16.12.1971
Efri deild: 30. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 988 í B-deild Alþingistíðinda. (629)
133. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér þegar nú við 1. umr. um þetta frv. til l. um tekjustofna sveitarfélaga að gera nokkrar aths. um megindrætti frv. og nokkur einstök atriði þess, sem ég vonast til, að hv. þn., sem fær frv. til meðferðar, taki til athugunar, þegar hún hefur störf sín. Um leið mun ég drepa e.t.v. á einstök atriði í ræðu hæstv. félmrh. hér á undan.
Ég hlýt þá fyrst að drepa aðeins á undirbúning þessa máls og hvaða málsmeðferð það hefur hlotið af hálfu hæstv. félmrh., en eins og hann gat um, var nefnd skipuð um miðjan ágúst, 16. ágúst. Það, sem vakti athygli um þá nefndarskipun, var fyrst og fremst, að fyrir utan formann nefndarinnar, ráðuneytisstjórann í félmrn., var þetta hrein flokkspólitísk nefnd. Það voru eingöngu fulltrúar frá þeim stjórnmálaflokkum, sem standa að hæstv. ríkisstj., sem þar áttu sæti. Gengið var fram hjá heildarsamtökum sveitarfélaga, Sambandi ísl. sveitarfélaga, gagnstætt því, sem áður hefur tíðkazt um undirbúning lagafrv. um sveitarstjórnarmál, og önnur þau mál, þar sem þau hafa hagsmuna að gæta. Mér er líka nær að halda, að heldur lítið lið hafi verið í þessari nefnd, nema hvað formanninn snertir. Á honum hafa sennilega nefndarstörfin hvílt, og þótt ég beri fullt traust til hans sem ágæts embættismanns, þá hygg ég, að málið hefði fengið betri undirbúning og vandaðri, með því að Sambandi ísl. sveitarfélaga hefði gefizt kostur á aðild að nefndarstörfum.
Það mun líka hafa verið 30. sept., sem formaður og framkvæmdastjóri sambandsins áttu tal við hæstv. félmrh. og gerðu aths. um skipun endurskoðunarnefndarinnar og gerðu þeir sér vonir um eftir það samtal, að skipun nefndarinnar yrði tekin til endurskoðunar með það fyrir augum, að fulltrúi sambandsins fengi þar sæti. Úr því hefur þó ekki orðið. Það út af fyrir sig ber að víta og gera sterklega athugasemd við.
Að öðru leyti hygg ég, að afskipti og samráð við Samband ísl. sveitarfélaga hafi verið fólgin í því, að á stjórnarfundi sambandsins 4. okt. s.l. voru lagðar fram til umsagnar stjórnarinnar hugmyndir og tillögur endurskoðunarnefndarinnar um breytingar á 2. kafla tekjustofnalaganna nr. 51 frá 1964, þ.e. um fasteignaskatt. Gerði stjórnin þá till. um allmargar breytingar. Hafa sumar þeirra verið teknar upp í frv., en aðrar ekki.
Í byrjun októbermánaðar voru fulltrúar sambandsins einnig kvaddir á fund endurskoðunarnefndarinnar með stuttum fyrirvara, og náðist þess vegna ekki í alla stjórnarmenn. Á þeim fundi voru þessum fulltrúum kynntar þá fram komnar hugmyndir í nefndinni um breytingar á tekjustofnalögunum og óskað, að stjórn sambandsins fjallaði um þessar hugmyndir. Þessar hugmyndir voru þá engan veginn komnar í endanlegan búning. Og 16. nóv. s.l. hélt stjórn sambandsins fund um málið, þar sem ráðuneytisstjóri fjmrn. mætti á fundinum, en þar voru engar ályktanir gerðar. En þó var reynt að koma aths. símleiðis til formanns nefndarinnar.
Eins og ég hef hér rakið, þá eru afskipti og samráð við Samband ísl. sveitarfélaga lítil og slitrótt og engan veginn í því formi, að gagnleg skoðanaskipti og raunhæf hafi getað átt sér stað. Ég hlýt að geta þess einnig, að þrátt fyrir óskir þar um, hefur einstökum sveitarstjórnarmönnum ekki gefizt tækifæri til þess á neinu stigi málsins að fylgjast með gangi þess. Það hefur hvílt þögn, leynd og laumuspil yfir undirbúningi málsins, sem mér er algjörlega óskiljanlegt, því að það er að mínu áliti algjör óþarfi og aðeins til þess fallið, að málsmeðferð og undirbúningur sé óvandaðri en ella.
