15.03.1972
Efri deild: 55. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 963 í B-deild Alþingistíðinda. (616)

127. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. 2. minni hl. (Jón Árm. Héðinsson):

Herra forseti. Ég ætla hér í nokkrum orðum að gera grein fyrir afstöðu minni. Það er nú búið að ræða svo mikið um útreikninga og vísitölu og þar fram eftir götunum, og í raun og veru gæti ég sleppt því að fara að lengja þær umr. En ég ætla að sjá til, hvað tími hrekkur til.

Ég skila sérnál. nr. 456 og rek þar, að aðdragandi þessara frv. og meðferð öll hér í þinginu er með nokkuð sérstæðum hætti. Við höfðum mjög spurt um það, hverjir hefðu samið frv. Það fékkst ekki upp gefið. Það kemur hér fram í nál. hjá mér, að ríkisskattstjóri hafi skilað löngum aths. En það er ein prentvilla. Það á að standa „rúmlega 12 vélritaðar bls.“, en stendur „rúmlega 13 vélritaðar síður.“ Hann skilaði þessum aths. við frv. á einum nefndarfundi hjá okkur. Bæði voru þessar aths. efnislegar og einnig tæknilegar. Og hann fór ekki dult með það, að erfitt gæti verið í vissum tilfellum að tryggja þannig framkvæmd laganna, að ekki yrði ágreiningur og tilefni til málaferla. Langbezt væri að komast hjá því, að slík löggjöf ætti sér stað, en því miður er skattamálum þannig háttað, að það þarf mikinn tíma og raunar aðeins sérþjálfaða menn til þess að semja slíka löggjöf og tryggja þannig, að ekki komi til missagna eða mistúlkunar, svo að endi með málaferlum og dómstólum.

Það er auðvitað augljóst og hefur verið viðurkennt hér áður úr ræðustóli, að hæstv. ríkisstj. þarf stórauknar tekjur. Það er búið að afgreiða fjárlög, sem eru með rúmlega 5 milljarða útgjaldaaukningu frá síðustu fjárlögum og auðvitað þarf að mæta þessum útgjöldum á einhvern hátt. Þessara tekna er aflað með margvíslegu móti, og einn þátturinn eru beinir skattar á einstaklinga og fyrirtæki. Mér virðist, hvernig sem reiknað er, að fyrirtækin muni bera kringum 500 millj. kr. aukningu, og held ég, að um það sé ekki deilt. Um hitt er deilt meira, hversu beinu skattarnir hækka og á hvaða hátt þeir munu dreifast. Það hefur verið undirstrikað, að þeir eigi að dreifast á hin breiðu bök í þjóðfélaginu, þ.e. tekjuhærri einstaklinga. Við hins vegar vefengjum það, að frv. tryggi, að slíkt eigi sér stað.

Það má deila um það, með hvaða hætti skattbyrðin kemur fram, og taka mismunandi afstöðu til talna. Mér dettur í hug einfalt dæmi. Maður, sem s.l. ár hefur haft 800 þús. kr. tekjur og greitt 400 þús. kr. í skatta, þ.e.a.s. helming, 50%. Nú vaxa tekjur hans upp í 1 millj. kr., og hann greiðir 600 þús. kr. Hann hefur sömu 400 þús. kr. til ráðstöfunar. Ég tel, að maðurinn hafi hækkað í skattbyrði tvímælalaust, þótt ráðstöfunartekjur hans séu áfram 400 þús. kr. Sumir mundu segja, að maðurinn væti ekki verr settur. Ég tel, að hann sé nokkru verr settur, því að með aukningu á tekjum má búast við, að annað hafi vaxið í þjóðfélaginu miðað við reynslu undanfarinna ára. Ef svo væri ekki, þ.e. allt annað stæði kyrrt, væri maðurinn ekki verr settur. Svona má mistúlka afstöðu í tölum og rífast um það endalaust, en ég ætla ekki að eyða miklum tíma í það.

