07.03.1972
Neðri deild: 47. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 850 í B-deild Alþingistíðinda. (586)

127. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. meiri hl. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Ég er nú búinn að hlýða á alllangt mál hjá hv. stjórnarandstæðingum, og það er alveg augljóst, að þeir þykjast vilja draga úr skattlagningunni, en ég held, að þótt leitað væri með logandi ljósi í öllum þeim málflutningi, sem nú hefur heyrzt, þá fyndu menn ekki nokkurt atriði um það, hvernig þeir ætluðu sér að bæta upp það, sem niður á að fella.

Ég kann ekki við það, sem hv. þm. Bragi Sigurjónsson sagði, að ég hefði í framsöguræðu minni borið saman kerfin, gömlu og nýju, án þess að taka tillit til eignarskattanna. Þetta er ekki rétt. Það, sem ég bar saman almennt, var á þann hátt, að ég greindi frá skattajafnvægispunktunum, og þá gat ég jafnframt um áhrif eignarskattanna, og þetta var aðalatriðið í þeim samanburði, sem ég gerði. En þar að auki vék ég svo að nokkrum einstökum afmörkuðum þáttum málsins, og þar var heldur ekkert falið. Það fór eins fyrir hv. 1. þm. Reykn. Hann segir, að ég hafi haldið því fram, að frv. stefndi að skattalækkun. Ég sagði það aldrei, þetta er alveg út í bláinn mælt. Ég get aðeins rifjað upp það, sem ég sagði um þetta, orðrétt. Það var þannig: „Af þessu má sjá, að með niðurfellingu persónuskattanna og fleiri aðgerðum, sem ríkisstj. beitir sér fyrir, er stefnt að réttlátari dreifingu skattbyrðarinnar, og það þokast nær því marki að leggja ekki beina skatta á þær tekjur, sem einungis hrökkva fyrir allra brýnustu lífsnauðsynjum.“ Og ég sagði einnig: „Hitt er svo önnur saga, að skattbyrðin í heild minnkar ekki, og þarf það engum að koma á óvart.“

Ég minntist á viðskilnað fyrrv. stjórnar, og ég gat þess enn fremur, að það þyrfti enginn að fara í grafgötur um það, að núv. stjórn ætlaði sér ekki að koma hér á neinu kyrrstöðutímabili í málefnum lands og þjóðar, heldur stefndi að auknum framförum og uppbyggingu á mörgum greinum þjóðlífsins, en slíkt kostar peninga, sagði ég í minni framsöguræðu.

Hv. frsm. 1. minni hl. talaði mikið um, að það hefði gengið seint með frv., síðan þau komu fram fyrir jól. En það var nú dálítill tvískinnungur í hans málflutningi, því að ýmist talaði hann um seinaganginn ellegar þá um flýtisverk, og þar rak sig eitt á annars horn. Hann hafði um þetta dálítinn gamanþátt hér, talaði um erfiðar fæðingar o.s.frv. En hann var ekki að rifja upp 12 ára baslið Viðreisnarinnar við það að koma einhverju lagi á skattalögin og hvaða niðurstaða varð af því, en ég kem kannske aðeins að því síðar. En svo kemur það í ljós, rétt eftir að þessi hv. þm. er farinn héðan úr ræðustól, að þá koma hv. sjálfstæðismenn hver um annan þveran til ráðh. að biðja þá um frest um einn dag. Þó voru þeir búnir að semja um það fyrir nokkrum dögum að ljúka 2. og 3. umr. í dag og á morgun, en nú koma þeir og biðja um frest. Og það er af því, að þeir hafa ekki á öllum tímanum síðan um jól getað hnoðað saman þessum brtt., sem þeir nú ætla að flytja við 3. umr. málsins. Ég held, að þeim komi ekkert svo á óvart nú í þessu máli, að þeir hefðu ekki átt að geta haft tilburði til þess að hafa þetta tilbúið nú, ég get ekki skilið það. (Gripið fram í.) Já, ég held það sé nú raunar ekki hægt að vera hneykslaður á málflutningi hv. 2. þm. Vestf. eftir þá skemmtilegu ræðu, sem hann flutti hér, en manni þykir þetta kyndugt.

Ég verð að víkja að því, sem fram kemur í nál. 2. minni hl. fjhn., þar sem rætt er um vinnubrögð þingsins og vinnubrögð í fjhn. þessarar hv. d., sem að þessu máli vann í samstarfi við fjhn. Ed. Það segir hér í þskj., að hvað eftir annað hafi verið boðað til funda, sem síðan hafi orðið að fresta, vegna þess að till., sem vænzt hefði verið, að gætu legið fyrir, reyndust ekki fullunnar. Ég kannast ekkert við þetta. Það hefur stundum orðið að hverfa frá því að boða fundi, en það hefur þá verið af því, að það hefur verið erfitt að finna tíma, sem allir þeir mörgu hv. þm., sem áttu sæti í þessum báðum n., gátu mætt á, en ekki út af hinu. Og það er heldur ekki rétt, að það hafi hvað eftir annað verið frestað boðuðum fundum. Ég get ekki komizt hjá því í þessu sambandi, þó að þessi hv. þm., sem þetta nál. gefur út, sé ekki viðstaddur, að minna á það, sem haft var eftir þessum hv. þm. í Visi 9. febr., þar sem segir, að þá hafi enginn fundur verið haldinn í fjhn. um þetta mál og aðeins einn verið boðaður, sem síðan hafi verið afboðaður. Það er nú svona og svona að fara með það í blöð, þó að mistök verði hjá starfsmönnum þingsins eða jafnvel hjá þm. sjálfum um afboðun á fundi fjhn., það er ekki til fyrirmyndar. Og það er a.m.k. alveg óþarfi og raunar fráleitt að segja það, að enginn fundur hafi verið haldinn í fjölmennri þingnefnd, þegar hafa verið haldnir þar tveir bókaðir fundir, og það er einnig alveg óþarfi að segja, að á tilteknum fundi hafi enginn mætt af hálfu stjórnarandstöðunnar, því að það er líka rangt. Það mætti þar einn þm. Alþfl., hv. 5. þm. Reykn. Það er ekki hægt annað, þegar svona rangfærslum um vinnubrögð þingsins og þingnefnda er varpað fram í prentuðu þskj., en að víkja að þessum hlutum. Þetta er mjög óheppileg málsmeðferð, svo að ekki sé meira sagt um það.