Hvort tveggja þetta, hinn flokkspólitíski blær, sem er á undirbúningi málsins, og sú leynd, sem yfir undirbúningnum hvílir, sem og það, að við höfum ekki fengið þetta frv. í hendur, alþm., fyrr en s.l. mánudag, gerir það að verkum, að eigi er unnt á þessu stigi málsins að gera eins ítarlega könnun á efni frv. og vissulega væri ástæða til, jafnvel við 1. umr. þess. Ég vil þó fagna þeirri yfirlýsingu hæstv. félmrh., er hann gaf varðandi afgreiðslu málsins og málsmeðferð, sem fyrirhuguð er hér af hv. deild.
Það mun líka orða sannast, að í undirbúningi málsins hafi orðið breytingar á frv. frá einum degi til annars, ekki sízt síðustu dagana, eftir því sem lausafregnir herma. Og þær segja enn fremur, og skal ég ekki bera ábyrgð á þeim, að frv. hafi verið töluvert breytt, frá því að nefndin gekk frá því, m.a. fyrir tilverknað annarra hæstv. ráðh., og efast ég e.t.v. um, að þær breytingar séu til bóta, þótt hæstv. félmrh. hafi e.t.v. þurft að láta þær ganga yfir sig. En í sambandi við þetta frv. og það frv. um tekjuskatta, sem er til umr. í Nd. nú, þá hygg ég, að segja megi í heild, að skortur á yfirsýn yfir þessa málaflokka einkenni frv., auk vöntunar þeirrar vönduðu málsmeðferðar, sem slíkum málum er nauðsynleg.
Það hefur enn fremur valdið sveitarfélögum landsins erfiðleikum, hve þessi frv. eru seint áferðinni og hve undirbúningur þeirra hefur tekið langan tíma. Að vísu er hér um mjög viðamikil mál að ræða. Og það má e.t.v. segja, að það sé ekkert of langur tími að ætla nefndinni fjóra mánuði til að undirbúa slík mál, þótt viðamikið undirbúningsstarf hafi verið fyrir hendi í rn., að því er ég hygg, þegar þessi nefnd tók til starfa, og að sumu leyti sé byggt á því undirbúningsstarfí, sem fyrir lá í rn., sem betur fer.
Sveitarfélögin eiga lögum samkv. að afgreiða fjárhagsáætlanir sínar fyrir árslok, og það hefur verið háttur Reykjavíkurborgar að gera það ófrávíkjanlega, og síðasta áratug er ekki nema eitt undantekningardæmi um aðra málsmeðferð og þá vegna algjörlega óviðráðandi og utanaðkomandi ástæðna. En nú í dag hefði átt að fara fram 2. umr. um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar, og af hálfu Reykjavíkurborgar var ekkert því til fyrirstöðu að afgreiða frv. til fjárhagsáætlunar fyrir borgina og stofnanir hennar á þeim fundi. En með því að dráttur er svo langur orðinn á framlagningu þessa frv. og afgreiðslu, þá er útilokað að ganga frá fjárhagsáætluninni, og vænti ég, að hæstv. félmrh. muni veita undanþágu, sem byggist einmitt á þessum málsástæðum, að því er Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög snertir.
Það er sömuleiðis fyrirsjáanlegt, að sveitarfélög landsins og þar á meðal Reykjavíkurborg verða að starfa án samþykktrar fjárhagsáætlunar a.m.k. tvo mánuði ársins, ef ekki lengur, því að ég geri ráð fyrir, að Alþ. ætli sér það góðan tíma til málsmeðferðarinnar, þegar þing kemur saman aftur, að það verði ekki gengið frá þessum frv. fyrr en í fyrsta lagi einhvern tíma fyrir lok febrúarmánaðar, jafnvel þótt þinghléið sé nýtt að einhverju eða miklu leyti til þess að vinna að undirbúningi málsins. Þetta er slæmt fyrir sveitarfélögin og stuðlar ekki að fastri og ábyrgri fjármálastjórn í landinu. Í raun og veru vita sveitarfélögin ekki, í hvað þau mega ráðast, fyrr en þessi lög eru samþykkt, því að fyrr er ekki vitað um þær tekjur, sem þau hafa úr að spila.
Ég er hins vegar þeirrar skoðunar, að það sé rétt afstaða hjá hæstv. félmrh., að hafa ekki flutt frv. um tekjustofna sveitarfélaga fyrr en samhliða frv. um tekjuskatta til ríkisins. Þetta eru samofin mál, sem verða að skoðast í samhengi.
