallað um málið á allmörgum sameiginlegum fundum. Ýmsir sérfræðingar í skatta- og efnahagsmálum hafa setið þessa fundi með n., látið í té tölulegar upplýsingar, gefið ábendingar um tæknileg atriði og svarað fsp. nm. Fjhn. þessarar hv. d. hélt svo að lokum fundi ein út af fyrir sig, og eins og fram kemur á þskj. 392, varð n. ekki sammála um afgreiðslu málsins. Meiri hl. leggur til. að frv. verði samþ. með þeim breyt., sem bornar eru fram á þskj. 393, 1. minni hl. leggur til, að því verði vísað frá með rökst. dagskrá, og 2. minni hl. vill vísa því til ríkisstj., en flytur þó einnig brtt. til vara. Áður en ég sný mér að því að gera grein fyrir brtt. meiri hl., vil ég með örfáum orðum rifja upp aðdraganda málsins.
Í málefnasamningi stjórnarflokkanna er ákveðið að endurskoða skiptingu verkefna og valds milli ríkis og sveitarfélaga í þeim tvíþætta tilgangi að auka sjálfsforræði byggðarlaganna og gera skiptingu greiðslubyrða milli ríkis og sveitarfélaga einfaldari og um leið ákveðnari en hún hefur verið nú um langt skeið. Þá er kveðið á um endurskoðun tryggingalöggjafar í því skyni að tryggja öllum þjóðfélagsþegnum lífvænlegar lágmarkstekjur, um leið og horfið verði frá því að afla tekna til tryggingakerfisins með persónusköttum án alls tillíts til efnahags. Í málefnasamningnum er jafnframt kveðið á um endurskoðun á tekjuöflunarleiðum hins opinbera í heild með það fyrir augum, að skattabyrðinni verði dreift réttlátlegar en nú er gert og beinir skattar verði ekki lagðir á þær tekjur, sem einungis hrökkva fyrir allra brýnustu lífsnauðsynjum.
Ríkisstj. hófst þegar handa um að móta þessa stefnu í verki, bæði með skipun mþn. í skattamálum ríkisins og tekjustofnamálum sveitarfélaga og svo með beinum stjórnaraðgerðum. Vegna þess að viðfangsefni Tryggingastofnunarinnar, sveitarfélaganna og ríkissjóðs gripa með ýmsum hætti hvert inn í annað, varð að taka þessa þrjá þætti til athugunar alla í senn, og það hefur verið gert. En vegna þess hins vegar, hve málið í heild var margslungið, var vart framkvæmanlegt annað en vinna fyrirhugaðar breytingar að nokkru í áföngum, og það er ríkisstj. einnig að gera.
Þegar hér er komið sögu nú í dag, þá er m.a. búið að gera eftirtaldar ráðstafanir í þá átt, sem stjórnarsáttmálinn lýsir um þessi atriði: hækka lífeyrisgreiðslur trygginganna, lögbinda lágmarkstekjutryggingu, fella niður persónuskatta, svo sem námsbókagjald, iðgjöld til lífeyristrygginga og sjúkrasamlaga, flytja þær greiðslur, er sveitarfélögin hafa innt af höndum vegna löggæzlu og lífeyristrygginga, yfir á ríkissjóð að fullu og greiðslur vegna sjúkratrygginga að hálfu, og það er búið að tryggja landshlutasamtökum sveitarfélaga starfsfé, um leið og gerðar hafa verið ráðstafanir til þess að hasla þessum samtökum völl í löggjöf. Þessi örfáu dæmi um heinar stjórnaraðgerðir og sumpart löggjöf, sem nú þegar hafa verið gerðar, læt ég nægja.
Frv. til nýrrar löggjafar um tekjustofna sveitarfélaga er nú til meðferðar í hv. Ed., og hér í hv. Nd. er samtímis fjallað um frv. það, sem hér liggur nú fyrir um tilteknar breytingar á lögum um tekju- og eignarskatt. Það er sameiginlegt með báðum þessum frv., að þau eru í senn óhjákvæmileg og sjálfsögð afleiðing þeirra breytinga, sem þegar hafa verið gerðar á tryggingalögunum, og þau eru áfangi, en aðeins áfangi á þeirri braut, sem ríkisstj. markaði í upphafi, að því er varðar heildarendurskoðun á tekjuöflunarkerfi hins opinbera og verkaskiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga. Endurskoðun tekjuöflunarkerfisins heldur áfram, og verður leitazt við að ljúka henni á þessu ári.
