16.12.1971
Efri deild: 30. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 982 í B-deild Alþingistíðinda. (628)

133. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Frv. það um tekjustofna sveitarfélaga, sem hér er nú tekið til umr„ er samið af nefnd, sem ég skipaði með bréfi dags. 16. ágúst í sumar til að endurskoða gildandi löggjöf um tekjustofna sveitarfélaga, lög nr. 51 frá 1964. Í nefnd þessari áttu sæti Alexander Stefánsson oddviti. Jóhann Hermannsson bæjarfulltrúi, Ólafur Jónsson framkvæmdastjóri, Steinunn Finnbogadóttir borgarfulltrúi og Hjálmar Vilhjálmsson ráðuneytisstjóri, sem jafnframt var skipaður formaður nefndarinnar. Við þetta tækifæri vil ég tjá nefndinni beztu þakkir fyrir fljótt og vel unnið starf. Ég veit, að það liggur mjög mikið starf á bak við þetta frv.. sem ekki kemur í ljós við birtingu þess. Og hvaða gagnrýni sem fram kann að koma um einstök atriði frv., er ég sannfærður um. að til meginkosla þess má a.m.k. telja þetta: 1. Kerfið verður einfaldara. 2. Tekjur sveitarfélaganna taka minni sveiflur í mismunandi árferði, — og það tel ég megin- og höfuðkostinn. 3. Skattatilfærsla færist í réttlátara horf í þessu frv. Og vafalaust mætti þó telja fleira frv. til kosta.

Þessu næst skal ég þá snúa mér að efnisatriðum frv. Að efnisskipan er frv. í nálega sama formi og þau lög, sem nú gilda um þessi efni. En hins vegar felast í frv. verulegar breytingar. Ég vildi segja, að í því felist fjöldi nýmæla. svo að vel megi jafnvel segja, að um nýtt skattkerfi sveitarfélaganna sé hér að ræða.

Nú mun ég gera nokkra grein fyrir þessum helztu breytingum og nýmælum: Strax í 1. gr. frv. er um mikilsverða breytingu að ræða. þar sem lagt er til, að aðstöðugjöld verði lögð niður, svo sem nánar verður að vikið síðar. Er þó ráð gert fyrir því, að heimilt verði á næsta ári að leggja á hálft aðstöðugjald, sbr. 1. tölul. ákvæða til bráðabirgða. En þetta er einungis bráðabirgðaheimild, sem gildir næsta ár. Að öðru leyti eiga aðstöðugjöldin sem tekjustofn sveitarfélaga til frambúðar að falla niður.

Áður en ég vík nánar að einstökum ákvæðum frv., vil ég taka það skýrt fram, að frv. er byggt á því, að gerðar verði breytingar á öðrum lagaákvæðum um leið og frv. öðlast lagagildi. Þær breytingar, sem hér um ræðir, eru helztar þessar:

1. Framlag sveitarfélaga til lífeyristrygginga verði fellt niður. Hér er um að ræða lækkun á útgjöldum sveitarfélaganna, sem á árinu 1971 námu samtals fyrir landið allt 314 millj. kr. Vegna þeirrar miklu hækkunar, sem áformað er nú, að gerð verði á bótum lífeyristrygginga, gefur auga leið, að framlög sveitarfélaganna til almannatrygginganna mundu stórhækka strax á næsta ári að óbreyttum lögum um þetta efni. Skv. gildandi lögum greiða sveitarfélögin 18% af þessum útgjöldum til trygginganna.

2. Framlög sveitarfélaganna til sjúkratrygginganna verði lækkuð um helming. Þessi framlög námu á árinu 1971 á öllu landinu samtals 373 millj. kr. Hér er því um lækkun á útgjöldum sveitarfélaga að ræða, sem nemur ca. 186 millj. kr. miðað við árið 1971. Útgjöld til sjúkratrygginga hafa hins vegar aukizt hröðum skrefum ár frá ári á síðustu árum og horfur eru nú á, að sú þróun haldi áfram. Þátttaka sveitarfélaganna í sjúkratryggingum hefur numið ca. 20% af heildarkostnaði þeirra. Þetta mundi þá lækka í 10%.