Það er svo, að þetta frv., sem hér er til umr., fjallar, a.m.k. í grg. sinni og að því er forsendur frv. snertir, um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Og það er vitaskuld grundvallarskilyrði að gera sér grein fyrir þessari verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga, áður en rætt er um tekjustofna sveitarfélaga og ríkisins. Ég er kannske ekki alveg hlutlaus í þessum efnum, þegar ég segi, að ég telji, að sem flest verkefni eigi að vera á vegum sveitarfélaga. Ég er þeirrar skoðunar, að dreifingu valdsins, þ. á m. dreifingu valdsins út um hinar strjálu byggðir landsins, sé bezt borgið með því, að staðaryfirvöld hafi sem flest og mest verkefni á sinni könnu. Það undirskilur að vísu, að tekjustofnum verður að skipta í samræmi við slíka verkefnaskiptingu.
Í málefnasamningi núv. hæstv. ríkisstj. segir svo á bls. 4: „Endurskoða ber skiptingu verkefna og valds á milli ríkis og sveitarfélaga í því skyni að auka sjálfsforræði byggðarlaga. Haft verði samráð við Samband ísl. sveitarfélaga og samtök sveitarfélaga í einstökum landshlutum um þessa endurskoðun.“ Hvað seinni málsliðinn snertir hef ég þegar gert grein fyrir, að hann hefur verið þverbrotinn í undirbúningi þessa máls. Hvað fyrri málsliðinn snertir, að endurskoða beri skiptingu verkefna og valds milli ríkis og sveitarfélaga í því skyni að auka sjálfsforræði sveitarfélaga, vek ég aðeins á þessu stigi athygli á, að ekki er verið að framkvæma hann með fram komnu frv. Endurskoðun getur það að vísu heitið á skiptingu verkefna og valds á milli ríkis og sveitarfélaga, en þó tæpast, því að að því leyti sem þetta frv. tekur til þessa, þá má fremur segja, að um sé að ræða endurskoðun á fjárframlögum til tiltekinna mála, því að sveitarfélögin hafa ekki haft neina stjórn á almannatryggingum, takmarkaða, en þó nokkra á sjúkratryggingum og ekki stjórn á löggæzlu. En ætlazt er til, að fjárframlög sveitarfélaga til þessara verkefna hins opinbera ýmist falli niður eða lækki.
Að öðru leyti sakna ég þess, og veit raunar, að þessu frv. er ekki ætlað að fjalla um það, en samt sem áður vek ég athygli á því, að æskilegt væri að endurskoðun á skiptingu verkefna og valds milli ríkis og sveitarfélaga fari í raun og veru fram, og sú endurskoðun, sem ég vonast til, að hæstv. ríkisstj. efni, að fram fari, vænti ég að feli í sér, að flutt séu ýmis verkefni, sem ríkisvaldið hefur nú með höndum, til sveitarfélaga, til staðaryfirvalda. Þá er unnt að segja, að stefnt sé að auknu sjálfsforræði sveitarfélaga, en með þessum lögum ekki. Og sízt af öllu, ef á daginn kemur, að með takmörkuðum tekjustofnum er einmitt sjálfsforræði og sjálfstæði sveitarfélaganna skert.
Ég vil undirstrika það og taka skýrt fram, að ég tel það jákvæða þætti í fram komnu frv. að færa fjárframlög til almannatrygginga, löggæzlu að öllu leyti og sjúkratrygginga að hálfu leyti frá sveitarfélögum, því að þau hafa ekki haft stjórn þessara málaflokka og meginatriðið, meginviðmiðunin á að vera, að saman fari ábyrgð á stjórn og framkvæmd annars vegar og útgjöld hins vegar. Að því leyti til eru þessi ákvæði frv. mjög jákvæð. Ég hlýt þó að láta hér í ljós söknuð yfir því, ef algjörlega eru slitin tengsl milli sveitarfélaga og löggæzlu. Það er staðaryfirvöldum mjög mikilvægt, að löggæzla sé góð í sveitarfélaginu, og hér í Reykjavík höfum við átt því láni að fagna að eiga mjög góða samvinnu bæði við yfirmenn löggæzlunnar og lögreglumenn í heild. Það verður því mikill söknuður að þessu leyti í því, að slitin eru tengsl, sem þarna eru óneitanlega fyrir hendi, e.t.v. meiri vegna fjárframlags sveitarfélags til löggæzlu heldur en verða mun í framtíðinni, þegar um slíkt er ekki að ræða, þótt núverandi fyrirkomulag geri ekki ráð fyrir, að við höfum vald til að skipta okkur af stjórn þessara mála.
Ég vil þá koma að því, hvort þau tekjustofnafrv., sem hér eru til umr. í dag í báðum d., hafa í för með sér aukna skattheimtu af hálfu hins opinbera, hvort þau hafi í för með sér rýmkun eða skerðingu á tekjustofnum sveitarfélaga og fjárráðum og hvort þau hafi í för með sér hagsbætur fyrir einstaka skattþegna.