Ég hef leyft mér að bera fram tvær brtt., sem skipta þó nokkru máli og þó sérstaklega fyrir eldra fólkið, á þskj. 449. Hin fyrri fjallar um fyrningu á húseignum. Það var gefin út reglugerð um það mál um s.l. áramót, og þar var kveðið svo á, að framvegis skuli raunverulegur viðhaldskostnaður af íbúðarhúsum ekki vera frádráttarbær, heldur skuli jafnan telja 1.5% fasteignamats steinhúsa og 2% fasteignamats timburhúsa sem viðhaldskostnað. Ég held, að þetta geti komið aftan að einhverjum, sem hafa staðið í viðhaldi á s.l. ári og lagt í því sambandi fram tilskildar nótur og jafnvel tekið stóran hluta tekna sinna til viðhalds á grundvelli þeirra laga, sem eru í gildi enn þá, þannig að hér kunna að risa vandamál. og þess vegna væri bezt að forðast þau og taka þennan þátt fyrir í endurskoðun á löggjöfinni, sem boðuð hefur verið. Ég held, að útilokað sé annað en að margir einstaklingar muni lenda í leiðindum út af þessum þætti, ef hann verður ekki felldur niður, og þetta skiptir ríkissjóð bókstaflega sama og engu. Það skiptir samt nokkru máli í framkvæmd núgildandi laga og örugglega við gildistöku þessara laga.

Í öðru lagi er um frádráttarreikning að ræða fyrir aldraða fólkið, og skýrir gr. sig sjálf, og þarf ég ekki að eyða miklum tíma í það.

Þriðja liðinn í brtt. vil ég leyfa mér að taka aftur, vegna þess að hæstv. fjmrh. hefur lýst því í Nd., að hann telji eðlilegt, að sköttun hjóna komi inn í endurskoðunina, og hefur þess vegna þessi liður fengið fulla viðurkenningu, og ég vil einnig þakka honum sérstaklega fyrir það, að hann hefur núna boðið upp á það við áframhaldandi endurskoðun skattalaganna, að stjórnarandstaðan fái sína fulltrúa í þessum endurskoðunarnefndum. Það er mjög mikilvægt, og það mundi áreiðanlega spara tíma og deilur um viss túlkunaratriði í löggjöfinni, ef allir flokkar ættu framvegis sína fulltrúa við mótun löggjafarinnar. Hitt er svo annað mál, að það er sjálfsagt, að ríkisstj. á hverjum tíma láti sína trúnaðarmenn fjalla um einstaka þætti, en engu að síður er þetta þakkarvert að bjóða upp á aðild að jafn viðkvæmu máli og skattalöggjöf er hverju sinni, og ég þakka honum aftur fyrir það.

Það kemur fram í nál. mínu, að ég teldi heppilegast miðað við orð ráðh, og miðað við það, sem frv. bera með sér, að frv. yrði vísað til ríkisstj., þar sem yfirlýst er, að endurskoðun þarf að fara fram á komandi sumri. Hins vegar tek ég skýrt fram, að Alþfl. er tilbúinn að standa að tekjuöflun vegna trygginganna og annarra lífsnauðsynlegra útgjalda, sem eru eðlileg og við höfum allir staðið að að samþykkja hér í hv. Alþ., og yrði það að skoðast þá sérstaklega með hliðsjón af gildandi lögum og hvað þau lög mundu færa ríkissjóði í tekjur, og ætti nú ekki að vera vandamál að sjá það út, svo miklir reikningar hafa átt sér stað í því efni.

Ég vildi minnast hér á eitt atriði, sem hefur ekki verið rætt, held ég, af neinum, en það er raunverulega skipulagsbreyting, sem er fjallað um — það er 13. gr. núna, held ég, eftir 2. umr. í Nd., en var 12. gr. í frv. — og svo nokkrum gr. á eftir, það er um skipulagsbreytingu á ríkisskattanefnd o.fl. Mér virðist, að í 13. gr. segi: „Í ríkisskattanefnd eiga sæti þrír menn og þrír til vara.

