15.03.1972
Efri deild: 55. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 949 í B-deild Alþingistíðinda. (614)

127. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. meiri hl. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Fjhn. hefur fjallað um frv. um tekjuskatt og eignarskatt á tveimur fundum, síðan frv. var vísað til n. Á fundi n. í morgun voru komnir fulltrúar atvinnurekenda, sem ræddu við n. N. hefur ekki orðið sammála um afgreiðslu frv., en meiri hl. n. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.

Þessi tvö frv. um umbyltingu skattakerfisins, sem Alþ. hefur haft til meðferðar nú um nokkurt skeið, hafa tekið nokkrum breytingum frá því, sem áður var, og segja má, að miklar deilur hafi staðið um það, hvort nýja kerfið, sem verið er að taka upp, sé þungbærara fyrir skattþegnana en það gamla var. Ég held nú, að um þetta þurfi ekki lengur að deila. Útreikningar, sem enginn hefur vefengt, sýna, að skattbyrðin er í heildina tekið mjög svipuð og hún hefði orðið samkv. gamla kerfinu, jafnvel heldur léttari. Þessu til staðfestingar hefur meiri hl. fjhn. lagt fram með nál. sínu, sem fskj. í og II, útreikninga, sem hagrannsóknadeild Framkvæmdastofnunarinnar hefur gert um álagningu samkv. frv., eins og því hefur nú verið breytt, þ.e. tekjuskattsfrv. og einnig tekjustofnafrv., og borið það saman við álagninguna eins og hún hefði orðið samkv. lögunum, sem samþ. voru á s.l. vori og samkv. því skattakerfi, sem notað var seinast, þegar á var lagt.

Ef litið er á þessar töflur og þá sérstaklega töfluna í fskj. II, sem er eins konar útdráttur úr fyrri töflunni, útdráttur, sem raðað er saman á þann máta, að það verði vel skiljanlegt, hvað við er átt, þá sýnir taflan, að heildarskattbyrðin er mjög svipuð og verið hefði samkv. gamla kerfinu. Hún lækkar úr 7 641 millj. kr. í 7 331 millj. kr. eða um rúmlega 4% frá því, sam verið hefði, ef lögin, sem giltu við álagninguna 1970–1971, hefðu verið notuð í þetta sinn.

Út úr þessum töflum má í fyrsta lagi lesa það, að heildarskattbyrðin lækkar greinilega um rúm 4%.

Í öðru lagi sést, að samanlagðir nefskattar, tekjuskattar og útsvör eru um 370 millj. kr. lægri samkv. nýja kerfinu en því gamla, lækka úr 5 956 millj. kr. í 5 586 millj. kr., eins og sjá má af þessari töflu. Þótt ekki sjáist það á þessum tölum, er augljóst, að innlimun nefskattanna í tekjuskattinn veldur hjá lágtekjufólki almennri skattalækkun, sem er þá borin uppi með heldur hærri sköttum á hátekjumenn.

Í þriðja lagi er rétt að benda á, að tafla þessi sýnir, að eignarskattar einstaklinga hafa hækkað um 94 millj. kr., en aðstöðugjöld einstaklinga lækka um 50 millj. kr. Skattar af tekjum félaga hafa vaxið um 12 millj. kr. Eignarskattar félaga hafa vaxið um 183 millj. kr., en hins vegar hafa aðstöðugjöld fyrirtækja lækkað um svipaða upphæð. Í heildina tekið er því óhætt að draga þá ályktun, að um er að ræða heldur þyngri skatta á fyrirtæki og eignaaðila en samkv. því kerfi, sem áður var notað, en munurinn er þó ekki mikill.

Í fjórða lagi er sérstaklega athyglisvert, að skattar af fyrirtækjum og eignaaðilum hefðu orðið 450 millj. kr. lægri, ef notazt hefði verið við það skattkerfi, sem fráfarandi ríkisstj. fékk samþ. á Alþ. á s.l. vori, 450 millj. kr. lægri. Þá á ég við skatta á fyrirtæki og eignaaðila, þ.e. skatta einstaklinga af eignum og rekstri. Eignarskattar einstaklinga hefðu lækkað mjög verulega, og tekjuskattar félaga hefðu lækkað um meira en helming. Enginn þarf að efast um það, að stórlega minnkuð skattbyrði á fyrirtæki og eignaaðila hefði orðið á kostnað almennings með einhverjum hætti, annaðhvort með lægri útgjöldum ríkisins til almennra þarfa eða með hærri söluskatti á allar vörur.