Óhjákvæmilega hlýt ég að drepa í einstaka atriðum á frv. það, sem Nd. hefur til meðferðar, en geri það á þeim grundvelli, að skoða verði mál þessi í heild. Það er mín skoðun, að þegar hið opinbera, hvort heldur er ríki eða sveitarfélög, er að gera sér grein fyrir útgjöldum og gera sér grein fyrir, hvað nauðsynlegt er að gera þjóðfélagsborgurunum til hagsbóta, þá verði fyrst og fremst að gera sér grein fyrir, úr hvaða tekjum hið opinbera hefur að spila. Það verður fyrst og fremst að kanna gjaldþol þjóðfélagsborgaranna í heild sinni og hvernig unnt er að skipta þeirri gjaldabyrði á sanngjarnan hátt á milli þeirra. Þegar þeirri athugun er lokið, þá er fyrst hægt með sanni að gera sér grein fyrir útgjöldum hins opinbera og velja á milli mismunandi nauðsynlegra útgjalda, — eða réttara sagt: setja nauðsynleg útgjöld í forgangsröð. Þessi starfsháttur hefur hins vegar ekki verið við hafður hér á Alþ. núna síðustu dagana, eins og hv. þm. er kunnugt. Búið er að afgreiða fjárlagafrv. til 3. umr. hér á hv. Alþ. án þess að nokkrar upplýsingar hafi verið gefnar um tekjuhlið frv., án þess að frá ábyrgri hendi hafi birzt nokkrar upplýsingar um, hvað líkur bentu til, að niðurstöðutölur fjárlagafrv. yrðu. Hér er um algjört ábyrgðarleysi að ræða og vinnuaðferðir, sem stríða gegn skynsamlegum vinnubrögðum. Það er álit mitt, að með þeim frv., sem hér hafa verið flutt á þingi um tekjustofna ríkis og sveitarfélaga, sé stefnt að og í rauninni sé um að ræða töluverða þyngingu skattbyrða. Við höfum að vísu ekki fengið það, hygg ég, opinberlega sagt, — við höfum ekki heyrt það sagt á opinberum vettvangi, — en gefið er í skyn í einkasamtölum, að frv. það til tekjuskatts, sem er til umr. í Nd., muni auka tekjur ríkissjóðs af tekjusköttum um 100%.
Við getum búizt við því, að frv. það til l. um tekjustofna sveitarfélaga, sem hér er verið að ræða, lækki að vísu eitthvað innheimtu útsvara, en engan veginn eins mikið og hækkun tekjuskattanna muni nema. Þegar til viðbótar kemur, að fasteignaskattar eru hækkaðir, þá hygg ég, að það sé engum blöðum um að fletta, að skattbyrðin í heild stóreykst. Og ég vek sérstaklega athygli á því, að í tekjuáætlun fjárlagafrv. um tekjuskatta var búið að taka inn hækkun þá, sem yrði á tekjusköttum á næsta ári vegna tekjuhækkunar almennt í landinu á yfirstandandi ári.
Ef við lítum á einstök dæmi, hvernig þessi tekjustofnafrv. koma á gjaldþegnana, þá vildi ég nefna sem dæmi hjón með tvö börn, sem hafa 300 þús. kr. nettótekjur, sem svarar til 375 þús. kr. brúttótekna. Þau eiga samkv. framlögðum frv. að greiða 37 þús. 250 kr., en mundu að óbreyttum lögum með 61/2% skattvísitölu, eins og gert er ráð fyrir í frv., greiða 32 þús. kr. Samkv. þessum frv. hækka skattar þessa fólks um 5 þús. kr. Við skulum líta á hjón með 350 þús. kr. nettótekjur og 440 þús. brúttótekjur. Þau mundu greiða samkv. frv. 64 715 kr., en hefðu með 61/2% skattvísitölu, eins og gert er ráð fyrir í fjárlagafrv., greitt 49 661 kr. Hækkun um 15 þús. kr. Við skulum líta enn á hjón með tvö börn og 400 þús. kr. nettótekjur, sem að jafnaði samsvarar 510 þús. kr. brúttótekjum. Þau greiða 95 440 kr. í skatt og útsvar samkv. framlögðu frv., en hefðu að óbreyttu skattkerfi greitt með 6'h% hækkun skattvísítölu 72 670 kr. Hækkunin er 23 þús. kr. Við getum einnig litið á einstæða móður með tvö börn á framfæri, sem hefði í brúttótekjur á síðasta ári, — það er miðað við framtal yfirstandandi árs, — 250 þús. kr., og hún greiðir samkv. því í ár 21 200 kr. með nefsköttum, sjúkrasamlags- og almannatryggingagjöldum og hlutdeild í fasteignasköttum. Ef þessi einstæða móðir hækkar í tekjum um 23%, sem er tekjuhækkunarviðmiðun fjárlagafrv., þá mundi hún borga á næsta ári samkv. nýja kerfinu 31 520 kr. Það þýðir, að hún borgar 5 400 kr. umfram 23% hækkun í opinberum gjöldum. Við skulum taka hjón, sem eru bæði með ellilífeyri og hafa brúttótekjur á framtali 1971 250 þús. kr. auk ellilauna og borguðu núna með þessum tekjum 28 867 kr. Ef við miðum við sömu tekjuhækkun á þessum fullorðnu hjónum og almenna tekjuhækkunin er á milli ára, 23%, þá mundu þau samkv. nýja kerfinu þurfa að borga 80 þús. kr. á næsta ári, ef við tökum hlut þeirra í fasteignasköttum með í reikninginn og hækkun á þeim. Þó er hækkunin á fasteignasköttum ekki nema 6 þús. kr. af þessari u.þ.b. 50 þús. kr. gjaldahækkun, sem um er að ræða.