Annars verður að segja það um málflutning Alþfl.- manna í þessu máli, að hann er þó miklu nær því að mótast af einhverri ábyrgðartilfinningu en málflutningur sjálfstæðismanna. Það er að vísu lagt til að vísa frv. til ríkisstj., en það er boðið upp á þátttöku í tekjuöflun vegna ýmissa aðgerða og á ýmsan hátt látíð að því liggja, að Alþfl.-menn vilji standa við gerðan hlut.

Ég vil aðeins víkja nánar að málflutningi hv. 1. minni hl., að málflutningi sjálfstæðismanna. Nál. þeirra er í kapítulum. Í I. kapítula er rætt um ágæt vinnubrögð Viðreisnarinnar í skattamálunum, og enn fremur er þess getið þar, að launatekjur hafi verið skattlausar hjá þeirri ágætu stjórn, hvernig sem menn eiga nú að skilja það. Í II. kaflanum er svo aftur á móti greint frá afleitum vinnubrögðum núv. ríkisstj., og hv. þm., sem undir þetta nál. skrifa, hafa skýrt það allítarlega í sínum ræðum, hvað þeir eiga við með þessu. En ef þessi kapítuli nr. II er lesinn örlítið nánar og menn hugleiða svolítið þeirra málflutning hér í töluðu máli varðandi vinnubrögð núv. ríkisstj., þá kemur í ljós, að þar er yfirleitt ýmist um að ræða hrein vindhögg ellegar þá grjótkast úr glerhúsi.

Það er talað um, að það skorti upplýsingar um áhrif þessara frv. á hag skattþegna og fyrir ríkissjóðinn og aðra, sem þar koma til greina, sveitatsjóðina. Þetta er rangt. En það er ekki lengra síðan en í fyrra um þetta leyti, að lagt var hér fram frv., eins og ég víst nefndi í framsögu, frv. um breytingu á tekjuskattslögunum. Og það var hvorki í grg., í framsöguræðu hæstv. ráðh. né í framsöguræðu meiri hl. minnzt einu einasta orði á, hvernig það frv. verkaði fyrir ríkissjóðinn eða í tölum talið fyrir skattþegnana. Það var ekki gerð minnsta tilraun til að meta það í þessum málflutningi. Svo er verið að tala um, að það hafi ekkert samstarf verið haft við aðila eins og sveitarfélögin og aðra aðila. Það er satt, að nú er unnið á þann hátt, að fyrst er unnið stefnumótandi að málinu í stjórnskipaðri nefnd, en a.m.k. í 21/2 mánuð hefur málið nú legið fyrir, og t.d. samtök sveitarfélaga hafa fjallað um það. Og í nefndinni hefur verið starfað nákvæmlega á sama hátt og venja er til, að það er leitað umsagna margra aðila, það er rætt við sérfræðinga o.s.frv. Það á víst að vera einhver fyndni í nál., að það er talað um, að málið hafi horfið úr nefnd. Það hefur ekkert horfið öðruvísi úr nefnd en venja er til, að það er ævinlega haft samráð við ríkisstj., þegar um svona mál er að ræða. Hitt er svo annað mál, að nefndin eða stór hluti hennar hvarf úr landi um skeið, og var auðvitað ekkert við það að athuga, en hins vegar seinkaði það nokkuð meðferð málsins. Nei, þessar orðræður allar um vinnubrögð í sambandi við þetta mál og fullyrðingar um það, að ekki hafi verið haft samstarf við hina eða þessa aðila, er allt meira eða minna út í bláinn mælt. Það væri í sjálfu sér freistandi að fara miklu lengra út í það að rifja upp vinnubrögð fyrrv. ríkisstj., einmitt við endurskoðun tekjuöflunarkerfisins. Ég skal þó ekki gera það að marki, en vil aðeins að því víkja örlítið nánar. Það má vissulega segja og því hefur ekki verið í móti mælt, heldur var það þvert á móti víðurkennt af hæstv. fjmrh. þegar við flutning málsins og aftur nú í umr., að þessi frv., sem nú liggja hér fyrir, voru með vissum hætti nokkuð snöggsoðin. En hins ber líka að gæta, að bæði hefur Alþ. gefizt gott tóm til að fjalla um málið, og svo þess, að endurskoðuninni verður haldið áfram á milli þinga með það fyrir augum að heildarniðurstaða fáist á næsta þingi og væntanlega þá á fyrri hluta þess. En hvernig er svo saga núv. stjórnarandstæðinga í skattamálunum, vinnubrögðunum á þeirra 12 ára valdaferli? Ég skal aðeins víkja að því í örstuttu máli.