Frv. það, sem hér liggur fyrir, fjallar aðeins um tiltekna, afmarkaða þætti tekju- og eignarskattslaganna. Hæstv. fjmrh. gerði við 1. umr. málsins ítarlega grein fyrir efni þess í heild og í einstökum gr., og þá fóru einnig fram mjög ítarlegar almennar umr. um frv. Ég mun því í þessari framsögu einkum leitast við að gera grein fyrir þeim breytingum, sem meiri hl. fjhn. leggur til, að gerðar verði á frv., sbr. þskj. 393.
1. brtt. á þessu þskj. er við 3. gr. frv., þar sem rætt er um vexti af stofnsjóðsinnstæðum samvinnufélaga. Til þess að taka af öll tvímæli er lagt til, að síðasti málsliður 2. töluliðar þessarar gr. orðist svo:
„Undanþegnir skattskyldu eru þó vextir af skattfrjálsum sparisjóðsinnlánum samkv. 21. gr. og vextir af stofnsjóðsinnstæðum félagsmanna í samvinnufélögum.“
Það þótti öruggara að orða þetta svona til þess að taka af öll tvímæli.
2. brtt. á þessu þskj. felur í sér umorðun á 4. gr. frv., sem aftur er umorðun á 9. gr. laganna. Þessi breyting er einnig gerð til þess að gera ákvæði þessarar gr. gleggri og taka af hugsanleg tvímæli við framkvæmd laganna. En ég sé ekki ástæðu til þess að fara nánar út í þetta í einstökum atriðum.
3. brtt. fjallar um sérstakan frádrátt fiskimanna. Er hún þess efnis, að við 14. gr. laganna, en hún fjallar sérstaklega um skattlagningu sjómanna, skuti bætast ný mgr. á þá lund, að auk frádráttar samkv. 1.–4. mgr. skuli frá öllum beinum tekjum sjómanna af fiskveiðum á íslenzkum fiskiskipum draga 8% teknanna, áður en skattur er á þær lagður. Tilgangur þessa ákvæðis er auðséður og þarfnast ekki frekari skýringa hér, að ég hygg.
Þá eru í fjórða lagi tvær brtt. við 6. gr. frv. Fyrri brtt. má skoða sem leiðréttingu, og það er raunar sama að segja um þá seinni, að hún er nánast leiðrétting á orðalagi. Það þykir skýrara og réttara að nota þarna orðalagið „þessara sérstöku fyrninga“, en ekki „hámarksfyrningar“, eins og var í frv.
5. brtt. á þskj. er við 7. gr. Með henni er lagt til að gera þrjár efnisbreytingar á 7. gr. frv., sem er um persónufrádrættina. Í frv. er persónufrádráttur einstaklinga settur 140 þús. kr., en 145 þús. í brtt. Það er hækkun frá gildandi lögum um 11 þús. kr. eða 8.2%. Samkv. frv. hækkar frádráttur hjóna frá gildandi lögum um 32 þús.
kr. eða 17%, og ef þau telja fram sitt í hvoru lagi, þá um 16 þús. kr. Í brtt. meiri hl. fjhn. er lagt til, að frádrátturinn hækki í síðarnefnda tilvikinu um 51 þús. eða 54.3% fra gildandi lögum.
Þriðja breytingin, sem meiri hl. leggur til. að gerð verði á 7. gr. frv., er sú, að sérstakur frádráttur vegna einstæðra foreldra verði 60 þús. kr. að viðhættum 6 500 kr. fyrir hvert barn. Þessar fjárhæðir eru í gildandi lögum 40 500 kr. og 5 400 kr. Hækkun á einstakling nemur 19 500 kr. eða 48. 1% og á hvert barn 1 100 kr. eða 20.4%.
Þá er ég kominn að 6. brtt., en hún er við 10. gr. frv. Samkv. þeirri brtt. verða stigin í álagningu tekjuskatts þrjú. Af fyrstu 50 þús. kr. skattgjaldstekjum greiðist 25%, af tekjum 50–75 þús. kr. greiðist 35% og af tekjum yfir 75 þús. kr. greiðist 44%. En samkv. frv. eru tekjubilin aðeins tvö, og hæsta skattprósenta samkv. því er 45%.
