09.03.1972
Efri deild: 53. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1097 í B-deild Alþingistíðinda. (658)

133. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Steinþór Gestsson:

Herra forseti. Ég skal ekki tefja þessar umr. mjög. Ég geri ekki ráð fyrir því, að hvort sem ég hef hér fleiri orð eða færri, þá hafi það afgerandi áhrif fyrir afgreiðslu þessa máls, eins og nú er komið málum. Þegar þetta frv. var til 1. umr. hér í hv. þd., þá gerði ég að umræðuefni, hversu mér virtist það vera mikil árás á sjálfstæði sveitarfélaganna og ganga í berhögg við þær viljayfirlýsingar, sem allir þingflokkar höfðu gert á fyrra þingi og ýmsir þeirra endurtekið á þessu þingi nú. Í meðförum deildarinnar virðist ekki hafa orðið breyting á þessu í frv. sjálfu, og þó að mér sé það ljóst, og mér er það kappsmál, að einmitt sveitarfélögin verði virkari í stjórnunarkerfi í landinu heldur en þau eru nú, þá er ég því mjög andvígur að standa að lagasetningu, sem gengur í þá átt, sem þetta frv. gerir. Ég ætla ekki að gera það frekar að umræðuefni, heldur lýsa yfir óánægju minni með það, að þetta skuli ekki hafa gengið í aðra átt í þessu frv. heldur en séð verður.

Það er einn hlutur, sem hér hefur að sjálfsögðu komið til umr., en ég vildi aðeins koma inn á einnig, og það er um fasteignaskattana. Eins og kom fram hér áðan í ræðum þeirra tveggja alþm., sem talað hafa á undan mér, þá er gert ráð fyrir því, að fasteignaskattar séu þyngdir mjög frá því, sem verið hefur. Ég er ekki að andmæla því, að fasteignaskattar séu auknir frá því, sem undanfarið hefur verið, því að segja má, að það, að þeir hafa ekki verið þyngdir áður, stafi að nokkru af því millibilsástandi, sem skapaðist, á meðan unnið var að nýju fasteignamati. Nú er komið til nýtt fasteignamat. Að vísu er það orðið það gamalt, að heimild er til þess í því frv., sem við ræðum hér um, að hækka það til samræmis við verðlagið um síðustu áramót. Ef að því yrði horfið, þá má jafnvel reikna með, að það gæti hækkað um 10–20%. Ég skal ekki fullyrða um það. Alla vega yrði þar um töluverða hækkun að ræða, og þess vegna yrðu þær áætlanir, sem gerðar eru um útkomu af fasteignaskatti, nokkru hærri heldur en áætlað er. Þess vegna er ég ákveðið þeirrar skoðunar, að það beri að fella niður þá heimild, sem sveitarstjórnunum er ætlað með álag á fasteignaskatt. Ég álít, að ef sú heimild er notuð, þá sé komið inn á óhóflega háar greiðslur af fasteignunum. Ég segi þetta sérstaklega með kunnugleika af því sveitarfélagi, sem ég á heima í, fyrir augum. Þar mundi þetta valda alvarlegri röskun. Fasteignir eru þar í mjög háu verði miðað við þá veltu, sem er í atvinnurekstrinum, og því er það a.m.k. mjög hættulegt að stíga þarna stórt skref í einu.

Þá er einn hlutur þarna, sem ég ætla, að ýmsir mundu halda, að ég mundi fagna, að væri kominn í lög, en það er sú breyting, sem gerð var við 2. umr. hér í d., þar sem samþ. var, að heimilt væri að leggja aukafasteignaskatt á þau hlunnindi, sem væru í eigu utansveitarmanna. Þetta lítur töluvert fallega út, og ég ber ekki á móti því og mun heldur undirstrika það, að einmitt þessi hlutur er vandamál í ýmsum sveitarfélögum. En ég held, að þarna sé farið svo óhóflega langt út í vitleysu, að það verði að snúa við. Ef menn vilja átta sig á því, hvernig hlunnindamatið er upp byggt í því fasteignamati, sem nú er í gildi, þá er það þannig, að þær árlegu tekjur, sem af hlunnindunum eru, eru tifaldaðar og úr því fæst eignarmatið á hlunnindunum, fasteignamatið. Ég lít svo til, og ég vil, að menn geri sér það ljóst, að nú getur verið, að á þeirri jörð, sem hlunnindi eru í eigu utansveitarmanns, sé búrekstur. Það er hvort tveggja til í því efni. En miðað við, að það væri ekki, þá mundi sá, sem þessar tekjur hefði af hlunnindunum, þurfa að greiða í fyrsta lagi í fasteignaskatt í þeirri sveit, sem hlunnindin eru í, 1/2% eða 5 þús. kr., ef ég miða við það, að hann hefði 100 þús. kr. tekjur og 1 millj. kr. eign. Þegar hann ætti að borga auk þess 4% af virðingarverði hlunnindanna, þá reiknast mér til, að það mundi verða um 40 þús. kr. Sá maður, sem ætti þessi hlunnindi, yrði e.t.v. í það háum tekjum, að hann lenti í 44% skatti, og 44% skattur af 100 þús. kr. tekjum, — ja, er það ekki um 44 þús. kr. Mér reiknast þá til, að þarna væri búið að taka í skatta af þeim, sem fengi þessar 100 þús. kr. tekjur, 89 þús. kr. Ég vil halda því fram, að þetta sé allt of mikil skattheimta. Og þetta er naumast skattheimta. Þetta er eignaupptaka.

Ég sagði það áðan, að það mætti ætla það, að ég sem sveitarstjórnarmaður í sveitarhrepp mundi fagna slíkum ákvæðum sem þessum, en mér sýnist, að hér sé allt of langt gengið. Ef þetta er ekki allt of langt gengið, þá er það af því að ég hef reiknað þetta dæmi rangt, og það verður þá leiðrétt, ef svo er.

Ég ætla nú ekki að hafa þessi orð mín öllu fleiri. En ég benti á það við 1. umr. um þetta frv. hér á þingi fyrr í vetur, að það væri látið að því liggja í grg. með frv., að með setningu þess væri stefnt að meiri einföldun í skattheimtu heldur en áður hefði verið. Ég verð að viðurkenna það, að að einu leyti hefur orðið um einföldun að ræða frá því, sem var, þegar frv. var lagt hér fram. þar sem horfið er frá því í frv. að vera með 27 skattstiga. En að öðru leyti er ekki um einföldun að ræða, þar sem til eru komnir ýmsir frádráttarliðir frá brúttótekjunum, sem annars var gert ráð fyrir, að væru hér gjaldstofninn. Og í annan stað vil ég benda á það, fyrst þarna var farið að fara millileið, þá virðist mér, að eðlilegra hefði verið að vera með sama stofninn við báðar álögurnar í tekjuskatti og útsvörum, einkum hefðu þeir menn átt að leggja það til, sem töldu það sjálfsagðast, að skattstjórarnir legðu hvort tveggja á, tekjuskattinn og útsvörin.