Á þessu tímabili gerist það, að samþykktar eru margar nýjar álögur á sveitarfélögin, og það að því marki, að þau fengu ekki rönd við reist. Það voru ekki færri en 18 sveitarfélög, sem þurftu að leita ásjár hjá Jöfnunarsjóði árið 1971 og biðja þar um aukaframlög, sem námu milljónatugum á því eina ári. Af þessum 18 sveitarfélögum eru a.m.k. 8 allfjölmenn. Þannig var búið að ganga frá þessum þætti, þegar viðreisnarstjórnin fór frá. Verkaskiptingin milli ríkis og sveitarfélaga hefur líka alltaf verið að verða flóknari og flóknari með hverju ári. Það hefur margsinnis verið minnzt hér á persónugjöldin til tryggingakerfisins, en þau voru orðin mjög tilfinnanleg fyrir þá tekjulægstu og raunar óbærileg, þar sem verst stóð á. Og það má enn minna á það, sem hér hefur komið fram, að fjölskylda með marga unglinga á skólaaldri, yfir 16 ára aldri, t.d. með þrjá unglinga í skóla, hefði á þessu ári, eftir því sem áætlað er, þurft að greiða yfir 60 þús. kr. í hin persónulegu gjöld ein saman að öllu óbreyttu. Það er satt, sem hv. frsm. 1. minni hl. sagði hér, að niðurfelling persónuskatta þýðir ekki út af fyrir sig lægri skattbyrði í heild, þarf ekki að þýða það a.m.k., en hún á að þýða réttlátari dreifingu skattbyrðarinnar en áður var.

Það hefur verið rætt hér nokkuð um skattvísitölu. Viðreisnarstjórnin lagði skattvísitöluna alveg á hilluna. Því hefur verið haldið hér fram af hálfu stjórnarandstæðinga, að það hafi einungis verið á erfiðleikaárunum mestu, sem skattvísitalan var lögð til hliðar og persónufrádráttur látinn standa óbreyttur ár eftir ár. En það var meira en á þeim 3 árum, sem vitnað hefur verið til, sem fyrrv. ríkisstj. lék það að láta persónufrádrátt standa óbreyttan frá ári til árs þrátt fyrir bullandi verðbólgu. Þetta var líka gert í 4 ár samfleytt fyrst eftir 1960.

Það er líka alkunna, að viðreisnarskattkerfið var orðið svo flókið og margþætt, að það verður varla komizt lengra, það gildir hæði um form tekju- og eignarskattanna og um ýmsa aðra skattlagningu vissulega líka, því að ýmsir sérskattar, sem leggjast á atvinnuvegina, sérskattar og samningsbundnar álögur ýmiss konar, skipta tugum í sumum atvinnugreinum, t.d. í sjávarútvegi og iðnaði. Það vantaði ekki, að það störfuðu mþn. í skattamálum á viðreisnartímabilinu. Og í lok þess eða á síðasta þingi var gerð breyting á lögum um tekju- og eignarskatta. En þrátt fyrir þessa 12 ára setu í ríkisstj. var hér ekki um neina heildarendurskoðun að ræða, heldur aðeins kroppuð út úr einstök atriði. Þetta vita allir hv. þm., enda treysti fyrrv. ríkisstj. sér ekki til að halda öðru fram. En margt í þessari löggjöf, sem hv. 1. þm. Reykn. var að prísa áðan hér í ræðustól, hefur vissulega komið mönnum einkennilega fyrir sjónir, eins og hér hefur verið minnzt á. Þ. á m. er skattfrelsi arðs af hlutafé í þeirri mynd, sem þar var um að ræða. Það ákvæði á sér enga hliðstæðu í íslenzkri löggjöf áður og á sér heldur engar hliðstæður í löggjöf nálægra landa, að því er upplýst var við umr. um þetta mál í fyrra og ekki hrakið þá. Flýtifyrningarákvæði þessara laga og endurmatsheimildirnar leiddu út í þær öfgar í sumum tilfellum, að það er nánast alveg furðulegt, og ég kannske vík aðeins nánar að því.

Það virtist heldur engin frambærileg ástæða til þess að taka þá upp jafn stórfelldan frádrátt og gert var á öllum tekjum aldraðra án þess að taka nokkurt tillit til efnahags, þannig að t.d. öldruð hjón fengju frádrátt ámóta háan og ung hjón með 4 börn. Það er ekki nokkur glóra í þessu í sjálfu sér, enda er þetta sýndarúrlausn. Þessu er varpað fram ári fyrir kosningar, þegar tvísýnt er, að viðkomandi ríkisstj. þurfi að standa við það. Þá er þetta gert og án þess að gera þinginu nokkra grein fyrir því, hvað þetta kostaði ríkissjóð, eins og ég vék að áður.

Á þessu tímabili var engin tilraun gerð til þess að koma eðlilegri skipan á störf ríkisskattanefndar, t.d. í samræmi við álit mþn., sem þá starfaði, því að hún viðurkenndi, að breytinga væri þörf. Það var engin tilraun gerð til þess, og þó voru starfsskilyrði ríkisskattanefndar þannig og sú umgjörð, sem hún vann eftir, að skattkærur hrúguðust upp, og gat liðið á fjórða ár eða allt upp undir fjögur ár, án þess að lokið yrði afgreiðslu einstakra mála.

Það er vissulega rétt, sem sagt hefur verið hér, að skattamál eru bæði viðkvæm mál og flókin, og það er óhætt að fullyrða, að skattalagabreytingar viðreisnarstjórnarinnar 1965 greiddu ekki úr þeim flækjum, sem þá þegar voru orðnar. Það má rétt minna á, að frádráttarliðum við álagningu tekjuskatts fjölgaði þá, og þeim hefur fjölgað við hverja breytingu og ákvæði laganna af þeim sökum orðið flóknari og flóknari. En þó má segja, að alveg tók út yfir, hvað þetta snerti, með lögunum frá í vor. Með þeim lögum var enn þá aukið stórkostlega við frádráttarheimildir þær, sem áður voru, og málið, eins og ég sagði, varð enn þá flóknara í meðferð og fjær því en nokkru sinni að ná fram einhverjum almennum mælikvarða á gjaldþol manna. Þá var mönnum m.a. veittur frádráttur á íbúðarhúsnæði með þeirri afleiðingu, að menn með mjög góðar tekjur gátu orðið skattlausir, ef þeir kærðu sig um. Ef maður átti stórhýsi eitt eða fleiri, þá gat það þýtt langtíma skattfrelsi. Til að skýra, hvað í þessum frádráttarheimildum felst, er hægt að taka einfalt dæmi til athugunar og nota þá tækifærið um leið til þess að gefa örlitið sýnishorn af þessari lagasmið viðreisnarstjórnarinnar. Í 3. tölulið C-liðs í 15. gr. laganna, þar sem sagt er, hvernig fyrna megi tilteknar eignir, segir á þessa leið:

„Bygginga og annarra mannvirkja, annarra en íbúðarhúsnæðis, sem um ræðir í E-lið. Hámark 2% til 10% eftir gerð og byggingarefni“ o.s.frv. Síðan er rétt að rifja upp, hvernig E-liður hljóðar, sem hér er vitnað til, en hann hljóðar þannig: „Fyrning íbúðar manns, sem aðeins á eina íbúð, skal vera fastur árlegur hundraðshluti af fasteignamatsverði. Einnig er eiganda íbúðar, sem hann notar fyrir sjálfan sig og fjölskyldu sina, heimilt að beita sömu fyrningarreglu um aðra íbúð, er hann kann að eiga í sömu eða annarri fasteign, án tillits til fasteignamatsverðs hennar, eða annað íbúðarhúsnæði í fasteign þeirri, er hann býr í, enda sé fasteignamatsverð þess eigi hærra en íbúðar þeirrar, sem hann býr í“ o.s.frv. Þetta er enn lengra. Og D-liður þessarar gr. er svona: „Til viðbótar þeirri föstu fyrningu, sem um ræðir í C-lið, er heimilt að fyrna eignir þær, er getur í 1.-3. tl. C-liðs, aðrar en íbúðarhúsnæði, samkv. E-lið, með sérstakri fyrningu, er nemi að hámarki 30% af heildarfyrningarverði þeirra. Eigandi ræður, hvenær hann notar þessa heimild og að hve miklu leyti ár hvert.“

Ég held, að það þurfi a.m.k. meðalskarpskyggni til þess að skilja bara, hvað í þessum ákvæðum felst, og þá alveg sérstaklega í E-lið gr., en hér hafa víst sérfræðingar fjallað um, en ekki nemir fúskarar.

Þó mun mega byggja á því, að t.d. maður, sem byggir eigin íbúð og ætti tvær íbúðir í annarri fasteign, ætti rétt á þeim fyrningarfrádrætti, sem heimilaður er í áðurnefndum lagaákvæðum. Ef við setjum svo, að þessi maður hefði í hreinar tekjur eina millj. kr., áður en þann færir til gjalda umræddar fyrningar, og við skulum gefa okkur það einnig, að fasteignamatsverð íbúðanna, sem hann notar ekki sjálfur, væri 3 millj. kr., þá ætti hann rétt á, samkv. E-lið gr., fyrningarfrádrætti 30% af 3 millj. eða 900 þús. kr. Maðurinn yrði með þessu að sjálfsögðu fríaður bæði við greiðslu á tekjuskatti og útsvari, hvort sem væri heldur eftir nýjum eða gömlum skattstigum. Þó held ég enginn mundi telja, að þessi maður væri sérstaklega illa settur efnalega, og þetta dæmi sýnir nokkuð glöggt þá skattstefnu, sem þarna er fylgt á sama tíma og t.d. skólakrakkar eru látnir greiða stóran hluta af sumarkaupi sínu nefskatta og jafnvel fleira. Það er hægt að hugsa sér annað dæmi án þess að ég ætli að fara að fara miklu lengra út í þetta. Það má t.d. hugsa sér skrifstofuhús á góðum stað hér í Reykjavík, sem væri þegar afskrifað niður í fasteignamatsverð, sem gæti verið t.d. ein millj. kr., og nýtt fasteignamat þessa húss kynni að vera 15 millj., en þá yrði endurmatshækkunin 14 millj. kr. Af nýja fasteignamatinu, 15 millj. kr., mætti reikna flýtifyrningu, sbr. D-lið greinarinnar, 30%, eða 4 millj. og 500 þús. kr. Eigandinn fengi þá að öllu eðlilegu nokkurra ára skattfrelsi út á þetta. Nú sýnist mönnum e.t.v., að þetta sé allt í lagi, því að eigandinn sé að eyða fyrningarstofninum með því að afskrifa svona ört, og spurningin sé aðeins um það, hvenær hann noti fyrningarstofninn. Þó er þetta kannske ekki svona einfalt, því að það má segja, að sú leið blasi við manninum að sjálfsögðu að spara sér skattana með flýtifyrningunum og kaupa fyrir þá nýjar eignir til að afskrifa, og þannig gæti hann haldið skattleysinu gangandi jafnvel um árabil. Hérna var svo langt gengið, að þetta gekk t.d. fram af atvinnurekendum, og í erindi, sem þeir lögðu þá fyrir fjhn. Nd. Alþ., lögðu þeir til, að flýtifyrning af endurmatshækkun yrði felld niður, og er hægt að fullvissa sig um það með því að lesa þetta erindi og sjá, hvernig þeir vildu orða D-lið greinarinnar.