Þá er enn lagt til, að við 10. gr. frv., er vísar til 25. gr. laganna, hætist nýr tölul., sem verður IV. í lögunum, um sérstakan frádrátt á lægsta tekjubili gjaldenda 67 ára og eldri. Í þeirri brtt. segir, að tekjuskattur aldraðra, 5 000 kr. eða lægri, skuli felldur niður og tekjuskattur þeirra á bilinu 5–10 þús. kr. skuli lækka þannig, að lækkunin réni í beinu hlutfalli við hækkun tekjuskatts. Þetta síðastnefnda ákvæði þýðir í framkvæmd t.d., að 6 000 kr. skattur skv. almennu reglunni yrði í þessu tilviki 2 000 kr., 7 000 kr. yrði 4 000, 8 000 yrði 6 000 og 9 000 kr. skattur samkv. almennu reglunni yrði 8 000 kr. Aðrar skatttölur á nefndu bili mundu lækka á sama hátt eða í sama hlutfalli og þessi dæmi, sem ég nefndi.
Loks er svo brtt. við í I. gr. frv., þ.e. 7. brtt. á þskj. 393, og er um stiga eignarskatts í 26. gr. laganna. Hér er lagt til að í staðinn fyrir 0.4% í frv. komi 0.6% og í staðinn fyrir 0.8% komi 1%. Þetta varðar eignarskatt einstaklinga. Þá er lagt til, að eignarskattur félaga hækki frá frv. úr 1.2 í 1.4%.
Þá hef ég — í mjög stuttu máli að vísu — gert grein fyrir brtt. meiri hl. fjhn.
Skal ég nú víkja að því, hvaða áhrif þessar breytingar, ef samþykktar verða, þær er varða skattaupphæðir, hafa á tekjuvon ríkisins, og er þá miðað við innheimtutölur. Að sjálfsögðu byggist það, er hér verður greint, á áætlunum eins og allt annað, sem þetta mál varðar, og hefur hagrannsóknadeild Framkvæmdastofnunar ríkisins annazt þá útreikninga. Vilja þeir, er það starf hafa annazt, að sjálfsögðu hafa á alla eðlilega og venjulega fyrirvara fyrir slíkum áætlanagerðum, því að alltaf verður í ýmsum tilvikum að byggja á líkum, þegar þess hattar störf eru unnin.
Ég nefni fyrst sérstakan 8% frádrátt fiskimanna samkv. 2. brtt. meiri hl. Það er áætlað, að tekjutap ríkissjóðs vegna þessa ákvæðis sé um 40 millj. kr. Þess má geta, að áætlaður fjöldi fiskimanna á þessu ári er 5 þús. manns, þ.e. á því tekjuári, sem hér um ræðir, 1971. Hækkun persónufrádráttar einstaklinga úr 140 þús. í 145 þús. kr., er talið, að kosti ríkissjóð um 34 millj. kr. lækkun, hækkun frádráttar einstæðra foreldra um 7 millj. kr. Breyting á stigum tekjuskatts þýðir lækkun á frv., sem nemur um 102 millj. kr. Og niðurfelling og sumpart lækkun á tekjuskatti aldraðra með minna en 10 þús. kr. skatt samkv. almennu reglunni kostar í innheimtu á þessu ári um 3 millj. kr. Loks er svo þess að geta, að hækkun eignarskatta samkv. síðustu brtt. meiri hl. fjhn., er áætlað, að nemi um 41 millj. kr. miðað við frv., eins og það var lagt fram.
Áætlanir um tekjuöflun ríkissjóðs samkv. frv. þessu voru byggðar á því, að tekjur gjaldenda hækki frá árinu 1970–1971 um 21.5%. Í 3. gr. fjárlaga fyrir yfirstandandi ár eru tekjur af eignarsköttum áætlaðar alls 252 millj. kr. og af tekjusköttum alls 3 158 millj. Að samþykktum till. meiri hl. fjhn., sem ég hef hér verið að lýsa, lækka þessar tölur í heild um u.þ.b. 146 millj. kr. Hversu þetta skarð í tekjuáætlun fjárlaga verður fyllt, er nú í athugun hjá hæstv. ríkisstj. Ég minni aftur á það, að talan 146 er miðuð við innheimt gjöldin, en þegar tekinn er álagður skattur eða álögð gjöld, þá er mismunurinn um 215 millj. kr. Á þessu er alltaf nokkur mismunur yfir áramótin. Það hefur þannig verið með þessi mál höndlað, þetta er reiknað þannig út, og þessi mismunur verður öllu meiri, þegar um er að ræða þyngjandi ákvæði, eins og hér er í sumum tilvikum, sem leiðir af sjálfu sér, þar sem miklir gjaldapóstar eru nú færðir yfir á ríkissjóðinn frá öðrum aðilum.