Þegar nú liggur fyrir, að samanlagðir tekjuskattar eru 370 millj. kr. lægri en nefskattar, tekjuskattar og útsvör hefðu orðið samkv. gamla kerfinu, þá gætu kannske einhverjir freistazt til þess að spyrja sig þeirrar spurningar, hvort heildarupphæðin á skattseðlinum yrði almennt lægri en í fyrra. Það er rétt að undirstrika það, að það má ekki draga þá ályktun af þessu. Skattar munu vafalaust hækka í krónutölu hjá mjög mörgum gjaldendum. Í fyrsta lagi er talið, að brúttótekjur manna hafi hækkað að meðaltali um 21.5% milli áranna 1970 og 1971. Í öðru lagi veldur innlimun nefskattanna í tekjuskattinn því, að tekjuskattsupphæðin á miðlungstekjur og hátekjur verður heldur hærri en áður. Af þessum tveimur ástæðum munu margir fá stórum hærri skatta í krónum talið, og sjálfsagt eiga einhverjir eftir að bölva hressilega. En ég vil undirstrika það, að þess vegna er ekki unnt að tala um almennt aukna skattbyrði. Þetta eru tvö aðskilin atriði. Byrðinni er dreift með réttlátara hætti, og þess vegna hlýtur hún að þyngjast hjá ýmsum og léttast hjá öðrum.

Það er rétt að taka það skýrt fram, að það, sem hér hefur verið sagt, miðast við skattvísitölu 106.5, þ.e. vísitölu í samræmi við hækkun framfærsluvísitölu milli áranna 1970 og 1971. Hv. stjórnarandstæðingar hafa haldið því fram, að eðlilegt hefði verið að ákveða skattvísitöluna 121.5 stig til samræmis við þá staðreynd, að reiknað er með, að tekjur manna hafi að meðaltali aukizt um 21.5% milli áranna 1970 og 1971. Vissulega er það rétt hjá talsmönnum hv. stjórnarandstöðu, að skattvísitala, sem ekki er í takt við síaukna dýrtíð og peningaveltu, leiðir til þyngri skattabyrðar. Spurningin er hins vegar sú, við hvað rétt sé að miða, hvort eðlilegra sé, að skattvísitalan fylgi hækkandi verðlagi eða hækkandi kaupgreiðslum. Fyrst er rétt að hafa í huga, hvað það er, sem á að breytast í samræmi við skattvísitölu. Það er fyrst og fremst persónufrádráttur einstaklinga, en hann má skoða sem eins konar nauðþurftatekjur hvers heimilis. Í tekjuskatti er persónufrádráttur meðalfjölskyldu, þ.e. hjóna með tvö börn, eins og kunnugt er 280 þús. kr. eða um 23 300 kr. á mánuði. Það er þetta, sem mætti kannske kalla nauðþurftatekjur meðalfjölskyldu. Um leið og verðlag á almennum neyzluvarningi hækkar, er að sjálfsögðu óhjákvæmilegt að hækka persónufrádráttinn og þá fyrst og fremst persónufrádráttinn í sömu hlutföllum, og einmitt þess vegna verður að teljast eðlilegast, að skattvísitalan sé miðuð við framfærsluvísitölu.

Það er rétt að rifja það hér upp, hvernig skattvísitala hefur verið ákveðin síðustu 10 árin. Það hefur áður verið gert að nokkru leyti, en skal hér endurtekið. Á árunum 1960–1963 var skattvísitalan látin standa í stað, þrátt fyrir það að tekjur færu stórlega vaxandi og framfærslukostnaður að sama skapi. Oft óx dýrtiðin jafnvel enn hraðar, eins og kunnugt er. Árið 1965 fékkst svo aftur jafnvægi milli skattvísitölu og framfærsluvísitölu miðað við fimm undangengin ár, en þá hafði vísitala meðaltekna launþega komizt nokkuð fram úr. Árin 1967–1969 stóð skattvísitalan í stað, en hækkaði talsvert 1970 og 1971. Af þessu held ég, að megi verða ljóst, að skattvísitalan hefur oftast fylgt í humátt á eftir framfærsluvísitölu, og þó var skattvísitalan talsvert á eftir framfærsluvísitölunni um næstseinustu áramót. Aftur á móti er augljóst, að það er fjarri lagi, að skattvísitalan hafi fylgt breytingum á meðalatvinnutekjum í þjóðfélaginu.