Mér dettur ekki í lifandi hug að halda því fram, að þetta hafi verið ætlun þeirra hv. þm. og hæstv. ráðh., sem hér sátu þá að völdum, að haga þessu svona, þó að þetta væri lagt svona fram. En undirbúningurinn var bara ekki betri en þetta, og málið hefur ekki verið skoðað betur en þetta. Og þá má kannske spyrja, hvort það sé nokkur goðgá, þó að menn hugsi sér að vinna á einhvern annan hátt að undirbúningi skattalaga nú en gert var þá. Þannig var svo einnig að málum staðið á Alþ., eins og ég hef vikið að hér áður, að í ræðum ráðh. og frsm. meiri hl. hér í þessari hv. d. var alls engin grein gerð fyrir áhrifum frv. á greiðslubyrði skattþegna né á tekjur ríkissjóðs. En þess má geta, að það má ætla, að framkvæmd þessara skattalagabreytinga frá 1971, ef hún kæmi einhvern tíma til greina, mundi kosta ríkissjóð einhver hundruð millj. kr., einhvers staðar á bilinu á milli 3 og 5 hundruð millj. kr. Það er ekki furða, þó að þeir, sem skila af sér á þennan hátt og hafa unnið að málum á þennan hátt á 12 ára valdaferli, þykist þess umkomnir að kenna öðrum til verka, það er ekki furða!

Aðgerðir núv. ríkisstj. varðandi verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, svo og breytingar á tryggingalögunum og tekjuöflunarkerfinu stefna óumdeilanlega að þeim markmiðum, sem sett eru í stjórnarsáttmálanum. Ríkjandi ástand við stjórnaskiptin var orðið með þeim hætti á þessum sviðum, að það réttlætir það alveg fyllilega, að ríkisstj. hafði hraðar hendur, þegar hún undirbjó þessi mál, sem nú er verið að ræða hér á hv. Alþ. í kvöld. Hitt er svo annað mál. að það verður naumast fyrr en eftir álagningu gjalda í vor, sem ljóst verður, hversu til hefur tekizt um þennan fyrsta áfanga að breyttu skattkerfi. Og um heildarniðurstöðurnar verður auðvitað ekki dæmt að fullu fyrr en að endurskoðun lokinni, sem væntanlega verður á næsta reglulega Alþ. Þá, en ekki fyrr, er mögulegt að leggja endanlega dóma á vinnubrögð núv. hæstv. ríkisstj. í þessum málum, og skal ég ekki segja fleira um þann þátt.

Í III. kafla í nál. 1. minni hl. fjhn. eru ýmsar frómar hugleiðingar hv. sjálfstæðismanna um skattamál. og það er kannske rétt að líta aðeins á þær. Það eru allmörg atriði í þessum kapítula, sem eru almenns eðlis og eru á þá lund, að allir geta nánast verið um þau sammála, og er ekkert við það að athuga, þó að þm. og þingnefndir tjái hug sinn á þann hátt. T.d. er hér lagt til, að heildarendurskoðun verði haldið áfram. Það vita nú allir, að það stendur til, og að lögð er áhersla á samstarf við samtök sveitarfélaga og önnur samtök. Það er vitnað til þess, að Sjálfstfl. telur, að skattlagningu til ríkis og sveitarfélaga eigi að haga á þann veg, að hún örvi einstaklinginn til framtaks og sparnaðar. Þetta er auðvitað tilgangur allra, sem að skattamálum vinna. Og þannig eru hér ýmis fleiri almenn ákvæði. Það er sagt, að það þurfi að gera ákveðnar till. um breytta verkefnaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga, og þetta er ekkert nýtt. Einnig er hér minnzt á að kanna virðisaukakerfið, þar sem það henti, og það hefur einnig komið fram áður, að það séu menn að skoða áfram, eins og unnið var. að í tíð fyrrv. ríkisstj. Og svo er enn ein klausan um það, að það þurfi að gera skattkerfið einfaldara. Það var víst búið að reyna það töluvert á 12 árum, og það er skiljanlegt, að menn vilji, að það sé haldið áfram með það.

En svo eru aftur önnur atriði ýmis í þessum kapítula, sem eru nú kannske hæpnari. Það hefur nú verið rætt svo mikið um skattvísitöluna, að ég skal ekki bæta þar við mörgum orðum. Ég minntist á það áðan, hvernig þeir fóru með persónufrádráttinn á meðan þeir sátu við völd, viðreisnarstjórnin, og ég þarf raunar ekki að endurtaka það. En árin 1960–1963 var persónufrádráttur alveg óbreyttur, 50 þús. kr., öll árin. Og svo kom aftur kyrrstaða árin 1967–1969, en fyrir kosningarnar var gerð svolítil tilraun til þess að leiðrétta þetta eins og fleira. En vert er að hafa það í huga núna, þegar hv. sjálfstæðismenn krefjast þess, að nú sé gert stórt í því að láta menn fá mikla persónufrádrætti og reikna með hærri skattavísitölu, að gera sér alveg grein fyrir því, hvernig þeir skildu við ríkissjóðinn. Ég vék að þessu aðeins í framsöguræðu minni, og ég get farið örlítið nánar út í það, því að það skiptir ekki litlu máli, hvernig sá viðskilnaður var.

Fjárlög 1971 voru 11 664 millj. kr., og það leit út fyrir, að hækkun milli ára 1970–1971 væri 34%. En eins og oft hefur verið getið um hér, vantaði raunverulega inn í fjárlögin 1971 gjaldapósta, sem námu um l milljarði kr. Það vantaði laun opinherra starfsmanna upp á 430 millj. kr., vegasjóðsákvörðunin var ekki tekin með, 235 millj., niðurgreiðslur upp á 130 millj..og daggjöld á sjúkrahúsum 170 millj., þetta vantar allt inn í fjárlögin 1971. Þar að auki er svo margt annað, sem er í sömu stefnu, þ. á m. mikil umframeyðsla á einstökum liðum, sem þurfti að vinna upp. Ef þetta hefði verið eins og það með réttu átti að vera í fjárlögunum 1971, hefðu þau fjárlög orðið 12.6 milljarðar kr., og þá hefði hækkunin milli áranna 1970 og 1971 orðið 50%. En nú þurfti að taka þetta allt inn í fjárlögin, og þess vegna er það m.a., að hækkunin nú verður 5 milljarðar rúmir eða 44.3%, eins og þetta er upp sett. En ef þetta hefði verið gert á réttan og eðlilegan hátt 1971, hefði hækkunin nú ekki orðið nema 33.3% og þó aðeins 22.8%, ef sleppt er beinum tilflutningi frá sveitarfélögum og einstaklingum yfir á ríkissjóð. Og ef við hugleiðum þetta, hversu skilið var við fjárlögin, þá má manni vera ljóst, að það kemur úr hörðustu átt, þegar þeir, sem þannig skildu við, eru að heimta óeðlilegar hækkanir á persónufrádrætti til þess að létta af sköttum, það kemur úr hörðustu átt.