Það vekur athygli, að í frv. ríkisstj. um tekjuskatta er aukafrádráttur aldraðs fólks, sem sett var sem nýmæli í lög nr. 68 1971, afnuminn, þannig að ekki sýnast þessi tekjustofnalög vera hliðholl hinni almennu fjölskyldu, hjónum með tvö börn, ekki einstæðri móður með tvö börn og ekki fullorðna fólkinu, sem er komið á ellilífeyrisaldur.
Haldið hefur verið fram, að afnám nefskatta eða svo kallaðra persónuskatta sé ákaflega hagkvæmt fyrir gjaldendur, og ég dreg ekki í efa, að það sé mjög margt til í því, að það sé einnig hagkvæmt fyrir hið opinbera, að því leyti til, að það gerir innheimtu skattanna einfaldari og óbrotnari, og að því leyti til sé hér um spor fram á við að ræða. En ég vek athygli á því, að niðurfelling þeirra getur ekki jafnazt á við hækkun fasteignaskatta annars vegar og heldur ekki, þegar tekið er tillit til þess, að nefskattarnir svo nefndu eru liður í vísitölunni, þannig að ef nefskattarnir hækka, þá á samkv. gildandi kjarasamningum að hækka laun þeirra, sem þessa skatta borga. Það er talið, að almannatryggingasjóðsgjaldið sé um 2.05 vísitölustig, sjúkrasamlagsgjaldið, ef það er óniðurgreitt, 2.15 vísitölustig. Nú mun það vera niðurgreitt um 0.48 vísitölustig og nettó er það því 1.67 vísitölustig. Þetta munar sem sagt 4% í kaupi. Ég legg áherzlu á þetta, að hækkun nefskattanna, sem hæstv. félmrh. málaði á vegginn sem ógnvekjandi, að mundu jafnvel verða 22 þús. kr. á hjón á næsta ári miðað við aukin útgjöld trygginganna og er það hækkun að því er mig minnir úr rúmum 16 þús. kr., þá mundu þessi hjón fá hærri laun til þess að standa undir þessari hækkun, kaupgreiðslu samkv. vísitölu. Nú er það spurningin, hvort það er ætlun hæstv. ríkisstj. að lækka vísitöluna eða lækka kaupið að öðru óbreyttu, ef nefskattarnir yrðu afnumdir. Ég vil hreinlega spyrja hæstv. félmrh. um fyrirætlun ríkisstj. að þessu leyti. Að mínu viti væri þar um algera fölsun á vísitölunni að ræða, því að auðvitað ætti við afnám slíkra útgjalda ekki eingöngu að taka hækkunina eða lækkunina úr sambandi, heldur ætti að taka þetta algerlega burt úr grunni vísitölunnar og það þýddi þá annaðhvort, að vísitalan yrði óbreytt og þar af leiðandi, að kaupgjald mundi ekki lækka, eða þá jafnvel, að vísitalan hækkaði, vegna þess að aðrir þættir mundu vega meira hlutfallslega í vísitölunni og kaup þá hækka. Það, sem ræður úrslitum og er alveg ljóst, að mundi vera fölsun á vísitölunni, ef hún yrði látin lækka við afnám þessara nefskatta, er það, að við afnám nefskattanna hækka önnur opinber gjöld eins og skattar, án þess að skattgreiðendur fái þá hækkun uppi borna í hækkaðri vísitölu og hækkuðum launum. Ég veit það, að hæstv. félmrh. sem fyrrv. forseti Alþýðusambands Íslands lætur sér ekki til hugar koma að falsa vísitöluna með þessum hætti. En til vonar og vara langar mig til að heyra hreina og afdráttarlausa yfirlýsingu hans þar að lútandi í sambandi við umr. um þetta mál.
