13.03.1972
Neðri deild: 50. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1129 í B-deild Alþingistíðinda. (671)

133. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Jóhann Hafstein:

Herra forsetl. Í þingsölunum í dag er að hefjast annar þáttur í skattamálasjónarspili, ef svo mætti segja, sem eiga mun eftir sinn sögulega lokaþátt. Skattafrv. stjórnarinnar hafa nú farið á milli deilda og við hér í Nd. tökum til meðferðar frv. til l. um tekjustofna sveitarfélaganna, en Ed. frv. um tekjuskatt og eignarskatt, sem við höfum áður fjallað um.

Ég held, að það geti verið til góðs að rifja nokkuð upp málatilbúnað hæstv. ríkisstj. í skattamálum á þessu þingi. Rétt fyrir jólin er hent inn sínu skattafrv. í hvora d., skattafrv., sem þegar í öndverðu hlutu að vekja mikla furðu og gerðu það, ekki aðeins hér á Alþ., heldur og meðal alls almennings. Það eru engar ýkjur, þótt sagt sé, að þeir þm., sem setið hafa á Alþ. um aldarfjórðung eða lengur, hafi aldrei augum litið slík flaustursverk sem þessi frv., í jafn afdrifaríkum málum og skattamálin eru. Það hefur verið spurt, hverjir sömdu frv. Enn er yfir því hula leyndardóma og efasemda, þótt getið sé aðstoðarmanna í grg. þessa frv. Og hverjar voru svo áætlanirnar í grg. um þá fjáröflun til þess opinbera, sem samþykkt frv. skyldi leiða til? slíkar áætlanir fyrirfundust ekki, og er það út af fyrir sig einsdæmi, að ég hygg, í slíkum málatilbúnaði. Fjárlög ársins 1972, sem áttu þó varðandi tekjuöflun að hvíla á þessum virðulegu hornsteinum, voru svo afgreidd fyrir áramótin í slíkri þoku. Okkur sjáifstæðismönnum var þegar ljóst, hversu mikil mistök var hér um að ræða hjá hæstv. ríkisstj. Við beindum því þá þegar til ríkisstj. þeim tilmælum að kippa þessum óheillafrv. til baka og nota þinghléið til nýs málatilbúnaðar. Auðvitað fannst hæstv. ráðh. slíkt of mikil smán. En hefur smán þeirra orðið minni miðað við það, sem á eftir hefur gengið, eins og afgreiðsla málanna hefur gengið?

Talað var um, að þinghléið yrði notað til þess að athuga málin vel í þn. og síðan tekið til hendinni til nauðsynlegra leiðréttinga strax og þingfundir hæfust að nýju í jan., og hæstv. fjmrh. hafði góð orð um það hér fyrir jólin, að að sjálfsögðu væri rétt að gera allar þær breytingar, sem skynsamlegar og eðlilegar væru, og það mundi ekki standa á því. Það fennti fljótt yfir þessi fyrirheit.

Engir þn.-fundir voru haldnir í þinghléinu, en síðan hófust þeir með semingi og einstæðum hætti. N. Nd. og Ed. voru boðaðar til funda, svo var fundunum aflýst. Svipað þessu gekk koll af kolli. Stundum var ekki beint aflýst fundi, en stjórnarandstæðingar látnir bíða 1–2 tíma, meðan höfuðkempurnar, þm. stjórnarliðsins, voru að karpa um málin á næsta leiti. Engum duldist, að innan stjórnarliðsins var margháttaður ágreiningur, ekki aðeins milli stjórnarflokkanna, heldur og innan þeirra sjálfra. Kom nú á daginn, að betur hefði stjórnarliðið fylgt ráðum stjórnarandstöðu að draga frv. til baka fyrir jól og prjóna alveg upp að nýju, því að það reyndist enginn hægðarleikur að umsmíða þessi vansköpuðu frv. Þótt þm. stjórnarliðsins vildu gjarnan gera hina eða þessa umbót, þá rakst hvað á annað í öðru hvoru hinna tveggja stjfrv. Fátæklegar og ófrjóar brtt. urðu svo framlag stjórnarliðsins eftir fálm og mikla óvissu. Það verður að segjast, að réttar reyndust þær grunsemdir, að fæstir ef nokkrir þm. stjórnarliðsins höfðu gert sér nokkra grein fyrir því, hvað í skattafrv. fólst, þegar þau voru lögð fram á Alþ.