Þá segir í nál. 1. minni hl. berum orðum, að það þurfi að stefna að því að draga úr beinum sköttum, — að draga úr heinum sköttum. Nú hefur hæstv. fjmrh. gert grein fyrir því hér með tölum, að beinir skattar eru miklu hærri í nálægum löndum en hér. Raunar gerði fyrrv. fjmrh. einnig grein fyrir þessu, þegar hann lagði fram frv. um tekju- og eignarskatt, sem ég hef vikið hér að og rætt var og afgr. hér í fyrra. Hann var ekki á því, að það þyrfti að draga úr beinum sköttum. Hann undirstrikaði þessa staðreynd, að beinir skattar eru hærri í öðrum löndum en hér, ekki til þess að leggja áherzlu á, að það þyrfti að draga úr þeim, heldur hið gagnstæða. Hann lagði áherzlu á það, að þær lækkanir, sem gerðar væru á félagasköttum, og um það fjallar frv. fyrst og fremst, væru vegna EFTA-samningsins, en það væri ekki sérstök ástæða til þess að draga úr beinum sköttum, þó að nú sé það sett fram sem sjónarmið Sjálfstfl. hér í þessu nál., að það skuli vinna að því smátt og smátt að draga úr beinum sköttum, þótt þeir séu nú ekki nema helmingur af því, sem þeir eru sums staðar í nálægum löndum. Þetta sýnir nokkuð, hvernig að þessum málum er unnið, að það er kastað fram svona hlutum af handahófi án þess að hirða um samræmi við það, sem áður hefur verið sagt og gert í þeim herbúðum.

Það er líka nokkuð talað um eignarskattana í þessu nál., og talsmenn stjórnarandstöðunnar hafa mikið um þá rætt nú og fyrr. M.a. hefur verið fjölyrt um það, að fasteignaskattarnir leggist þungt á ungt fólk. Nú er það að vísu rétt, að fasteignaskattar stórhækka, bæði út af hækkuðu fasteignamati og vegna þess, að ætlunin er að nota eignarskatta að meira marki en áður sem skattstofn. Hér er þó varla um mjög stórar upphæðir að ræða hjá ungu fólki. Ungt fólk, sem hefur komið sér upp íbúðum, er varla með þær stærstu, en þó geta þessir skattar numið 4–5 þús. kr. á meðalíbúðir. Nú er fjölyrt mjög um þetta. En það var ekkert verið að tala um það hér áður, þó að bara annað hjónanna greiddi ámóta upphæð til sjúkrasamlags og a.m.k. 4 til 5 sinnum hærri upphæð bæði hjónin í beina nefskatta án alls tillits til ástæðna að öðru leyti. Það var ekkert verið að tala um það.

Þá er líka mikið talað um það núna, hvernig eignarskattarnir hitti aldraða. Þess er að minnast, að í tekjustofnafrv. er gert ráð fyrir því, að sveitarstjórnir geti undanþegið aldrað, efnalítið fólk frá fasteignasköttum. Það er gert ráð fyrir því. En það er eins með það og tekjuskatt á öldruðu fólki, að það er ómögulegt að viðurkenna, að það sé eðlilegt að haga skattlagningu eingöngu með tilliti til aldurs, á meðan við verðum almennt að leggja hér á þunga skatta, m.a. af því að við höfum mörg járn í eldi og höfum margt að framkvæma, þá er ekki hægt að láta slík tilfinningasjónarmið ráða gerðum sínum, heldur verður að meta hlutina með eðlilegum hætti eftir því, hvað hverjum og einum telst fært að láta af hendi rakna, án þess að ofboðið sé getu hans.

Hér á landi er þannig fyrir komið málum varðandi eignir manna, að annars vegar er sparifé skattfrjálst, en hins vegar er nú rætt um vaxandi skatta á fasteignum. Þetta er í sjálfu sér ekki óeðlilegt, þegar við lítum til þess, að hér er mikil verðbólga og hefur svo verið um langt árabil. Afleiðingin af því er sú, að sparifjáreigendur hafa orðið hart úti, en fasteignaeigendur hafa raunverulega grætt. Í samræmi við þetta er það vissulega ekki óeðlilegt, þó að nú sé hugað að því að nota fasteignirnar sem nokkurn tekjustofn í meira mæli en áður var. Hitt er svo annað mái. og það ætlast auðvitað enginn til þess, að það má ekki beita eignarsköttum að því marki, að það verði til þess að letja menn og draga úr mönnum kjarkinn í baráttunni fyrir því að koma þaki yfir höfuðið. Ef það kæmi í ljós, að svo langt væri gengið, hvort sem það væri nú við þessa lagasmíð eða aðra síðar, þá verður auðvitað að stinga við fótum og taka málið til skoðunar á ný, því að það vill áreiðanlega enginn stuðla að því, að þannig takist til.