Ég er þá, eftir að hafa rakið nokkuð, hvernig þessi frv. koma fram gagnvart einstaklingum, kominn að því að gera grein fyrir því, hvernig mér sýnist þessi frv., og einkum frv. til laga um tekjustofna sveitarfélaga, hafa áhrif á fjárhag og tekjuöflunarmöguleika sveitarfélaga. Ég hef vegna þess stutta tíma, sem til ráðstöfunar hefur verið, aðeins tölur frá Reykjavík á að byggja og ég vil ekki fullyrða, að híð sama gildi um öll sveitarfélög. Ég þykist vita, að það sé alveg rétt, og er þar sammála raunar hæstv. félmrh., að þetta frv. kemur ekki jafnt niður á öll sveitarfélög. Það er ekki unnt að semja frv. um tekjustofna sveitarfélaga, sem kemur eins niður gagnvart þeim öllum. En svo að ég víki að því, hvernig þetta frv. kemur fram gagnvart Reykjavíkurborg, þá rifja ég það upp, að við höfum útbúið frv. til fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár í borgarstjórn Reykjavíkur. Við erum búin að ræða það við eina umr. og var ekkert að vanbúnaði að ganga frá því í dag, eins og ég gat um í upphafi máls míns. Ef við setjum nú tölur samkv. þessu frv., sem hér er til umr., inn í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar, þá eru þessar breytingar helztar tölulega: Útsvör án afsláttar lækka úr 1 500 millj. í 1 030 millj. eða um 470 millj. kr. Fasteignagjöld hækka úr 82 millj. kr. í 246 millj. kr., um 164 millj. kr. Aðstöðugjöld lækka úr 378 millj. í 189 millj. og lækka um sömu upphæð. Tekjur lækka samkv. þessu frv. um 500 millj. kr. Að því er gjöldin snertir, þá lækka þau; löggæzlan um 78 millj. kr. og félagsmálin, þ.e. framlög til almannatrygginganna um 164 millj., lífeyrisuppbótanna 22 millj. og til sjúkratrygginganna 111 millj. eða samtals 297 millj. Samtals er lækkun á gjöldum 375 millj. og skortir þá á tekjurnar 125 millj., til að unnt sé að standa undir þeim gjöldum, sem núgildandi tekjustofnar stóðu mjög vel undir, því að þá, að óbreyttum núverandi tekjustofnum, var gert ráð fyrir, að unnt væri að gefa 6% afslátt af útsvarsstiga og nýta aðeins 60% af hámarksgjaldskrá aðstöðugjalda. Þegar haft er í huga, að sveitarfélögum er ekki eingöngu heimilt samkv. núgildandi sveitarstjórnarlögum að nýta útsvarsstigann að fullu, heldur og að setja 20% álag á hann, má sjá, hve svigrúmið hefur minnkað milli þessara tveggja tekjustofnaleiða. Það er að vísu svo, að unnt er og heimilt, án staðfestingar félmrh., að samþykkja 50% álag á fasteignagjöldin. Það mundi gefa Reykjavíkurborg 123 millj. og þá mundi skorta 2 millj. enn, til þess að tekjur og gjöld stæðust á, en þá er heldur ekkert upp á að hlaupa, að því er tekjuöflun snertir, fyrir öðrum útgjöldum, sem kynnu að hækka.
Af þessum tölum hygg ég, að ljóst sé, að það er ofmælt í aths. við frv., að tekjuöflun sveitarfelaga sé vel borgið. Langstærsta sveitarfélag landsins verður sem sagt annað tveggja að draga saman verklegar framkvæmdir eða nota þá tekjustofna, sem hér er gerð tillaga um. með fullu álagi strax á fyrsta ári, sem þó virðist ekki hrökkva til, ef bráðabirgðaákvæðið um hálft aðstöðugjald væri ekki fyrir hendi, og vegna þess að ég tók ekki nákvæmlega eftir því í ræðu hæstv. félmrh. hér áðan, hvað hann sagði um framtíð þessarar heimildar um innheimtu hálfs aðstöðugjalds, þá vildi ég biðja hann um að skýra það hér á eftir, hvort hugsunin sé sú að framlengja þessa heimild, og ef svo er, hvers vegna aðstöðugjöld séu þá ekki talin með tekjustofnum sveitarfélaga, eða hvort ætlunin sé t.d. að hækka fasteignaskattana eftir þetta fyrsta ár. Nú er spurningin að vísu með tilliti til mismunandi aðstæðna sveitarfélaga, hvort Reykjavíkurborg sé undantekning og önnur sveitarfélög geti verið vel sæmd af þessu tekjustofnafrv. Ég hygg, að svo sé ekki. Ég held, að almennt megi segja, að með þessu frv. sé þröngur stakkur skorinn sveitarfélögum landsins til þess að inna skyldur sínar af hendi gagnvart íbúum sínum, og ég byggi það m.a. á því, að mér dettur ekki í hug, að þetta tekjustofnafrv. hafi að einu eða neinu leyti átt að vega að hagsmunum Reykjavíkurborgar einnar.