3. Kostnaði sveitarfélaga vegna löggæzlu verði af þeim létt. Gert er ráð fyrir, að þessi kostnaður verði ca. 112 millj. kr. á árinu 1971. Og þeir, sem bezt þekkja til þessara mála, álíta, að kostnaður vegna löggæzlu muni aukast mjög á næstu árum. En þessum útgjaldalið er nú af sveitarfélögunum létt, ef þetta frv. verður að lögum.

Þessi þrjú atriði, sem nú voru talin, eru algjör forsenda þess, að mögulegt sé að lögfesta þetta frv., og bið ég menn að hafa það í huga. Þess má raunar geta, að hér er um að ræða breytingar, sem um langan tíma hafa verið mikið áróðurs- og áhugamál Sambands ísl. sveitarfélaga og sveitarstjórnarmanna yfirleitt. Fjárhagserfiðleikar sveitarfélaganna, einkum þeirra, sem erfiðast eiga, eru ekki hvað sízt fólgnir í þessum útgjöldum þeirra. Tel ég mig geta fullyrt, að þessar breytingar eiga að fagna einróma stuðningi úr þeirri átt. Ekki eru siður mikilvægar þær breytingar á almannatryggingalögum, sem einnig er gert ráð fyrir, að lögfestar verði við gildistöku þessa frv., og fela það í sér, að niður verði felld persónuiðgjöld til lífeyristrygginga almannatrygginganna og iðgjöld einstaklinga til sjúkrasamlaganna. Í sambandi við breytingar þær, sem gert er ráð fyrir að gerðar verði á ákvæðunum um útsvörin, er niðurfelling þessara persónugjalda alveg nauðsynleg, og mun ég ræða það nánar síðar.

Þá kem ég að einstökum breytingum, sem frv. hefur í för með sér. Á 9. landsþingi Sambands ísl. sveitarfélaga, sem haldið var dagana 8.–10. sept. 1970, var samþ., að ég hygg einróma, að stefna að því, að hlutur fasteignaskatta í heildartekjum sveitarfélaga hækki nokkuð frá því sem nú er. Á yfirstandandi ári nam þetta hlutfall rúmlega 3.7%, en þetta hlutfall lækkaði mjög tilfinnanlega á þessu ári. Samkv. frv. er sennilegt, að hlutur fasteignaskatta hækki verulega eða verði um eða yfir 15% í heildartekjunum á næsta ári.

Nú um áramótin kemur í gildi nýtt fasteignamat. Í frv. er gert ráð fyrir því, að fasteignaskatturinn verði miðaður við hið nýja mat strax á næsta ári. Breytingar þær, sem verða á fasteignaskattinum, ef frv. verður að lögum, eru þessar: Samkv. gildandi lögum eru öll hús í sama gjaldflokki, án tillits til afnota þeirra. Lagt er til, að íbúðir og íbúðarhús með tilheyrandi lóðaréttindum verði í lægri skattflokki en aðrar húseignir. Gert er ráð fyrir tveim skattflokkum, en nú eru skattflokkarnir þrír. Auk íbúðanna eru í lægri skattflokknum erfðafestulönd og jarðeignir, sem ekki eru nytjaðar til annars en landbúnaðar, útihús og mannvirki á bújörðum, sem tengd eru landbúnaði. Lagt er til, að allar aðrar fasteignir, sem metnar eru í fasteignamati, verði skattlagðar í hærri skattflokknum, sem er tvöfalt hærri en hinn skattflokkurinn.