Það er búið svo oft að ræða stöðu hinna eldri í þjóðfélaginu, að það er raunar að bera í bakkafullan lækinn að fara frekar út í það hér nú. En ég vil þó út af þeim ummælum, sem hér hafa fallið, síðan ég flutti framsöguræðu mína, enn minna á þessi atriði: Það er búið að leiða í lög ákveðna lágmarkstekjutryggingu, og í þessu frv. er stefnt að því að skera neðan af tekjuskattinum hjá þeim, sem náð hafa 67 ára aldri á skattárinu, eins og þar segir, og sá frádráttur kemur vissulega til góða þeim, sem mest þurfa hans með af þeim, sem á annað borð greiða skatta í þessum hópi.

Ég hafði hugsað mér að minnast aðeins nánar á stöðu giftu konunnar, eftir að ég hafði heyrt málflutning stjórnarandstæðinga, en ég held, að það sé bezt að sleppa því. Hv. 4. landsk. hefur sýnt svo rækilega fram á tvískinnunginn hjá hv. stjórnarandstæðingum í því máli með því að rekja ræður þeirra frá því að 50% frádrátturinn var upp tekinn, og minna á frv. í fyrra, tekjuskattsfrv. þá, sem fól í sér verulega skerðingu á þessum frádrætti, eins og það var lagt fram, þótt seinna væri horfið frá því. En í ræðu þáv. fjmrh., þegar hann talaði fyrir þessu frv., má lesa nokkrar vel valdar setningar um það, hversu eðlilegt það sé að setja þak á þennan frádrátt. Ég held, að ég fari ekki frekar út í þá sálma. Það er búið að ræða það svo ítarlega.

Hv. frsm. 1. minni hl. heldur því hér blákalt fram, að þrátt fyrir 8 þús. kr. aukafrádrátt hjá íslenzkum fiskimönnum, þá versni skattaleg staða þeirra við setningu þessara laga. Það er eins og fleira í málflutningi hv. stjórnarandstæðinga, að þeir greina ekki frá því, hvernig þetta megi verða, enda hugsa ég, að það sé erfitt að sýna fram á þetta með fullum rökum. Það verður vítanlega að skoða stöðu fiskimannanna alveg í heild, og ég hygg, að það fari ekki milli mála, að hún batni við þessar breytingar, en versni ekki. En þessi atriði eins og mörg önnur, vaxtafrádrættirnir kannske alveg sérstaklega, þurfa auðvitað skoðunar við, og það bíður væntanlega haustsins að skoða þá nánar en hér hefur verið gert við þann hluta endurskoðunarinnar, sem þegar er um garð genginn.

Það hefur í nál. bæði 1. og 2. minni hl. verið minnzt á afturvirkni íþyngjandi ákvæða í skattalögum, og sumir af talsmönnum hv. stjórnarandstæðinga hafa fjallað um þetta atriði í ræðum sínum hér í kvöld og dregið í efa, að löglegt sé að setja slík lagaákvæði, þ.e. íþyngjandi ákvæði í skattalög, sem verki aftur fyrir sig. Nú gaf hæstv. fjmrh. hér fyrr í kvöld allítarlegt og mjög greinargott yfirlit um lagasetningu Alþ. á undanförnu árabili einmitt varðandi þetta atriði og sýndi fram á það með mörgum dæmum, að slík lög hefðu verið sett margsinnis og án þess að orðið hafi ágreiningur fyrir dómstólum. Það hefur verið minnzt hér á hæstaréttardóma í sambandi við þetta atriði. Ég hef m.a. kynnt mér tvo hæstaréttardóma um afturvirkni íþyngjandi ákvæða í skattalögum. Annar þessara dóma er frá 16. apríl 1943. Þar er um að ræða lög nr. 57 frá 28. jan. 1935, en þau heimiluðu að veita fyrsta fyrirtæki í hverrí nýrri iðngrein skattfrelsi í 3 ár gegn tilteknum skilyrðum, sem nánar voru greind í þessum lögum. Undanþága hafði svo verið veitt samkv. þessu ákvæði með bréfi frá atvmrn., þar sem tekið var fram um skilyrði og þar sem tekið var fram, að undanþágan skyldi gilda um tiltekið þriggja ára bil. Síðan var lögunum breytt, og án þess að taka það sérstaklega fram var þetta ákvæði fellt úr lögunum. Það er aðeins afnám þessarar sérstöku undanþágu, sem veitt hafði verið með ráðuneytisbréfi til ákveðins tíma, sem þarna var dæmt um. Skattayfirvöld ætluðu að krefjast skatts af þessu fyrirtæki, eins og samningurinn hefði ekki verið gerður, og það er um það atriði, sem dæmt er. Og í forsendum þess dóms er lögð sérstök áherzla á sérstöðu þessarar undanþágu, og dómurinn nánast, að því er ég fæ bezt séð, byggður á sérstöðunni, hvað þarna er um algerlega sérstakt og afmarkað atvik að ræða, en fjallar ekkert almennt um afturvirkni íþyngjandi skattaákvæða.

Hinn dómurinn, sem ég hef gluggað í, er frá 20. des. 1948, og hann fjallar um undanþágu skatta af stríðsáhættuþóknun, sem veitt var á styrjaldarárunum. Þessi áhættuþóknun var afnumin með lögum 1947, og þarna er verið að dæma um það, hvort niðurfelling þessara hlunninda verki aftur fyrir sig til tekjuársins á undan því ári, sem lögin voru sett á. En dómurinn fellur á þá leið, að það sé ekki. Sá dómur er m.a. byggður á því, að hér hafi verið með vissum hætti um samninga að ræða, og í forsendum er rætt um hið nána samband milli kjarasamninganna og laga þessara, eins og þar segir. En svo er einnig byggt á því, að gildistökuákvæði laganna séu ekki nægilega ljós um þetta atriði. Og í forsendum hins staðfesta fógetaúrskurðar, því að fógetaúrskurður var staðfestur í þessu máli, segir einmitt um þetta atriði, með leyfi hæstv. forseta:

„Í áminnztum lögum eru engin ákvæði um það, að skattfrelsi sjómanna af helmingi áhættuþóknunar fyrir árið 1947 séu felld niður.