Fjmrh. skipar formann og varaformann nefndarinnar.“ Ég sé ekki, að hér sé um tímabundna skipun að ræða, og vildi þess vegna spyrja: Er hér raunverulega um ævistarf að ræða hjá þeim mönnum, sem yrðu skipaðir í þetta, þannig að þeir gætu setið í þessari nefnd ævilangt? Hins vegar segir hér neðar í gr.: „Aðra nm. og varamenn skipar ráðh. til fjögurra ára úr hópi sex manna, sem Hæstiréttur tilnefnir sem hæfa til starfsins.“ Hér er um mikilvæga skipulagsbreytingu að ræða. Ég held, að það hafi farið fram hjá mér, ef hæstv. ráðh. hefur fjallað um síðasta kafla frv., sem er um framkvæmd og skipan þessara mála. Ég skal ekki á þessu stigi dæma um nauðsyn þess nú þegar, en hér er áreiðanlega, held ég, stefnt í rétta átt. En fróðlegt væri að heyra nokkru nánar um þennan þátt fyrir okkur, því að þetta er mjög mikilvægt einmitt í sambandi við framkvæmd á löggjöfinni, hvernig til tekst og með úrskurði o.fl., sem er fjallað um í næstu greinum hér á eftir.

Margt mætti segja um bæði skattafrv. í heild, því að það verður að skoða þessi frv. í einni heild. Þau eru svo nátengd, frv., sem við erum búnir að afgreiða úr þessari d., og núv. frv. um tekjuskatta. Það er margyfirlýst og viðurkennt, að íslenzk fyrirtæki standa höllum fæti í samkeppni við erlend fyrirtæki. Ég dreg það í efa, að með gildistöku þessara frv. sé staða íslenzkra fyrirtækja þannig sett, að þau geti mætt vaxandi samkeppni. Það er fyrir hendi, að þau eiga von á vaxandi samkeppni í heiminum með ýmsu móti, á iðnaðarsviðinu sérstaklega, og ýmsu öðru móti, og íslenzk fyrirtæki geta því aðeins verið hér blómleg og veitt tryggt og gott atvinnulíf, að samkeppnisaðstaða þeirra sé trygg. Það varð niðurstaða á hv. Alþ., að allir flokkar utan einn, Alþb., voru með aðild okkar að EFTA. Hvað sem verður um EFTA, þá mun hitt eftir standa, að við þurfum að selja til Evrópu og annarra landa og selja á samkeppnishæfu verði. Til þess að það megi takast, þarf hvert fyrirtæki að hafa eðlilega möguleika til fjármögnunar og afskrifta og endurnýjunar. Ef það er ekki fyrir hendi, þá lognast fyrirtækið út af.

Það er nokkuð deilt um það, hvernig þessi skilyrði eigi að vera, og það hefur verið mjög hart deilt á þá löggjöf, sem þáv. meiri hl. stóð að á síðasta þingi og er talin stefna út í ógöngur um jafnvel of góð skilyrði, og þess vegna sé nauðsynlegt að draga nú mjög úr þeim góðu skilyrðum og setja núv. ákvæði um afskriftir, endurnýjunarverð og ýmislegt fleira inn í frv., sem ég ætla ekki að fara að tyggja hér allt upp, en ég tel. að þar sé fulllangt gengið. Það var deiluatriði um suma þætti í fyrra, og var ég ekki alls kostar ánægður með allt saman, en ég tel. að hér sé fulllangt gengið til baka, vegna þess að þegar til lengdar lætur, þá er það öllum fyrir beztu, að fyrirtækin þurfi ekki alltaf að vera að koma til ríkissjóðs og biðja um sífellt framlag með hungurnefndir hingað og þangað utan af landinu, betlandi tugi millj. úr ríkissjóði. Hitt væri miklu betra, ef hægt væri að skapa þeim sómasamleg skilyrði, þannig að rekstraraðstaða þeirra væri tryggð í eðlilegu árferði frá ári til árs undir skynsamlegri stjórnun. Það yrði ríkissjóði fyrir beztu. Það gæti skapað jafnasta atvinnu og tryggustu tekjurnar. Ég held, að frv. gangi of langt í að þrengja þessa rekstrarmöguleika hjá fyrirtækjum á ýmsum sviðum, og því var lýst hér áðan, hvað samtök vissra atvinnugreina hafa við þessi frv. að athuga. Ég þarf ekki að lesa það upp. Við skulum ekki taka slíkt bréf of bókstaflega í öllum tilfellum. Ég vil t.d. minna á eitt, sem ég tel ekki skynsamlegt, einmitt núna, þegar hin mikla aukning togaraflotans á sér stað, að fella niður þann möguleika að geta afskrifað visst fjármagn. sem bundið er í samningum, t.d. um togarakaup, en menn verða oft að selja eignir sínar og binda fjármagn í nærri tvö ár, áður en rekstrareiningin fer að fullu af stað. Þetta var gert í síðustu lögum. Þar var sett heimild fyrir því að afskrifa ákveðinn þátt í þessu sambandi, og ég tel það spor aftur á bak að fella þá heimild niður.