Nú kunna menn að segja, að ávirðingar fyrri ríkisstj. séu í sjálfu sér engin afsökun fyrir hina nýju ríkisstj. Það hljóti að vera eðlilegast, að skattvísítalan sé látin fylgja þétt í kjölfar vísitölu meðalatvinnutekna, því að ella fari skattarnir hlutfallslega vaxandi miðað við tekjur. Og það skal fúslega viðurkennt, að þegar þannig stendur á, að tekjur manna vaxa hraðar en verðlag á neyzluvörum, sem hlýtur að hafa þær afleiðingar, að launakjör fara raunverulega hatnandi og kaupmáttur launanna er að aukast, þá verður afleiðingin sú, ef skattvísitalan er látin fylgja framfærsluvísitölu, að skattarnir verða hlutfallslega hærri miðað við heildartekjur manna. En ég vil undirstrika í þessu sambandi, að það er ekki þar með sagt, að hægt sé að segja, að skattabyrðin hafi þyngzt. Ef verðlag á nauðsynjavörum hreyfist hægar upp á við en tekjurnar, verður meira afgangs hjá hverjum og einum, þegar búið er að greiða nauðþurftaútgjöld, sbr. það, sem ég hef áður sagt um persónufrádráttinn, og það er skatturinn á þessar auknu umframtekjur, sem gerir skattupphæðina hlutfallslega hærri miðað við heildartekjur. En skattprósentan á umframtekjurnar sjálfar, á það, sem eftir er, þegar búið er að draga nauðþurftaútgjöldin frá, er samt sem áður hin sama og fyrr, og það er það, sem máli skiptir í þessu sambandi.

Þetta fyrirkomulag skattvísitölunnar er einnig eðlilegt og óhjákvæmilegt, ef litið er á málin í víðara samhengi. Þegar almennar launatekjur aukast hraðar en verðlagið og meira verður afgangs hjá hverjum og einum, þá er að sjálfsögðu óheilbrigt, að þessum viðbótartekjum í þjóðfélaginu sé öllum varið í einkaneyzlu í þjóðfélaginu. Samneyzlan hlýtur að verða að vaxa í svipuðum mæli og einkaneyzlan, og hærri lífskjör kalla á auknar kröfur um þjónustu ríkis og sveitarfélaga. Hvernig ætti að vera mögulegt að auka lífeyrisgreiðslur til öryrkja og aldraðra um 32–104%, eins og nú hefur verið gert á hálfu ári, án þess að skattar verði hlutfallslega heldur hærri en áður? Hvernig ættum við að geta stóraukið sjúkrahúsbyggingar, skólabyggingar og ýmiss konar verklegar framkvæmdir, án þess að skattgreiðendur greiði sama hlut og áður af viðbótartekjum sínum, sem umfram eru nauðþurftir, til sameiginlegra þarfa þjóðarinnar? Og ég spyr enn: Hvernig á ríkið að fara að því að greiða starfsmönnum sínum launahækkun, sem nemur talsvert hærri hlutfallstölu en almenn tekjuaukning í þjóðfélaginu hefur verið á sama tíma, án þess að skattprósentan sem slík miðað við tekjurnar verði eitthvað hærri? Ég vil leyfa mér að segja, hvað þetta snertir, að skattar hljóta að hækka. Þeir verða almennt hærri í krónutölu en áður, og skattprósentan á eftir að hækka hjá mörgum. En þeir, sem hækka, hafa breiðari bök en áður. Byrðin þyngist ekki nema hjá þeim, sem meiri afgang hafa, og ekki hjá öðrum en þeim, sem hæstar hafa tekjurnar og eru raunverulega að létta byrðina á þeim tekjulægstu. Í heild er hins vegar skattabyrðin svipuð og áður, jafnvel heldur minni miðað við eðlilega skattvísitölu.

Hins vegar er það að sjálfsögðu aðalatriði þessa margumrædda skattamáls, að nú er verið að gera skattakerfið einfaldara og réttlátara en verið hefur. Það er verið að stíga fyrsta skrefið í þá átt að ryðja til og grisja í frádráttafrumskóginum, sem hingað til hefur útilokað, að tekið væri upp staðgreiðslukerfi skatta. Hinir margvíslegu aukafrádráttarliðir hafa afskræmt skattakerfi okkar og eiga nokkra sök á því, hve skattarnir lenda misjafnlega þungt á fólki. Skattakerfið þarf að minni hyggju að vera svo einfalt, að sjá megi í fljótu bragði, hvern skatt menn eigi að fá, svo að mögulegt verði að draga skattinn jafnóðum frá tekjum. Ég spyr að lokum: Hvers vegna skyldi flestu fólki vera miklu verr við beina skatta en óbeina, jafnvel þó að þetta sama fólk viti, að óbeinu skattarnir eru óréttlátari og beinlínis þyngri byrði? Það er að sjálfsögðu vegna þess, að menn sjá ekki krónurnar, sem greiddar eru í söluskatt eða toll. Beini skatturinn er hins vegar tekinn beint upp úr peningaveski hvers og eins, og fæstir hafa hugmynd um, hvort skattframlag þeirra er sanngjarnt og rétt reiknað eða ekki.

Ég vil segja að lokum: Skattbreytingin, sem nú er á döfinni, er hin mesta og róttækasta, sem átt hefur sér stað í marga áratugi. Þessi breyting leiðir tvímælalaust til meiri jöfnunar og einföldunar en áður var, og þó er þetta vonandi aðeins fyrsta sporið af mörgum, sem stiga verður í átt til einfaldara og réttlátara skattakerfis.