Við 1. umr. þessa máls var m.a. mikið rætt um áhrif fyrirhugaðra breytinga á tekjuöflunarkerfinu á skattbyrði einstaklinganna í heild, og ætla ég hvorki að fara að rifja upp þær umr., er þá fóru hér fram, né víkja að þeirri fræðslustarfsemi margvíslegri, sem hv. stjórnarandstæðingar hafa haft í gangi í blöðum og á mannfundum síðan fyrir jól. En ég vil greina nokkrar tölur varðandi skattalega stöðu gjaldþegnanna, sem fela í sér samanburð á hinu nýja kerfi og því gamla. Hér verður enn að hafa á alla fyrirvara, og virðist einkum rétt að benda á það alveg sérstaklega, að þar sem hér er yfirleitt um að ræða tölur byggðar á meðaltölum, þá henta þær ekki sem dæmi upp á skattbyrði tiltekinna einstaklinga, vegna þess að tilvikin í skattlagningunni eru svo ótalmörg. En ég ætla hins vegar, að þessar tölur gefi nokkra mynd af þeirri heildarþróun skattheimtunnar, sem verða mun að hinu nýja skattkerfi samþykktu.
Í upplýsingum frá hagrannsóknadeild frá 6. þ. m. er leitazt við að gera samanburð á heildarskattfjárhæðum í gamla kerfinu miðað við skattvísitölu 106.5 og í nýja kerfinu eftir breytingar á frv. Þegar tekinn er samanburður á því, sem þeir kalla hér tilvik 1 í eldra kerfinu og hugmynd 2 í því nýja, sem þeir telja skynsamlegasta samanburðinn, þá segir, að eftir breytingar á frv. sé heildarskattbyrðin nánast óbreytt frá eldra kerfi, eða =44 millj. kr. Skattbyrði einstaklinga lækkar um 120 millj. kr., en skattbyrði félaga hækkar um 77 millj. kr. Meginbreytingin er hækkun skatta á eignum, 474 millj. kr., vegna hækkunar fasteignaskatta og hækkunar á eignarskatti félaga, m.a. vegna hins nýja fasteignamats, en aðrir skattar lækka aftur að sama skapi.
Hreyfing sú, sem verður hjá einstaklingunum að frv. samþykktu, þýðir í stórum dráttum lækkun skatta á lægstu tekjubilunum, en þynging þeirra á hinum efri. Á yfirliti, sem ég hef fengið frá hagrannsóknadeildinni um skattajafnvægispunkta, kemur m.a. þetta í ljós: Fyrst er greint frá hjónum, barnlausum hjónum, þá er punkturinn 670 þús. kr., allt eftir breyt. á frv. í þá stefnu, sem felst í brtt. meiri hl., hjón með eitt barn 700 þús. kr., hjón með tvö börn 750 þús. og með 4 börn 880 þús., einstaklingur 350 þús., einstætt foreldri með eitt barn 490 þús. og með tvö börn 550 þús. í nýja kerfinu er hér reiknað með útsvörum án álags, og sleppt er öllum eignar- og fasteignasköttum. Talið er, að þegar þeir eru teknir með í reikninginn, þá megi reikna með því, að þessir jafnvægispunktar, sem ég hef núna nefnt, lækki um a.m.k. 100 þús. kr. hjá hjónum. Þetta sýnir, að það næst, sem að er stefnt, að lækka nokkuð álögin á lægstu tekjubilunum, en vitanlega þýðir það þá einnig nokkra þyngingu á hinum hærri.