Einnig í sambandi við þessi frv. væri fróðlegt að heyra, hvernig þau eiga að tryggja láglaunafólki þessa margumtöluðu kaupmáttaraukningu. Þau eru auðvitað aðeins einn þátturinn af ráðstöfunarfjármagninu. Tryggingalöggjöfin hjálpar til, en láglaunafólkið, hvað sem í því hugtaki felst, á ekki að borga skatta. Það hafa allir lýst yfir því, að það ætti ekki að gera það. En mér sýnist, að viðmiðunarskalarnir teygi sig nú mjög langt niður, þannig að ég held, að margir, sem telja sig aðeins hafa lífsnauðþurftatekjur, komist nú á blað á skattseðlinum. Við höfum undirstrikað það, held ég, allir flokkar, að við teljum það alveg sjálfsagt, að slíkar nauðþurftatekjur séu ekki skattlagðar. Hins vegar hafa menn deilt um það, hversu slíkar nauðþurftatekjur eiga að vera háar, hvort það eigi að vera 250 þús. eða 350 þús. kr. brúttótekjur fyrir t.d. hjón með tvö börn eða ekki. Auðvitað fer það mjög eftir persónulegum aðstæðum, hvernig fólkið kemst af. Eru menn í nýju húsnæði, er hér um eldra fólk að ræða eða ung hjón o.s.frv.? Engu að síður tel ég, að viðmiðunartalan sé sett of lág, og þess vegna sé hætta á því. að nokkuð af fólki, sem hafi raunverulega lífsþurftatekjur, muni nú greiða skatta. En útreikningar eiga að sanna manni það miðað við skynsamlega skattvísitölu, að slíkt sé ekki. Hafi hins vegar tekjur vaxið um rúmlega 21%, þá auðvitað tryggir skattvísitalan, sem er 6.5 stig frá árinu í fyrra, slíkt alls ekki. Til þess að tryggja, að ekki væri um aukna skattbyrði að ræða, þá hefði skattviðmiðunin átt að vera a.m.k. hliðstæð tekjuaukningunni.

Herra forseti. Ég vil nú ekki lengja þessar umr. meira. Það yrði mikið af endurtekningu og deilu um keisarans skegg. Ég vefengi ekki útreikningana sem slíka. Hins vegar vefengi ég þær forsendur, sem eru fyrir þessum útreikningum, sem meiri hl. leggur hér fram. Ég tel, að langbezt hefði verið og hreyfði því á sameiginlegum fundi í n., að við hefðum fengið raunverulega útreikninga á 100–200 framtölum einstaklinga og borið þau saman við framtölin frá fyrra ári. Þá var óþarft að deila svo mjög um, hvað fólst í vissum breytingum.

Ég sagði hér áður, þegar ég hafði séð frv. við fjárlagaumr., að mér þætti margt vera til bóta í frv., og það er auðvitað rétt, og þarf ég ekki að tíunda það, því að það er mjög búið að halda því á lofti. Það mátti nú varla búast við öðru en eitthvað væri til bóta. Hér er um mikla gagngerða breytingu að ræða, en engu að síður teljum við samt vera svo mikið fólgið í þessum breytingum, sem orkar tvímælis, að við höfum lagt það til í Alþfl., að frv. yrði vísað til hæstv. ríkisstj. til áframhaldandi meðferðar, vegna þess að það er yfirlýst, að skattalög öll verða tekin til endurskoðunar nú þegar á komandi sumri. Og þá segir það sig sjálft, að þessi löggjöf getur ekki verið fullkomin.