Í lögunum segir aðeins í 50. gr., að lögin öðlist gildi 1. jan. 1948. Í skattalögunum frá 1921, svo og núgildandi skattalögum nr. 6 frá 9. jan. 1935, ásamt síðari breytingum, er ætið tekið fram, þegar um nýjar skattaálögur er að ræða eða skattahækkanir, við hvaða tímabil eigi að miða skattaútreikninginn, þegar ætlazt er til, að lögin verki aftur fyrir sig.“

Mér finnst alveg augljóst af þessum orðum í dómsforsendum, að þar sé gengið út frá því, að afturvirkni út af fyrir sig sé ekki ólögmæt.

Hér er og þess að geta og hefur komið fram hér í þessum umr., að Hæstiréttur varð ekki sammála um þetta. Gizur Bergsteinsson segir m.a. í sératkv. sínu, og það er mjög eftirtektarvert í sambandi við þetta atriði, sem hér er um að ræða:

„Hefur það og verið tíðkað af löggjafar- og skattayfirvöldum alla tíð frá því, að lög nr. 2 1923 voru sett og fram á þennan dag, enda heimilt samkv. 40. gr. stjskr. og staðfest af dómstólum, að láta breytingu á skattalögum, sem staðfest hafa verið í lok skattaárs eða á álagningarári, áður en skattskrá er lögð fram, gilda um tekjur undanfarins skattárs.“

Af þessum tilvitnunum, sem ég hef hér greint frá í sambandi við nefnda dóma, virðist mér augljóst, að dómstólar vefengja ekki almennan rétt löggjafans til þess að lögfesta íþyngjandi skattaákvæði eftir á, sbr. alveg sérstaklega tilvitnuð ummæli Gizurar Bergsteinssonar svo og forsendur undirréttardómsins, sem staðfestur var.

Hitt er svo auðvitað annað mál, og það held ég, að við getum allir orðið sammála um þrátt fyrir þá sögu, sem að baki er í þessum málum og hæstv. fjmrh. vék hér að, að breyting skattalaga eftir á, ef svo mætti segja, er í sjálfu sér ekki æskileg þrátt fyrir það, þó að hún hafi margsinnis átt sér stað á þennan hátt og sé núna í bígerð og núna kannske af alveg sérstaklega augljósum ástæðum, sem hér hefur áður verið vikið að og m.a. voru skýrðar af hæstv. ráðh.

Ég álít nú, að allir hv. þm. geti verið sammála um það, að ríkisstj. og þeir aðilar, sem hún kveður til, eigi mikið verk að vinna við endurskoðun skattakerfisins í heild. Og ég styð það álit mitt með því að minna á það, sem fyrrv. hæstv. fjmrh. sagði við umr. um skattalögin í fyrra. Hann marglýsti því þá yfir, að hann teldi skattkerfið allt of flókið. Hann sagði m.a., að álögð gjöld væru allt of mörg, og hann sagði, að ýmsar frádráttarreglur væru allt of flóknar og margfaldar, og það væru allt of þungar álögur á unglingum, hann tók það fram. Og hann gat þess, að hann vildi tvísköttun hjóna, og hann tók einnig fram, að hann teldi skattkerfið óeðlilega og óþarflega dýrt í meðförum. Og enn, að það væri allt of mikið af alls konar undanþágum og sérreglum. Þetta sagði hæstv. fyrrv. fjmrh., og þetta er allt saman satt og rétt, og það er gott til þess að vita, að menn skuli vera sammála um þetta. En það er hins vegar heldur dapurlegt hlutverk fyrir síðasta fjmrh. viðreisnarstjórnarinnar að gefa þennan vitnisburð eftir 12 ára setu þess stjórnarmeirihluta. Og ef við berum það, sem gerðist á þessum 12 árum í skattamálunum, saman við þær byrjunaraðgerðir, sem núv. hæstv. ríkisstj. hefur beitt sér fyrir í þessum efnum, þá finnst mér óhætt að segja, að þær spái góðu um framhaldið.

Herra forseti. Ég skal ekki hafa þessi orð öllu fleiri. Ég vil að lokum aðeins undirstrika það, að ég undrast það ábyrgðarleysi, sem mér virðist koma fram hjá hv. stjórnarandstæðingum á marga lund. Ég hef minnt á það, hvernig fráfarandi ríkisstj. skildi við fjárlögin, og ég hef einnig minnt á það, hvernig fleygt var hér inn og afgreitt frv. um breyt. á tekjusköttum, sem þýddi stórkostlega tekjuskerðingu fyrir ríkissjóð, og eins og ég sagði áðan, án þess að gera þinginu grein fyrir því. Þetta eru allt saman blákaldar staðreyndir, sem ekki verður á móti mælt.

Mér finnst satt að segja, því miður, vera fullt samræmi í þessu og svo þeim megintillögum, sem hv. sjálfstæðismenn leggja fram. Mér finnst samræmið í þessu ábyrgðarleysi, sem ég var að lýsa og kom fram í verkum og viðskilnaði fráfarandi ríkisstj., og svo þeim megintillögum, sem hv. sjálfstæðismenn leggja fram núna, óhugnanlega mikið. En ég vil þó vona, að þrátt fyrir þennan tillöguflutning nú megi takast um það samstaða meðal manna almennt úr mörgum stéttum og stjórnmálaflokkum að vinna að endurskoðun skattakerfisins, því að eins og ég var rétt áðan að lýsa, verður ekki annað séð en flestir eða allir hv. alþm. séu sammála um það, að þar þurfi að taka til hendinni og það þurfi að halda áfram því verki, sem núv. hæstv. ríkisstj. hefur hafið á því sviði.