09.03.1972
Neðri deild: 49. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 911 í B-deild Alþingistíðinda. (599)

127. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Ég skal af þessum sérstöku ástæðum, sem hæstv. forseti nefndi, stytta mál mitt svo sem frekast má verða. Ég kveð mér hljóðs til þess að skýra með örfáum orðum skrifl. till., sem ég leyfi mér að flytja nú við 3. umr. þessa máls. Till. þessi felur í sér leiðréttingu eða áréttingu fremur en verulega breytingu. Till. varðar sérsköttun hjóna, og hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

Brtt. við frv. til l. um breyt. á I. nr. 68 1971, um tekjuskatt og eignarskatt. Við 1. gr. 2. málsl. 1. mgr. orðist svo:

Nú telja hjón eða annað hjóna sér hagfelldara, að tekjur þeirra séu sérstaklega skattlagðar, og geta þau eða það þá krafizt þess, að skattur sé á þau lagður sitt í hvoru lagi. Ábyrgð annars á skatti hins skal í slíkum tilfellum aldrei ná til séreignar.“

Í frv. eins og það er og raunar gildandi lögum er gert ráð fyrir, að hjón geti krafizt þess, að þau séu skattlögð sitt í hvoru lagi, ef þau telja sér það hagfelldara. En í minni till. er gert ráð fyrir, að slík krafa frá öðru hjóna nægi. Að því er ábyrgð varðar á sköttum hjóna, þá er reglan um hana nú þannig, að sú ábyrgð er algerlega ótakmörkuð. Þau ábyrgjast bæði skattgreiðslu með öllum sínum eignum. Ég legg til, að þegar hjón eru skattlögð sitt í hvoru lagi, þá nái ábyrgð annars hjóna á skattbyrðum hins ekki til séreignar. Þetta er að mínu mati tilraun í þá átt að gera ákvæði skattalaga um þessi efni í meira samræmi við meginreglur hjúskaparlaga. Þetta varðar aðeins eitt tilbrigði af skattlagningu hjóna, aðeins þessa heimild um, að þau geti krafizt þess, að þau séu skattlögð sitt í hvoru lagi.

Að svo stöddu taldi ég ekki rétt að fara lengra út í það að breyta gagnkvæmri ábyrgð hjóna á skattgreiðslum, en ég vil leyfa mér að benda á, að ég tel, að það komi fyllilega til athugunar við áframhaldandi athugun laga um tekjuskatt og eignarskatt að vernda séreign enn meir en nú er gert að þessu leyti. Ekki á það sízt við í sambandi við eignarskatt. Það má telja, að það orki tvímælis, að annað hjóna ábyrgist með séreign sinni skatt af séreign hins.

Að öðru leyti mun ég ekki fara út í að ræða atriði þessa frv. í stórum dráttum. Það hefur verið gert hér mjög nákvæmlega af talsmönnum Sjálfstfl., og hafa þeir þar á flestan hátt sagt skoðanir mínar eins og raunar annarra þm. okkar flokks. Ég vil sérstaklega vekja athygli á lokatillögu 1. minni hl. fjhn., sem fjallar um stefnumörkun í skattlagningu hjóna, og ég tel, að sú stefnumörkun miðist einmitt við það að samræma meginreglur hjúskaparlaga, sem ég nefndi áðan, meginreglum þessara laga, sem við erum nú hér að fjalla um. En þau lög, skattalögin, hafa verið einna fjærst því í íslenzkri löggjöf að viðurkenna almennt það fyrirkomulag, sem nútímahugmyndir um fjármál hjóna miðast við.

Sú breyting, sem nefnt er í þeirri till., að stefnt verði að, felur hins vegar í sér ýmiss konar hliðarráðstafanir varðandi tekjuskattsstiga, sérstakan frádrátt, þegar hjón vinna úti og nánari ákvæði um gagnkvæma ábyrgð hjóna á skattgreiðslu.

Ég mun ekki bregðast því, sem ég lofaði hæstv. forseta í upphafi máls míns, og fer ekki nánar út í að ræða þetta frv., svo mjög sem þó margt orkar tvímætis í því, að ekki sé meira sagt, en vil afhenda hæstv. forseta þessa litlu till., sem ég flyt hér skriflega, og óska þess, að hún verði borin undir atkv.