Samkv. gildandi lögum getur sveitarstjórn þrefaldað fasteignaskatt með reglugerð, sem ráðh. staðfestir. Og mörg sveitarfélög hafa notað þessa heimild. Yfirleitt hefur verið um þreföldun að ræða á þessum skattstofni fram til þessa. Mörg sveitarfélög hafa alveg notað þessa heimild til fulls. Lagt er til í þessu frv., að sveitarstjórnir hafi heimild til að hækka skattinn aðeins um 50% og ekki þurfi að leita staðfestingar ráðh. á þeirri hækkun. Ástæðulaust þykir að láta sveitarstjórn vera háða samþykki rn. um að leggja 50% álag á fasteignaskattinn, sem verður 1/2% af íbúðarhúsnæði og húsnæði, sem notað er til þjónustu landbúnaðar, en 1% af öðrum skattskyldum fasteignum. Með þessu ákvæði má raunar segja, að frjáls ákvörðunarréttur sveitarfélaganna sé aukinn fra því sem nú er. Vegna þeirrar verulegu hækkunar á fasteignaskatti, sem óhjákvæmilega leiðir af frv., ef að lögum verður, þótti nauðsynlegt að setja ákvæði um heimild handa sveitarstjórnum til að lækka eða fella niður fasteignaskatt þeirra aðila, sem um ræðir í síðustu málsgr. greinarinnar, svo sem þar er lagt til. Heimild þessi er þröng, þar sem hún nær aðeins til elli- og örorkulífeyrisþega og kemur því aðeins til greina, að efnahagur þeirra og afkoma sé slík, að þeir geti ekki mætt hækkuðum útgjöldum vegna opinberra gjalda. En þessi heimild er þarna til þeirra, sem brýnast er, að hún nái til.

Svo sem fram kemur í aths. við frv., má gera ráð fyrir, að fasteignaskattur í landinu öllu hækki úr ca. 127.7 millj. kr. í ca. 525 millj. kr., ef frv. verður að lögum, eða geri sem sagt nokkru betur en að fjórfaldast. Eins og áður segir, má ætla, að hlutdeild skattsins í heildartekjum sveitarfélaganna hækki úr rúmlega 3.7% á þessu ári í ca. 15% á næsta ári.

Næst mun ég þá ræða nokkuð um Jöfnunarsjóð. Með lögum nr. 19 13. apríl 1960 voru tekjur Jöfnunarsjóðs auknar verulega, frá því sem verið hafði, með því að ákveðið var, að 1/5 hluti söluskatts skyldi renna í Jöfnunarsjóð. Það var honum geysilega mikil tekjubót. Jafnframt var ákveðið, að tekjum sjóðsins skyldi úthlutað til sveitarfélaganna í réttu hlutfalli við íbúatölu þeirra, þó þannig, að ekkert sveitarfélag skyldi fá hærra framlag en næmi 50% af útsvörunum. Þessu hlutfalli var síðan breytt úr 50% í 60%. Þannig varð Jöfnunarsjóður verulegur tekjuauki fyrir sveitarfélögin og hefur verið það síðan, þó að ýmsar breytingar hafi raunar orðið á tekjuöflun sjóðsins og fleiri atriðum í sambandi við hann. Nú eru tekjur Jöfnunarsjóðs 8% af söluskatti og 5% af aðflutningsgjöldum auk landsútsvaranna, og ekki er gert ráð fyrir breytingum á þessum ákvæðum.

Nafnið á sjóðnum kann að geta valdið nokkrum misskilningi, ef í það er lagður sá skilningur, að hlutverk hans sé að jafna til fulls tekjur allra sveitarfélaga á landinu. En það var aldrei ætlunin með því að auka tekjur hans svo sem gert var, heldur var hér beinlinís um það að ræða, að útvega nýjan almennan tekjustofn fyrir sveitarfélögin. Að vísu er tekinn lítill hluti af tekjum sjóðsins, sem runnið getur til sveitarfélaganna, eða 4%, til þess að mæta aukaframlögum, sem óhjákvæmilegt hefur verið að veita ýmsum einstökum sveitarfélögum, sem átt hafa í miklum fjárhagserfiðleikum. Lagt er til í frv., að þessi hluti verði hækkaður í 5%, og mun sízt af því veita. Til ráðstöfunar í þessu skyni verða á þessu ári um eða yfir 20 millj. kr., en útlit er fyrir, að óhjákvæmileg aukaframlög verði yfir 20 millj. kr. í ár. Samkv. gildandi lögum fær Samband ísl. sveitarfélaga 1% af tekjum sjóðsins á ári. Lagt er til í frv., að ráðh. sé heimilt að veita allt að 2% til styrktar Sambandi ísl. sveitarfélaga og til samtaka sveitarfélaga í einstökum landshlutum. Með nýmælinu um að veita landshlutasamtökum fjárstyrk til starfsemi sinnar má segja, að komið sé til móts við stefnuyfirlýsingu ríkisstj. um það, að auka sjálfsforræði byggðarlaganna nokkuð.