Ég vil aðeins víkja að örfáum punktum öðrum í sambandi við áhrif hins nýja kerfis á skattbyrði einstaklinganna og þá einkum að þeim, sem mikið hafa verið ræddir í umr. manna um þessi mál nú að undanförnu. Ég vil fyrst aðeins minnast á tekjur eiginkonu. Menn hafa mikið velt því fyrir sér, hvort skattaleg staða hjóna, þegar eiginkona vinnur úti, mundi versna, batna eða standa í stað við þær breytingar, sem nú er verið að gera. Hér er erfitt að greina frá og spá í eyður af nokkurri nákvæmni. En ýmislegt er þó augljóst. Það er t.d. augljóst, að það er leyfður sami frádráttur og áður til tekjuskatts. Einnig er augljóst það, sem gerist í sambandi við álagningu útsvara, að í staðinn fyrir, að áður mátti reikna með, þar sem hjón ynnu bæði, að útsvörin kæmust upp í hæsta bil, sem þá var 30%, og kom þá 30% á helming af tekjum konu, þá er nú gengið út frá 10% útsvörum, sem koma á öll launin. Þetta út af fyrir sig er ekki til óhagræðis. En það er margt fleira en þetta, sem grípur þarna inn í, og erfitt er að meta þetta nákvæmlega. Ég hygg, að það megi þó fremur reikna með þyngingu í heild, ef um háar tekjur er að ræða, en ekki á lægri tekjubilum. Þess er að geta, að það eru tekin inn í frv. núna ákvæði; sem auðvelda hjónum að telja fram sitt í hvoru lagi, sbr. 5. brtt. meiri hl., þar sem kveðið er á um, að ef hjón telji fram sitt í hvoru lagi, þá skuli þau hvort um sig njóta frádráttar eins og einstaklingar væru. Á þetta er vert að benda. Og ég hygg nú, að það sé sammæli margra hv. alþm., bæði í stjórnarliði og stjórnarandstöðu, og það hefur m.a. komið fram bæði í ræðum núv. hæstv. fjmrh. og í ræðu fyrrv. fjmrh., þegar hann mælti fyrir skattalagabreytingu í fyrra, að að þessu beri að stefna. Ég hygg, að þetta verði eitt af þeim atriðum, sem mjög verða skoðuð, þegar áfram verður haldið við endurskoðun tekjuskattslaganna nú fram að næsta þingi.
Það verða vitanlega mörg fleiri vandamál, sem ekki eru afgreidd nú, en verða tekin til skoðunar á þessu tímabili. Mér kemur í hug t.d. meðferð húsaleigu til skatts. Nú hafa verið gerðar með reglugerð breytingar á því, hvernig viðhald og fyrning húsa verði reiknuð til skatts, og á mati á eigin húsaleigu. Við athugun í n. í Ed. mun hafa verið tekin ákvörðun um það af meiri hl. að leggja til, að eigin húsaleiga verði ekki útsvarsskyld. Hins vegar hafa ekki verið tekin upp nein frádráttarákvæði varðandi húsaleigu þeirra, er leigja hjá öðrum. Ákvæðin varðandi húsaleiguna í heild, hvernig með hana skuli fara til skatts, verða sérstaklega tekin til meðferðar við áframhaldandi endurskoðun á því tímabili, sem fram undan er.
Það má aðeins víkja að skattlagningu einstæðra foreldra í þessu sambandi. Það er viðkvæmt mál og hefur verið mjög umdeilt á undanförnum árum, á hvern veg einstæðir foreldrar hafi farið út úr skattamálum sínum. Eftir fyrirhugaðar breytingar á frv. um tekjustofna sveitarfélaga og um tekjuskatt greiðir einstætt foreldri með eitt barn og um 400 þús. kr. brúttótekjur jafn háa skatta af tekjunum, hvort sem er eftir gömlu eða nýju kerfi, en á lægri tekjunum er um nokkra lækkun að ræða, t.d. 5–6 þús. kr. skattalækkun á 200–300 þús. kr. brúttótekjum, segir í skýringum frá hagrannsóknadeild. Það kemur í ljós þarna, eins og yfirleitt þegar litið er á þessar breytingar, að það er um lækkanir að ræða á lægri tekjubilunum, en ekki þegar ofar dregur. Ég veit, að um þetta atriði eru mjög skiptar skoðanir, og ég tel eðlilegt, að það verði tekið til alveg sérstakrar athugunar við áframhaldandi endurskoðun málsins. Menn hljóta að stefna að því, að einstæðum foreldrum sé ekki íþyngt skattalega. En hins vegar hljóta menn einnig að hafa það sjónarmið í huga, að ekki sé gengið óeðlilega langt í ívilnunum til þessara aðila, þannig að það sé talið hagkvæmara skattalega séð, en þegar hjón búa saman. Það væri óeðlilegt að sjálfsögðu.