Þótt stjórnarliðið sýndi enga tilburði til þess að vinna í þn. að þessum mikilvægu málum í þinghléinu um áramótin, varð raunin allt önnur hjá þm. Sjálfstfl. Nm. flokksins í fjhn. og heilbr.- og félmn. unnu af kappi að rannsókn málanna með aðstoð sérfræðinga og m.a. í samráði við fulltrúa sveitarstjórna. Þrátt fyrir gefin loforð hafði ríkisstj. algerlega svikizt um að hafa samráð við Samband ísl. sveitarfélaga eða hlutasamtök þeirra. Hin frámunalega fávíslegu vinnubrögð ríkisstj. við undirbúning þessara mála hlutu að hefna sín og koma stjórnarliðinu í koll.

Fyrst var hlaupið upp til handa og fóta, og ásjónur ráðherra birtust á sjónvarpsskermi samdægurs og óskapnaðurinn leit dagsins ljós og sagt var eitthvað á þessa leið: Sjá, við boðum yður mikinn fögnuð, við leggjum fram ný skattafrv. til þess að afla fjárvana ríkissjóði nýrra tekna, en skattbyrðin á öllum þorra manna verður miklu léttari en áður. Eldri maður og reyndur mun hafa sagt nokkuð á þessa leið: Hvílíkir snillingar. Útgjöld fjárlaga 1972 frá árinu áður aukast um 50%, og til þess að mæta þessum auknu útgjöldum þarf að afla nýrra tekna með nýjum skattalögum, en enginn á samt að þurfa að borga þyngri skatta. Seint munu aðrir eins snillingar fæðast í framtíðinni, sagði sami maður.

Nú er vissulega tilgangslaust að endurtaka deilur við stjórnarherrana um hina gífurlegu skattpíningu, sem í stjfrv. felst. Lokaþáttur sjónarspilsins, þegar skattborgararnir fá rukkanirnar, skattseðlana senda heim, mun leiða sannleikann í ljós.

Aðeins tvö atriði vil ég árétta nú. Mér kom hið fyrra í hug, þegar bæði hæstv. fjmrh. og þó einkum hæstv. viðskrh. kepptust við að fullyrða hér í hv. d. við lokaumr. um frv. um tekjuskatt og eignarskatt, að allur þorri manna mundi greiða miklu lægri skatta eftir ríkisstj. kerfinu nýja, jafnvel þeir, sem höfðu allt að 750 þús. kr., minnir mig, að viðskrh. hafi m.a. sagt. Þá minntist ég þess, að dr. Guðmundur Magnússon prófessor í víðskiptadeild Háskólans hafði skrifað mjög athyglisverða grein, sem birtist í Morgunblaðinu 8. jan. Þar kemst prófessorinn að þeirri niðurstöðu, að hjón með tvö börn með 550 þús. kr. brúttótekjur muni hafa 22 þús. kr. minni ráðstöfunartekjur eftir vinstristjórnarkerfinu en gildandi lögum. Í nefndri grein segir prófessorinn m.a.: Mér sýnist, að í heild sé skattbreytingin til bóta aðeins fyrir þá, sem verða með minni brúttótekjur en 375–400 þús. kr. Og eins og áður er sagt, eyðist 4% kjarabótin við 550 þús. kr. brúttótekjur og við hærri tekjur er nettótap. Búast má við því, að yfir 85% allra kvæntra karla á aldrinum 25–66 ára muni hafa 375 þús. kr. hrúttótekjur eða meira á árinu 1972 eða í framtölum þess árs, þannig að ætla má, að þessi atriði varði allan þorra vinnandi manna í landinu, þótt allir hafi ekki vísitölubundna kjarasamninga.

Eitthvað lítur dæmið skár út eftir litlar breytingar, sem stjórnarherrarnir hafa viljað gera á frv. En það gæti verið skýring á því, hvers vegna prófessorar, sem komast að slíkum niðurstöðum samkv. hlutlægu mati þrátt fyrir fullyrðingar ráðh., eru taldir óhæfir í útvarpsráði lágkúrulegra aftaníossa að meiri hluta.

Hitt atriðið er svo um breiðu bökin, sem einnig var talað um hér nú og sem sagt er, að eigi að bera byrðarnar. Ef sá er viljinn, hvers vegna er þá aukafrádráttur aldraða fólksins, sem lögleiddur var í fyrra, úr gildi numinn? Hvers vegna er sjómannafrádrátturinn skertur? Hvers vegna er frádráttur vegna atvinnutekna eiginkonu utan heimilis skertur? Halda má áfram að spyrja, hvers vegna. Þó vil ég ekki ætla stjórnarliðinu, að það hafi verið ásetningur þess að hækka skattbyrði aldraðra hjóna, sem bæði taka eftirlaun, um 100–130% í lægstu launaflokkunum, eins og gert verður, en þó ekki nema 34% í hærri launaflokkum. Ég ætla stjórnarflokkunum heldur ekki þann ásetning að hafa viljað hækka skattbyrði ekkjunnar, sem fær ellilaun og 50% makabætur, um meira en 100% í lægstu launaflokkum, en það verður gert, og þó ekki nema um 46% í þeim hæstu. En því er þetta ekki leiðrétt af hálfu stjórnarherranna? Vilja menn virkilega ganga frá málinu svona með þessar útkomur?