Þess má geta, að breytt er útborgunardögum framlagsins, þannig að þeir eru fluttir fram um hálfan mánuð. Er þetta gert til þess, að janúargreiðslan, sem í reikningum sjóðsins hefur ætíð verið talin til næstliðins almanaksárs, verði nú innt af höndum fyrir lok almanaksársins. Þá er lagt til, að fólksfækkunarframlag verði miðað við meðalútsvar á íbúa í landinu í heild, í stað þess að miða við meðalútsvar í hlutaðeigandi sveitarfélagi, og mun það hækka slík framlög nokkuð.

Í frv. er lagt til, að gerðar verði mjög þýðingarmiklar breytingar á ákvæðum um útsvör. Í stað stighækkandi tekjuútsvars komi ákveðinn hundraðshluti af tekjum, sbr. 23. gr. frv., og nemi hann 10% eftir þörfum og ákvörðun hverrar sveitarstjórnar. Það er hámarkið. Jafnframt eru ákvæði um það í 25, gr. frv., að álagningarprósenta útsvara þeirra gjaldenda, sem hafa lægri útsvarsskyldar tekjur en 450 þús. kr., verði lækkuð um 0.2 fyrir hvern heilan tug þúsunda, sem útsvarstekjurnar eru lægri en 450 þús. kr., þó svo, að álagningarprósentan verði ekki lægri en 5%. Þetta þýðir það til dæmis, að maður, sem hefur 300 þús. kr. tekjur, greiðir ekki meira en 7% og maður, sem hefur 200 þús. kr. tekjur, ekki meira en 5% í útsvar. Og af tekjum frá 52–200 þús. kr. verður prósentan 5. Útsvar, sem er 2 500 kr. eða lægra, fellur niður. Útsvar verður því ekki lagt á tekjur, sem lægri eru en 52 þús. kr., sbr. 26. gr., og útsvör verða ekki lögð á félög. Þá er lagt til, að eignarútsvör verði felld niður svo og ákvæðin um skiptingu einstakra útsvara á milli sveitarfélaga. Ýmis vandkvæði hafa jafnan verið í sambandi við framkvæmd ákvæðanna um útsvarsskipti. Ásókn um slík skipti verður líka tiltölulega litil, ef frv. þetta verður að lögum, þar sem útsvörin verða ekki lögð á félög. Samkv. gildandi lögum verða menn að greiða tvo stighækkandi skatta af tekjum. annars vegar tekjuskatt til ríkissjóðs og hins vegar útsvör til sveitarfélaga. Útsvörin eru líka stighækkandi tekjuskattur, eða á máli fjármálasérfræðinga eru stighækkandi skattar nefndir hagstjórnartæki og talið, að eingöngu eigi það að vera í höndum ríkisins. Og í þessu frv. er á það sjónarmið fallizt með því að afnema það, að megintekjustofn sveitarfélaganna, útsvörin, séu stighækkandi skattur. Nú verður stighækkandi skattur þannig eingöngu í höndum ríkisins. Í samræmi við þessa kenningu er svo lagt til, að útsvörin verði ekki stighækkandi skattur með þeim hætti, sem verið hefur, heldur ákveðin föst prósenta. 10% að hámarki, sem lögð verði á tekjur, svo sem þær eru nánar skilgreindar í 23. gr. frv.