Ég vek svo athygli á því, að samkv. þessu frv. er tekjuöflun byggð á einstaklingum meira en áður. Hlutfall það, sem einstaklingarstanda undir af gjöldum sveitarfélaga, eykst, vegna þess að sveitarfélagið fær ekki tekjur af félögum og atvinnurekstri. Ég tel það miður farið þegar af þeirri ástæðu, að verið er að slíta tengslin milli sveitarfélagsins og atvinnulífsins, en það hefur löngum verið eitt af hlutverkum sveitarfélaga að búa svo í haginn fyrir atvinnureksturinn í umdæmi sínu, að blómlegt atvinnulíf gæti þar þrifizt.
Þá vildi ég í því sambandi varpa því fram, hvort ekki sé þá ástæða til og rökrétt samhengi að fella niður framlag sveitarfélaga til atvinnuleysistrygginga, úr því að sveitarfélögin hafa ekki beinar tekjur af atvinnurekstri í skattformi. Ég hafði hugsað mér að spyrja hæstv. félmrh., hvernig háttað yrði helmingslækkun á framlagi sveitarfélaga til sjúkratrygginga. Ég hygg, að hann hafi nú svarað þeirri fyrirspurn í sinni ræðu, en ég skildi hann svo, að heildarkostnaður sjúkratrygginganna yrði viðmiðunin í stað iðgjalda einstaklinga áður, því að að niðurfelldum iðgjöldum einstaklinga er ekki við þau hægt að miða og því skil ég það svo, að í framhaldi verði heildarútgjöld sjúkratrygginganna grundvöllurinn og sveitarfélögum sendur reikningur fyrir 10% þeirra.
Ég vek athygli á því sérstaklega, ef aðrar upplýsingar og nánari benda til hins sama og ég hef hér leitt líkur að, að tekjustofnar sveitarfélaga séu mjög þröngir, hvort ekki sé þá ástæða til þess að fella þennan þátt sveitarfélaga í sjúkratryggingunum alveg niður.
Það er svo, að eitt með öðru hefur sú staðreynd, að þetta frv. kemur svona seint fram, orðið til þess að torvelda sveitarfélögunum innheimtu gjalda sinna. Þá á ég við, að gjalddagi fasteignaskatta er samkv. núgildandi lögum 15. jan., og ég tel nauðsynlegt að heimila sveitarfélögum að innheimta fasteignaskatta miðað við þann dag, því að ella er fjárhag þeirra margra stefnt í voða, og beini ég því til hæstv. félmrh. að hlutast til um, að slíkt verði heimilað. Ég vil líka draga í efa, að það sé einhliða til bóta að draga úr áhrifum og afskiptum sveitarfélaga af álagningu útsvara, og tel rétt, að nákvæmari ákvæði séu í frv. að þessu leyti heldur en framlagt frv. gefur til kynna.
Varðandi Jöfnunarsjóð, þá er rétt að drepa á, að ráðstöfunarfé hans til sveitarfélaga almennt er skert með hækkun framlags til varasjóðs eða úr 4% í 5% og hækkun til Sambands ísl. sveitarfélaga úr 1% í 2%. Varðandi útsvörin þá dreg ég í efa, að framkvæmd þeirra sé miklu einfaldari en áður var, því að áður var, held ég, ekki nema um þrjá útsvarsstiga að ræða, en þeir eru nú 26 eða 27, eftir því hvernig á er litið, og þegar hæstv. félmrh. talaði um sem viðmiðun við samningu þessara tekjustofnafrv. til ríkis og sveitarfélaga, að sveitarfélögin væru með jafnan hlutfallslegan skatt, en ríkið aftur á móti með stighækkandi skatt, þá er þessu nú eiginlega öfugt farið í þessum frv., þar sem skattþrepin hjá sveitarfélögunum eru sem sagt 26 eða 27, en aðeins tvö að því er ríkisskattana eða tekjuskattinn snertir. Ég er á hinn bóginn sammála þeirri verkaskiptingu, sem hann gat um að þessu leyti milli sveitarfélaga og ríkis, en tel bara, að henni hafi ekki verið fylgt í þessu frv. að öllu leyti. En að svo miklu leyti sem henni hefur verið fylgt, þá er það til bóta.