Það hefur töluvert verið rætt um aðstöðu skólaæskunnar í sambandi við skattamálin. Í plaggi frá hagrannsóknadeildinni segir á þessa leið um skattalega stöðu skólaunglinga:
„Samkv. eldra kerfi greiddu skólaunglingar yfirleitt almannatrygginga- og sjúkrasamlagsgjöld, en þau hefðu trúlega orðið um 12–14 þús. kr. á árinu 1972. Samkv. nýju kerfi greiða einhleypir ekki skatt af lægri tekjum en 60 þús. kr., og af 100 þús. kr. greiðast hjá skólaunglingunum, eftir að skyldusparnaður hefur verið tekinn til greina, 3–6 þús. kr. eftir nýja kerfinu, en hefðu orðið 14–16 þús. kr. eftir því eldra, ef persónugjöldin eru talin með, sem að sjálfsögðu verður að gera.“
Hliðstæðar tölur fyrir 150 þús. kr. tekjur, sem eru sennilega nánast hámarkstekjur skólaunglinga, eru 8-10 þús. kr. samkv. nýja kerfinu, en 21–23 þús. kr. samkv. því eldra. Hér kemur glögglega í ljós, að stefnir í það horf, sem um ræðir í stjórnarsáttmála, að létta sköttum af þeim, sem minnstar tekjur vinna sér inn, því að varla er það umdeilanlegt, að fólk, sem stundar skólanám, er ekki fært um að greiða skatta af eigin vinnutekjum sínum. Vinnutíminn er svo stuttur, að slíkt væri óhugsanlegt.
Þá hefur einnig mikið verið rætt um skattalega stöðu aldraðra, og það er vitnað mjög í ákvæði, sem sett voru í lög í fyrra um aukafrádrátt fyrir fólk, sem náð hafði 67 ára aldri á skattárinu. Það er nú ekki hægt annað en benda á, að það er ódýr lausn eftir 12 ára setu í ríkisstj. að taka þá upp sérstakan frádrátt fyrir aldraða og á þann hátt, sem þarna er gert. Ég kem kannske að því síðar. En það var svo að sjá í fyrra, þegar þetta mál var hér til meðferðar, að þeir, sem það fluttu, hefðu ekki gert sér grein fyrir, hvað þetta kostaði. Á það er að benda, að það, sem þarna er gert, nær til allra aldraðra. Og það eru mjög skiptar skoðanir um, hvort það sé eðlilegt, að menn njóti sérstaks frádráttar eingöngu vegna aldurs, og að tekjuhátt fólk, þótt aldrað sé, hafi mjög stóra frádrætti í sköttum, á meðan leggja þarf á skatta í þeim mæli, sem gert er hér á landi. Áðan, þegar ég sagði frá brtt. meiri hl., greindi ég frá þeim ákvæðum, sem gilda um niðurfellingu og lækkun skatts á lægsta skattbili hjá öldruðu fólki. Ég vil aðeins árétta það, að með þeim ákvæðum kemur lækkunin til góða á lægsta bilinu, og um leið minna á það, að sett hafa verið ákvæði í lög um lágmarkstekjutryggingu fyrir aldrað fólk, og eins og nú yrði um hnúta búið, ef samþ. yrði það frv. og þær brtt„ sem hér liggja fyrir, þá eru þessar lágmarkstekjur algerlega undanþegnar skatti og rúmlega það, því að ég ætla, að aldrað fólk mætti vinna sér inn nokkra tugi þús. til viðbótar, eða umfram lágmarkstekjutrygginguna, áður en til skattgreiðslu kæmi.
Ég held, að ég fari nú ekki nánar út í það að bera saman einstök atriði á þennan hátt. Ég held það megi öllum vera ljóst, sem athuga þessi mál af nokkurri sanngirni, að með þeirri meginbreytingu, sem verður með niðurfellingu persónuskattanna og raunar fleiri aðgerðum, sem ríkisstj. nú er að beita sér fyrir, þá er stefnt að réttlátari dreifingu skattbyrðarinnar heldur en átt hefur sér stað að undanförnu. Og það þokast nær því marki, er óhætt að segja a.m.k. að leggja ekki beina skatta á þær tekjur, sem einungis hrökkva fyrir allra brýnustu lífsnauðsynjum fólks. Niðurfelling söluskatts af nokkrum slíkum þáttum þjónar vitanlega sama tilgangi. Hitt er svo önnur saga, að skattbyrðin í heild minnkar ekki, og það þarf engum að koma það á óvart, sem fylgist með gangi mála.
