09.03.1972
Neðri deild: 49. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 912 í B-deild Alþingistíðinda. (600)

127. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. nema um örfáar mínútur, geyma það að fara út í almennt tal um þetta mál, sem hér er á dagskrá, enda þótt nokkurt tilefni hafi verið gefið til þess. En út af því, sem hv. 12. þm. Reykv. sagði hér í ræðustóli áðan, vil ég taka það fram, eins og ég hef áður gert, út af till. á þskj. 411 frá hv. þm. Svövu Jakobsdóttur og gerði þegar frv. var lagt hér fram, að við framhaldsathugun á vinnu við tekjuskattsfrv. eða tekjuskattslögin verður unnið að því að kanna um sérsköttun hjóna, athuga það mál alveg niður í kjölinn. Ég hafði óskað eftir því, þegar nefndin var að vinna að þessum málum í haust, að koma því inn í frv., en ekki var talið, að það væri hægt, of skammur tími væri til þess, að hægt væri að koma því að svo að fullunnið væri. Þess vegna skal það vera tryggt af minni hendi, að þetta mál fái fullkomna athugun og afgreiðslu við framhaldsvinnu í tekjuskattslögunum.

Út af öðrum atriðum, sem hv. 12. þm. Reykv. kom að, þá sýndist mér, að e.t.v. mætti með reglugerðarákvæði koma því í framkvæmd, sem þar var nefnt, og mun það verða athugað, ef mögulegt reynist, sem mér sýnist, að gæti verið.

Þegar ég las till. þeirra hv. fulltrúa Sjálfstfl. í fjhn., sem eru hér á þskj. 430, þá komu mér fyrst í hug þessar ágætu hendingar úr kvæði Steins Steinars, þegar hann fékk skáldalaunin: „Eitthvað er breytt, annaðhvort ég eða þjóðin“, sagði hann. Mikið hafa þessir ágætu flm. þessara till. breytzt frá því, sem áður var. Það orkar nú tvímælis allt, hvað gert er, stendur einhvers staðar, og eins getur verið í þessu, en ég er hræddur um, að við fyrrv. stjórnarandstæðingar hefðum verið taldir ábyrgðarlitlir, ef við hefðum lagt til að draga úr tekjuöflun ríkisins, sem mér sýnist, að muni nema svona um 1–11/2 milljarði. Ég hef gert lauslegar athuganir á því, hvað þetta mundi kosta, ef þessar brtt. yrðu samþykktar, og þá er ég kominn með samtals tölur upp á tæpan milljarð, en þá eru líka nokkur atriði eftir, sem ég á ekki kost á að gera mér fulla grein fyrir, hvað kosta mundu, en mér sýnist, að þetta gæti farið nær því að vera hálfur annar milljarður. Og skelfing væri ég ánægður, ef ríkisbúskapurinn á árinu 1972 væri svo vel á vegi staddur, að hann þyldi það. En ég dreg það í efa, enda sýnist mér ekki till. við það miðaðar, heldur við það eitt að breyta frá því, sem lagt er til í frv. Ég skal svo ekki fara lengra út í það að ræða sérstakar till. þessa þskj., því að ég sé ekki ástæðu til þess eða tíma til, en ég vil hins vegar segja það, að engin bót yrði það á frv., þótt þær yrðu samþykktar, nema ef menn teldu það eitt til bóta að ná tekjum af ríkissjóði.

Ég vil aðeins segja í sambandi við það, sem kom fram hjá hv. 2. þm. Vestf. um vísitöluna, er hann fór að reikna út tapið af því að losna við nefskattana, að mörg dæmi hliðstæð mætti nú reikna út, ef það er nú orðið tap fyrir fólkið að útgjöld þeirra minnki frá því, sem áður hefur verið. En sú breyting var þó gerð í sambandi við útreikninga á vísitölunni nú, að það var tekið tillit til beinu skattanna, sem ekki hafa þó áður verið í vísitölunni og lög mæla ekki fyrir um. Ég vil líka minna á í sambandi við þetta tal um vísitöluna, að þegar menn tala um það, hvað þessir og þessir eigi að gjalda við það, að vísitalan lækki, hvers eiga þeir að gjalda, sem missa úr kaupi sínu 4.2 vísitölustig, af því þeir eiga ekki börn á framfæri? En fjölskyldubæturnar í vísitölunni kosta 4.2 vísitölustig og lækka kaupið hjá einhleypum og þeim barnlausu um þetta, ef menn vilja fara út í slíkan reikning.