Hér er nánast um brúttótekjur að ræða. Þó með þeirri undantekningu, að atvinnurekendur geta dregið frá tekjum af atvinnurekstri sínum bein útgjöld hans vegna. Það má vissulega segja, að sveitarfélögum henti ekki vel sveiflukenndir tekjustofnar eins og stighækkandi útsvör á tekjur hljóta jafnan að verða, vegna þess að hætt er þá við áföllum, kannske stóráföllum, þegar á móti blæs, sem sveitarfélögunum sé jafnvel erfitt eða ómögulegt að standast. Öðru máli gegnir, þegar ríkið á í hlut. Það hefur löggjafarvaldið og getur því mætt slíkum áföllum með breyttri löggjöf um tekjustofna sina. Tekjuþarfir sveitarfélaganna eru ákaflega misjafnar. Það fer mikið eftir því, hve mikla þjónustu þau veita þegnum sínum. Möguleikarnir til þess að veita slíka þjónustu eru líka afar misjafnir og er það háð ýmsum ytri aðstæðum, svo sem dreifbýli eða þéttbýli og aðstöðu, sem af því leiðir.

Þetta er háð ytri aðstæðum á margan hátt. Útsvörin hljóta því að verða mjög misjafnlega há í hinum ýmsu sveitarfélögum. Sveitarfélag, sem veitir þegnum sínum mikla þjónustu og stendur í fjárfrekum framkvæmdum í því sambandi, verður jafnan að leggja á há útsvör. Það þarf enginn að undrast. Öðru máli gegnir um þau sveitarfélög, sem litla þjónustu veita, t.d. vegna þess að aðstæður leyfa ekki verulega þjónustu við þegnana. Hér eiga hlut að máli mörg sveitarfélög í dreifbýlinu. Hjá þeim munu útsvörin verða tiltölulega lág. Athuganir, sem gerðar hafa verið á því, hver afkoma sveitarfélaganna hefði orðið á þessu ári, ef þetta frv. hefði gilt sem lög á árinu 1971, leiða það í ljós, að tekjuþörf sveitarfélaganna hefði þá verið vel borgið. því er þó ekki að neita, að örfá sveitarfélög virðast koma verr út en þau gerðu eftir gildandi lögum á árinu 1971. Hér eiga hlut að máli fá sveitarfélög, sem byggja afkomu sina að mestu eða öllu leyti á fiskveiðum. Ástæðan fyrir þessu er sú, að tekjuöflun í atvinnugreinum sjávarútvegsins var alveg óvenjulega hagstæð á árinu 1970, en það eru tekjur þess árs, sem voru lagðar til grundvallar við þessa athugun varðandi árið 1971. Allt annað kæmi upp á teningnum, ef miðað væri t.d. við árin 1968 og 1969. Í sambandi við þessi sveitarfélög er ákvæði í frv. til bráðabirgða, sem mælir fyrir um sérstakt aukaframlag úr Jöfnunarsjóði til þeirra, ef í ljós kemur, að hin nýju ákvæði séu þeim óhagstæð. Gert er ráð fyrir, að ríkissjóður endurgreiði Jöfnunarsjóði aukaframlög samkv. þessu ákvæði. Ég sé ekki annað en að í þessu ákvæði sé verulegt öryggi á þessu reynsluari fyrir þau sveitarfélög, sem þannig er ástatt um. Og þau eru ekki mörg.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þá breytingu að fella niður útsvarsskiptin. Allir vita hvílíkt vandamál þessi útsvarsskipti hafa verið á undanförnum árum, verkafrek fyrir skattyfirvöld og sveitarstjórnir og einatt hégóminn einber. Með lögtöku fólksfækkunarframlagsins fyrir tveimur árum voru afnumin útsvarsskiptin vegna flutningsgjalds þess á milli sveitarfélaga. Þessu framlagi er haldið í frv., en verður í mörgum tilvikum nokkru lægra en nú, vegna þess að lagt er til, að miðað verði við meðalútsvar á öllu landinu í stað meðalútsvars áður í hlutaðeigandi sveitarfélagi, eins og ég gat um áðan.