Það er vægt til orða tekið, að fráfarandi ríkisstj. fór nokkuð frjálslega með fjárlögin og ríkiskassann í lokin og hikaði ekki við það, stjórnin og stjórnarliðið, að taka ákvarðanir fyrir kosningar, sem hlutu að kosta stórfé, án þess að gera um leið ráðstafanir til tekjuöflunar, og hafði lag á því að láta það biða næsta árs. Og það þarf engum að koma á óvart, þó að nokkuð þyngi á, þegar fjárlög eru afgreidd nú. Þetta hefur verið rakið nokkuð glögglega hér í umr. áður, og ef ástæða þykir til síðar, þá má gera það enn. En þannig var þetta.
Það þarf heldur enginn að fara í grafgötur um það, að núverandi stjórnarflokkar hyggja ekki á kyrrstöðu í málefnum lands og þjóðar, heldur stefna þeir að auknum framförum og uppbyggingu á ótalmörgum sviðum, eins og fram hefur komið, bæði í þeirra málefnasamningi í upphafi og þeim málatilbúnaði og störfum, sem unnin hafa verið fram til þessa. Og það er víst, að það kostar fjármuni að sinna þeim málum.
1. minni hl. fjhn. hefur skilað áliti á þskj. 395. Þar gefst hv. alþm. á að líta um úrræði hans. Höfuðúrræðið er að vísa þessu máli frá með rökst. dagskrá. Nú fjallar þetta frv. um einn meginþáttinn í tekjuöflun ríkissjóðs á yfirstandandi ári, og það er að einum þræði alveg óhjákvæmileg afleiðing af gerðum Alþ. á öðrum sviðum, þ.e. breytingum almannatryggingalaganna, sem afgreidd voru hér fyrir áramótin, og hv. sjálfstæðismenn, þ. á m. þeir, sem nú hafa skilað þessu áliti, sem vafalaust er í samræmi við stefnu flokksins, studdu svo sem venja er margvíslegar hækkanir á útgjaldahlið fjárlaga og þeir fluttu ósmáar till. einnig um meiri hækkanir. En nú leggja þeir til að vísa þessu tekjuöflunarfrv. frá. Ég sé ekki, að þeir bendi á leiðir til tekjuöflunar í staðinn. Ég verð nú að segja það, að mér finnst þessi framkoma heldur bágborin og ekki við hæfi þeirra ágætu hv. þm., sem að þessu nál. standa, né heldur sæmandi fyrir stærri stjórnarandstöðuflokkinn.
Hv. 2. minni hl. hefur þó tilburði í sínu nál., þó að hann leggi til að vísa frv. til ríkisstj., um að klóra í bakkann og gefur í skyn, að hann mundi standa að tekjuöflun til þess að mæta því, sem niður hefur verið fellt af innheimtu til almannatrygginganna. Það er á því sá meginmunur þó. En þetta er kannske ekki í neinu sérstöku ósamræmi við það, sem áður hefur komið fram og ég aðeins vék hér að, við viðskilnað á fjármálum ríkissjóðs að ákveða útgjöldin án þess að gera fyrir þeim tekju megin, og einnig hitt, sem er alveg í stíl við þetta, að fleygja hér inn frv. — og fá það samþykkt um breytingar á tekjuskattslögum, sem þýtt hefði stórfellt tekjutap fyrir ríkissjóð, án þess að gera nokkra grein fyrir því þá, þegar það var flutt hér, því að það kom ekki fram, hvorki í framsöguræðu fjmrh. þá né framsöguræðu frsm. meiri hl. þá, hvað það raunverulega þýddi fyrir ríkissjóðinn. Það var ekki haft fyrir því að upplýsa þm. einu orði um það. Kannske þarf manni ekki að koma á óvart þessi afgreiðsla nú, þegar þetta er haft í huga.
Ég vil að lokum árétta það, að þetta frv. er aðeins einn áfangi, það er leiðrétting á nokkrum agnúum núgildandi löggjafar, um leið og það er samræming við gerða hluti í tryggingakerfinu og samræming við það frv., um tekjustofna sveitarfélaga, sem nú er til meðferðar í hv. Ed. Endurskoðun tekjuöflunarkerfisins í heild verður svo haldið áfram.
Herra forseti. eins og ég hef þegar tekið fram, leggur meiri hl. fjhn. til, að frv. verði samþ. með þeim brtt., sem meiri hl. flytur á þskj. 393.