Annars skal ég ekki gera það að sinni, það er alltaf hægt að leggja út í slíkar umræður, því að mörg tækifæri gefast til þess. Ég vil þó benda á í sambandi við það, sem hv. 2. þm. Vestf. ræddi hér um gamla fólkið, að samkv. þeim upplýsingum, sem ég hef, mundu þær ívilnanir, sem þeir hv. sjálfstæðismenn eru með í sínum till., ekki ná til nema um 4 þús. af ellilífeyrisþegum, sem eru þó um 14 þús. manns. Þrátt fyrir þessar breytingar mundu um 10 þús. manns ekki njóta þeirra, vegna þess að þeir hefðu ekki tekjur til. Ég vil líka benda á það, að með lágmarkstryggingum þeirra tekjulausu er gerbreyting frá því, sem áður var viðvíkjandi þessu fólki.

En það, sem ég ætla aðeins að víkja að í sambandi við ræðu hv. 5. þm. Reykv., er ekki, hverjir séu einfaldir og hverjir séu ekki einfaldir. Slíkt mat á mönnum er afskaplega oft hæpið og getur stundum byggzt á hæpnum forsendum. Hitt held ég, að sé augljóst, að skattakerfið, sem núv. ríkisstj. tók við, var ekki einfalt, og í því sambandi langar mig að vitna í fyrirrennara minn í starfi, hv. 2. þm. Norðurl. e., Magnús Jónsson, þegar hann lýsti því í fyrra, hvernig skattakerfið væri, með leyfi hæstv. forseta, með þessum orðum:

„Skattakerfið er flókið, álögð gjöld allt of mörg. Ýmsar frádráttarreglur eru flóknar og margfaldar, allt of þungt á unglingum. Skattakerfið er óeðlilega dýrt og allt of mikið af alls konar undanþágum og sérreglum.“

Ég held, að hvort sem tekst að ná einföldun þeirri, sem nauðsyn ber til, í þessari lotu, þá sé þó stefnt í þá átt, og full þörf hafi verið á því að gera kerfið einfaldara.

En ég vildi minnast á það, sem hv. 5. þm. Reykv. talaði efnislega um og mestu máli skipti í ræðu hans, en það var viðhorfið til beinna og óbeinna skatta. Það er stefnuatriði, sem auðvitað ber að meta á hverjum tíma, og í því sambandi vil ég benda á, að það er engin breyting með þessum skattafrv. frá því, sem áður hefur verið, um afstöðu til beinna og óbeinna skatta. Hins vegar vil ég segja það, að til þess að hægt sé að auka óbeinu skattana í tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga eða ríkisins sérstaklega, þá þarf að gera fleira, og það var alveg rétt hjá hv. 5. þm. Reykv., að það er hægt að nota tryggingakerfið til að jafna þar um. En tryggingakerfið, eins og það hefur verið notað og var notað af viðreisnarstjórninni, var ekkert jöfnunarkerfi. Þar fékk foreldri jafnt með einu barni og 10 börnum miðað við stykki, alveg án tillits til þess, hve börnin voru mörg eða hvernig efnahagurinn var. Það var aðeins greidd ákveðin tala fyrir hvert barn, enda var þetta sett þá inn í vísitöluna og miklu meir miðað við vísitöluna en aðra þætti í tryggingakerfinu. Með þessum hætti var þetta ekki lengur trygging, heldur aðeins tæki til að hafa áhrif á vísitöluna. Ef á að nota tryggingakerfið til að jafna á milli þeirra, sem miður mega sín í þjóðfélaginu, og hinna, sem betur eru settir, þá verður að breyta því, og það verður að miða tryggingakerfið við það, ef draga á úr beinum sköttum og fara til hinna óbeinu. Ég vil líka taka undir það, sem kom fram hjá hv. 5. þm. Reykv., að ýmis frávik t.d. frá söluskatti geta verið býsna erfið, og þess vegna verður að meta óbeina kerfið, því að eins og það er orðið nú, þá eru möguleikar til frávíka í því miðað við efnahag orðnir sáralitlir miðað við það, sem áður var, og öll viðskipti okkar við aðrar þjóðir hafa einmitt beinzt að því að minnka þessa möguleika. Þess vegna segi ég það, að til þess að hægt sé að gera óbeina kerfið virkara í tekjuöflun ríkissjóðs, þá verður að skoða þau mál betur en tími hefur unnizt til enn þá, og þá á að skoða samhengið á milli tryggingakerfisins annars vegar og þessa kerfis hins vegar.

Þess vegna vil ég undirstrika það, að brýna nauðsyn ber til að skoða það í heild, og þess vegna varð það ákvörðun núv. ríkisstj. að láta endurskoða samtímis lögin um tekjuöflun ríkisins, sveitarfélaganna og tryggingakerfisins. Þessi endurskoðun heldur áfram, og út úr þessu á að koma það kerfi, sem miðar við heildaráhrif þessara þátta á afkomu þjóðarinnar.