Dæmi ósómans í skattafrv. ríkisstj. eru svo mörg, að ekki tekur tali. Um afstöðu þm. Sjálfstfl. liggur það fyrir, að þeir hafa lagt sig alla fram við athugun þessara mála í málflutningi og tillöguflutningi. Núv. stjórnarherrar telja sig þess umkomna að hundsa alla tillögugerð af okkar hálfu. Gamalt máltæki segir, að dramb sé falli næst. Þetta frv. um tekjustofna sveitarfélaga er jafnbágt og hið fyrra, sem við höfðum til meðferðar í þessari hv. d. um tekjuskatt og eignarskatt. Við þm. Sjálfstfl. höfum því lagt til, að hinu fyrra sé vísað frá, og munum einnig leggja til, að þessu sé vísað frá, en endurskoðun skattalaga síðan haldið áfram af hyggindum og yfirsýn. Munum við við meðferð frv. gera nánari grein fyrir stefnumörkun okkar, sem er ótvíræð í þessum málum.

Meginókostur þessa frv. er sá, að aðstaða sveitarfélaganna verður mjög misjöfn. Þeim er skorinn yfirleitt of þröngur stakkur til tekjuöflunar og sjálfræði þeirra þar með fremur rýrt en aukið. Og segja má, að ný tekjuskipting milli ríkis og sveitarfélaga, sem af sveitarfélaganna hálfu hefur verið lögð svo mikil áherzla á, sé látin liggja á milli hluta að mestu leyti. Ég minni á samþykkt fulltrúaráðs Sambands ísl. sveitarfélaga á fundinum 18.–20. jan. Fulltrúaráð Sambands ísl. sveitarfélaga ályktaði á fundinum, með leyfi hæstv. forseta, „að tekjustofnakerfi það, sem í frv. felst, gefi alls ekki nægilegt svigrúm til tekjuöflunar. Miðað við svipaða nýtingu tekjustofna sveitarfélaga og á síðasta ári virðist — samkv. upplýsingum Efnahagsstofnunarinnar og fleiri aðila — vanta talsvert til, að heildartekjur sveitarfélaga verði þær sömu samkv. frv. á þessu ári og þær hefðu orðið samkv. gildandi lögum og álagningarreglum sveitarfélaga á síðasta ári, og er þó fullt tillit tekið til lækkunar útgjalda sveitarfélaga.“

Þá bendir fulltrúaráð einnig á, „að hinir ýmsu tekjustofnar hafi misjafna þýðingu í hinum ýmsu sveitarfélögum, og að einnig þess vegna er meiri sveigjanleiki í notkun tekjustofnanna nauðsynlegur en gert er ráð fyrir í frv., til að vegið verði á móti mismunandi afrakstri hinna ýmsu tekjustofna í sveitarfélögunum.

„Eigi sveitarfélögin að geta haldið þeim framkvæmdahraða, sem þau hafa haft að undanförnu“, segir í ályktuninni, „hvað þá aukið hann, sem víðast hvar virðist nauðsynlegt, er fullljóst, að ákvæði frv. gefa alls ekki nægilega möguleika til tekjuöflunar. Auknar framkvæmdir á vegum sveitarfélaga hafa almennt mun meiri áhrif til aukinnar velferðar stærsta hluta þjóðarinnar heldur en framkvæmdir ríkisins, þar sem sveitarfélagið skapar einstaklingum hið nánasta umhverfi, sem hann lifir og hrærist í. Aukning framkvæmda sveitarfélaga hefur því mikil velferðaráhrif og getur meira en flest annað stuðlað að betra lífi almennings. Þetta eru röksemdir fyrir aukinni hlutdeild sveitarfélaganna í ráðstöfun þjóðartekna og þar með auknu ráðstöfunarfé þeirra.“

Þannig lýkur þessari ályktun og þessari mjög svo ákveðnu gagnrýni frá þessum fulltrúaráðsfundi Sambands ísl. sveitarfélaga.

Herra forseti. Af hálfu Sjálfstfl. eða hálfu sjálfstæðisþm. verður gerð nánari grein fyrir þeim einstöku atriðum þessa frv., sem við teljum, að mættu betur fara. Eftir athugun málsins í n. munum við svo bera fram einstakar brtt., fari svo, að megintillögu okkar um frávísun málsins verði hafnað.