Ég hef nú rakið stuttlega þær helztu breytingar, sem gert er ráð fyrir, að verði á gildandi lögum um tekjustofna sveitarfélaganna. Sumar þessar breytingar eru mjög áhrifa- og afdrifaríkar. Með frv. er t.d. stefnt að því að leggja niður aðstöðugjöldin, svo sem áður var getið, en ekki þykir fært að stíga það spor til fulls í einu. Með 1. ákvæði til bráðabirgða, sem frv. fylgir, er gert ráð fyrir heimild til þess að innheimta aðstöðugjöld á árinu 1972, sem þó skal aðeins vera að hámarki helmingur þess, sem var á árinu 1971. M.ö.o., ef aðstöðugjald var 1% af atvinnugrein á árinu 1971 í einhverju sveitarfélagl. má það ekki hærra vera en 1/2% á árinu 1972 af þeirri sömu atvinnugrein í því sveitarfélagi. Í öðru lagi er í 2. ákvæði til bráðabirgða gert ráð fyrir sérstöku aukaframlagi til þeirra sveitarfélaga, sem fá í heildina lakari tekjuöflun samkv. hinu nýja kerfi, sem í frv. felst, en þau hafa haft eftir gildandi lögum. Á árinu 1972 kemur strax í ljós, hversu nýmæli þessi reynast, sem felast í frv. Bæði þessi bráðabirgðaákvæði eru sett til þess að tryggja afkomu sveitarfélaganna, þeirra sveitarfélaga, sem kynnu að bera skarðan hlut frá borði vegna nýmælanna. Reynslan sker svo úr um það, hvernig nýmælin reynast. Komi í ljós, að þau reynist miður en ráð er fyrir gert, verður að sjálfsögðu að endurskoða þau og gera þær breytingar, sem nauðsynlegar kunna að reynast til þess að hag sveitarfélaganna sé örugglega borgið. Það er ekki vilji eða markmið félmrn. að standa lengi yfir sveltandi sveitarfélögum.

Þegar athuga skal áhrif þessa frv. á afkomu eða hag hins almenna skattþegns, verður að líta í ýmsar áttir. í fyrsta lagi ber að athuga afstöðu skattþegnsins til hins nýja tekjuskatts. Í öðru lagi verður að hafa í huga þær breytingar, sem fyrirhugaðar eru á ákvæðum laganna um almannatryggingar, en áformað er að fella niður persónuiðgjaldið til lífeyristrygginga almannatrygginganna svo og sjúkrasamlagsgjaldið. Áætlað hefur verið, að þessi gjöld nemi fyrir hjón hér í Reykjavík allt að 22 þús. kr. á árinu 1972. Með þeim breytingum, sem ráðgerðar eru á skattalögunum og tekjustofnalögunum, er það stefna ríkisstj. að létta byrðar þeirra, sem lakasta afkomu hafa, sem vitanlega getur ekki orðið nema með því að þyngja byrðar þeirra, sem betur standa að vígi. Og það er líka staðreynd, að sú verður útkoma þessa frv. Þess þarf enginn að dyljast. Einnig í þessu efni verður reynslan ólygnust. Komi það í ljós, að þessu markmiði sé ekki náð, svo sem ráð er fyrir gert, verður að endurskoða þessar álögur og skatta og lagfæra það, sem reynzt hefur á annan veg en ætlað er nú. Lagt er til, að fasteignamatið nýja, sem vera mun miðað við árslok 1969, verði umreiknað til verðlags í lok þessa árs, sbr. 4. ákvæði til bráðabirgða. Þetta skiptir allverulegu máli, þar sem allt verðlag hefur hækkað nokkuð síðan þá.