Þá hlýt ég að vekja athygli á því, þar sem ég á ekki sæti í þeirri n., sem fjallar um þessi frv., að nauðsynlegt er að tryggja ákvæði um það, að meira en helmingur útsvara verði greiddur fyrir 15. júlí, en nú er gert ráð fyrir að innheimta megi 60% fyrir lok júlímánaðar. Þá ber að athuga það, að varasamt er, að hækkun dráttarvaxta í 11/2% nægi til þess að auðvelda innheimtu á réttum gjalddögum, ef frádráttarreglan fellur úr gildi. Enn fremur er ástæða til að benda á, að samræma þurfi reglur um upphæðir dráttarvaxta í þessum tekjustofnafrv. báðum, en ég hygg, að þar sé ósamræmi á milli.
Í ákvæðum til bráðabirgða er bent á í 3. tl., að sá möguleiki sé fyrir hendi, að sveitarfélög innheimti fasteignaskatta á árinu 1972 samkv. núgildandi lögum. Ef Reykjavíkurborg gerði það, þá mundu fasteignaskattarnir hækka úr 82 millj. í 1 200–1 500 millj., ef 200% álaginu yrði haldið, án þess (400–500 millj. kr. Við teljum það algerlega útilokað að fara þessa leið og ég efast nú um, að önnur sveitarfélög geri það, en þetta ákvæði bendir einmitt til þess, sem ég gat um áðan, að nauðsynlegt er að leggja áherzlu á það, að hæstv. ríkisstj. og hæstv. félmrh. auðveldi sveitarfélögum leið til þess að innheimta hluta af væntanlegum fasteignasköttum, t.d. með sömu krónutölu og þeir voru innheimtir á yfirstandandi ári, miðað við 15. jan. n.k.
Þá vildi ég spyrja hæstv. félmrh. um það, hvort fjmrh. hafi ákveðið breytingu á hinu nýja fasteignamati til samræmis við verðlag í árslok 1971. Það getur skipt máli í sambandi við þessi atriði, sem ég drap á áðan, og aðeins bætt myndina að því er tekjustofna sveitarfélaga snertir, en þó ekki að verulegum mun. Fyrirspurn mín er því nánar sú: Hver verður hækkun á nýja fasteignamatinu, er tekur gildi 1. jan. n.k. miðað frá 1. jan. 1970?
Herra forseti. Ég skal nú láta máli mínu lokið, en vil aðeins þó fagna þeirri yfirlýsingu og loforði hæstv. félmrh., að hann taki við og fagni brtt. við þetta frv., sem til bóta kynnu að horfa, og ég hafði nú reyndar búizt við því af hálfu hæstv. ráðh„ án þess að hann tæki það sérstaklega fram, að hann mundi taka við skynsamlegum tillögum jafnt frá stjórnarandstæðingum og stjórnarsinnum, en það er gott að heyra þetta berum orðum sagt og ég vona, að svo reynist í framkvæmd. En áður en ég lýk máli mínu, þá vil ég aðeins draga fram í nokkrum atriðum meginmál þess, sem ég hef hér gert að umræðuefni. Það er í fyrsta lagi, að lítið samráð hefur verið haft við Samband ísl. sveitarfélaga eða einstök sveitarfélög varðandi undirbúning þessa frv., og ég harma það og vonast til þess, að þó seint sé, verði það samráð nú haft og af einlægum huga gert. Í öðru lagi vil ég leggja áherzlu á það, að þessi tekjustofnafrv. leysa ekki verkaskiptingu milli sveitarfélaga og ríkisins. Sú endurskoðun þarf að fara fram og sú endurskoðun þarf að fara fram á þeim grundvelli, að fleiri verkefni séu falin staðaryfirvöldum. Í þriðja lagi vil ég leggja áherzlu á það, að þessi tekjustofnafrv. hafa í för með sér aukna skattbyrði fyrir allan almenning í landinu. Í fjórða lagi, að þau hafa í för með sér tilflutning á tekjum frá sveitarfélögum, frá staðaryfirvöldum til ríkisvaldsins og rýra þannig tekjustofna sveitarfélaga og mátt þeirra og möguleika til þess að starfa sjálfstætt.
Herra forseti. Ég læt þá máli mínu lokið og vonast til þess, að hv. þn., sem fær þetta mál til meðferðar, grandskoði það, hafi náið samráð við Samband ísl. sveitarfélaga og einstök sveitarfélög varðandi athugun á einstökum ákvæðum frv., svo að við megum hér á nýju ári afgreiða sem lög frá Alþ. lög um tekjustofna sveitarfélaga, sem geri þeim unnt að starfa í þágu íbúa sinna, svo sem þeim ber.