Mér þykir sýnt, að þetta frv. muni tæpast geta hlotið afgreiðslu Alþ. fyrir áramót. Af því leiðir í fyrsta lagi, að breyta verður gjalddaga fasteignaskattsins á árinu 1972, og er lagt til, að gjalddaginn verði ákveðinn á því ári 15. marz í staðinn fyrir 15. jan. í öðru lagi verður að gera ráð fyrir því, að einhver sveitarfélög kunni að hefja innheimtu fasteignaskatts 15. jan. samkv. gildandi lögum. sem þá verður miklu hærri en frv. gerir ráð fyrir; þar sem hið nýja mat öðlast gildi nú um áramótin. Þess vegna er lagt til, að þau sveitarfélög, sem innheimta skatt 15. jan. n.k. eftir gildandi lögum, verði skyldug til að endurgreiða það, sem þau þannig kunna að hafa of innheimt hjá gjaldendunum.

Þó að ég telji frv. þetta um tekjustofna sveitarfélaga vera mjög vel unnið af nefnd þeirri, sem það samdi, svo sem ég vék að í upphafi máls míns, tel ég samt alveg sjálfsagt, að þn. sé gefið nægilegt svigrúm til að grandskoða málið. Ég hef hugsað mér þá málsmeðferð, að frv. verði, þegar umr. lýkur, vísað til hv. heilbr.- og félmn„ sem þá getur leitað til Efnahagsstofnunar og hverra annarra aðila, sem henni þykir hlýða, til sannprófunar á efnisatriðum þess enn betur en tóm hefur gefizt til fram til þessa. Sannprófa ber, hvernig skattlagningin samkv. hinu nýja kerfi kemur við skattþegnana, gjaldendurna. Og þá ber ekki síður á hitt að líta, hvernig hið nýja tekjuöflunarkerfi fullnægi þörf og nauðsyn sveitarfélaganna samanborið við gildandi tekjustofnakerfi sveitarfélaga, sem nú er verið að hverfa frá. Er það sjálfgefið, að málið verði strax sent Sambandi ísl. sveitarfélaga til sérstakrar framhaldsskoðunar á þeirri hliðinni, sem sérstaklega snýr að sveitarfélögunum.

Hér er óneitanlega farið inn á ótroðnar brautir og um svo mörg nýmæli að ræða, eins og ég vék að áður, að sjálfsagt er að gera ráð fyrir þeim möguleikum, að einhverju, kannske mörgu, megi breyta til bóta við nánari skoðun í n. Um þetta hef ég allt saman mjög rúman fyrirvara og hef engin áform um það að keyra þetta mál í gegn án breytinga. Þar verða metnar alveg að jöfnu skynsamlegar till. frá stjórnarandstöðu sem stjórnarliði.

Höfuðmarkmiðin eru tvö með lagasetningunni, og það eru þau tvö, sem ekki má hvika frá, að sveitarfélögunum verði a.m.k. ekki þrengri stakkur skorinn um fullnægingu fjárþarfa sinna en samkv. gildandi skattakerfi og að fluttar verði skattabyrðar af herðum hinna tekjuminnstu yfir á herðar hinna, sem breiðari hafa bökin. Ef slíkur árangur næst á viðunandi hátt með lagasetningu þessari, hafa þeir, sem þyngri byrðar bera eftir breytinguna, ekki siðferðilegan rétt til þess að mögla. En það skal fúslega játað, að með hinu nýja tekjustofnakerfi sveitarfélaganna er um allmikla tilfærslu að ræða á skattþunganum, ekki aðeins til lækkunar, heldur engu síður til hækkunar. Enda er það augljóst mál, að vilji menn aukna þjónustu, þróun og framfarir fremur heldur en frumbýlingshátt, deyfð og kyrrstöðu, kostar það peninga, það kostar hækkaða skatta.

Herra forseti. Ég læt nú máli mínu lokið og legg til, að frv. verði að umr. lokinni vísað til 2. umr. og meðferðar hv. heilbr.- og félmn., sem ég vona að bæti frv. heldur en spilli.