13.03.1972
Neðri deild: 50. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1132 í B-deild Alþingistíðinda. (672)
133. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Ólafur G. Einarsson:
Herra forseti. Loks er frv. um tekjustofna sveitarfétaga komið til umr. í hv. Nd., nær þremur mánuðum eftir að það var lagt fram. Hæstv. félmrh. nefndi hér áðan tvær ástæður, sem væru þess valdandi, að þessi dráttur hefði orðið. í fyrsta lagi var það fundur Norðurlandaráðs. Það hefði verið fyrir tilmæli stjórnarandstöðunnar, að á meðan hann stæði væri ekki hreyft við þessu máli. Sá fundur stóð í viku og ég vil benda á, að í þeirri viku var haldinn fundur í heilbr.- og félmn. d., þar sem kynntar voru í fyrsta skipti brtt. ríkisstj., þær fyrstu, sem komu. Í öðru lagi minntist hann á, að það hefði verið farið fram á frest til þess að ganga frá brtt. Jú, það mun rétt vera, og það var einn dagur. Þetta eru þess vegna ekki þær höfuðástæður, sem liggja til þess, að afgreiðsla þessara mála hefur dregizt svo mjög sem raun hefur orðið á. Það mætti ætla, að einhverjar verulegar breytingar hefðu verið gerðar á frv. þennan meðgöngutíma, en því er reyndar ekki að heilsa. Það verður þó að segjast eins og er, að sumir verstu vankantarnir hafa verið sniðnir af, en samtímis hefur verið bætt inn í miklum vitleysum, og ég skal koma að því nokkru síðar. Strax og frv. hafði verið lagt fram var farið að tala um stefnubreytinguna, sem í því fælist. Útvarpsviðtal við hæstv. félmrh. hófst með hinni klassísku spurningu: Felst að yðar dómi stefnubreyting í frv.? Svarið var svona, með leyfi hæstv. forseta:
„Já, það felst í þessu frv. stefnubreyting um skattheimtu sveitarfélaganna. Tekjustofnarnir, sem sveitarfélögunum er ætlað að byggja á samkv. frv., eru fasteignaskattur, framlög úr Jöfnunarsjóði og útsvör, en auk þessara tekna, þessara föstu tekjustofna, hafa sveitarfélögin einnig tekjur af eignum sínum, eigin atvinnurekstri og stofnunum, sem reknar eru í almenningsþágu, t.d. vatnsveitum, rafveitum, hitaveitum o.s.frv., enn fremur ýmsar aðrar tekjur, svo sem leyfisgjöld o.fl., allt eftir því sem lög og reglugerðir annars mæla fyrir um.“
Þarna er stefnubreytingin. Ég held, að þetta hafi allt verið í gildandi lögum. Þarna er að vísu einu sleppt, það eru aðstöðugjöldin, en þau eru nú komin inn aftur, eins og ég kem að seinna. Hæstv. ráðh. taldi upp fleira, að í stað stighækkandi tekjuútsvars komi ákveðinn hundraðshluti af tekjum, 10% hámark, því hefur að vísu verið breytt í 11%, frávik sé gert til lækkunar á lægri tekjum en 450 þús. kr., en útsvarsprósentan þó aldrei lægri en 5%, þessu er reyndar búið að breyta líka, og svona mætti nú lengur telja, en ég ætla ekki að fara nánar út í þessa upptalningu á stefnubreytingunni. En það er eitt enn, sem mjög hefur verið gumað af, það er hin gagngera endurskoðun á verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga, sem hér hafi verið gerð. Þar hafi verið gengið til móts við margítrekaðar óskir sveitarfélaganna. Ég held, að allir nema e.t.v. ríkisstj. skilji, að slík endurskoðun hefur engin farið fram. Það er ekki endurskoðun á verkaskiptingu, þótt útgjöldum vegna almannatrygginga, sjúkrasamlagsgjalda og löggæzlu sé af sveitarfélögunum létt. Hér er um að ræða þætti, sem sveitarfélögin hafa ráðið lítið sem ekkert yfir, en þurft hins vegar að fjármagna að nokkru leyti. Sveitarfélögin hafa óskað eftir, að þessum byrðum yrði af þeim létt, og það var orðið við þeim óskum. Slíkt ber vissulega að þakka, en ég held, að engir nema stjórnarliðar geti fallið fram í tilbeiðslu yfir þeirri gagngeru endurskoðun, sem á að hafa verið gerð á verkaskiptingunni almennt. Það hefur nefnilega ekkert verið gert, þótt hver maður hljóti að sjá, að slíkt sé óhjákvæmilegur undanfari skiptingar beinna tekjuskatta milli ríkis og sveitarfélaga. Ég ætla ekki hér að rekja, hverjar óskir sveitarfélaganna eru um þetta veigamikla atriði, en í stuttu máli eru þær þess efnis, að stefnt verði að fækkun hinna sameiginlegu verkefna og sjálfstjórn hinna ýmsu byggðarlaga verði aukin. Í líkingu við þetta er raunar eitt ákvæði í málefnasamningi stjórnarflokkanna, að því viðbættu, að haft verði samráð við sveitarstjórnarsamtökin um þessa endurskoðun. Með því litla, sem gert hefur verið nú, er hins vegar stefnt að auknu miðstjórnarvaldi, auðvitað í fullu samræmi við stefnu vinstri flokkanna, þótt annað sé sett fram á loforðalistanum, og ekkert samráð er haft við sveitarfélögin.
Löggæzlan var eitt af hinum sameiginlegu verkefnum, sem sveitarfélögin höfðu óskað eftir að ríkið yfirtæki að öllu leyti. Það hefur verið gert í orði, en ekki á borði. Lögreglumenn eru enn þá starfsmenn sveitarfélaga, allt er í óvissu um yfirtöku ríkisins á þeim eignum, sem varða löggæzluna og sveitarfélögin hafa komið upp. Helzt hefur heyrzt, að ríkisstj. ætlist til, að sveitarfélögin afhendi ríkinu án endurgjalds þessar eignir og þakki bara fyrir að þurfa ekki að greiða áfram til þessa málaflokks. Hvenær má búast við, að ríkisstj. komist að niðurstöðu um, hvernig eigi að leysa þær ýmsu spurningar, sem þarna hafa vaknað?
Í sambandi við endurskoðun verkaskiptingarinnar vísa ég til grg., sem Samband ísl. sveitarfélaga lét gera og gefin var út í jan. 1970 og send öllum alþm. Þar voru settar fram í skýru máli till. sveitarfélaganna. Niðurstaða þeirra er í stuttu máli þessi: Ríkisvaldið annist eitt þau verkefni, sem varða flesta eða alla þjóðfélagsborgara nokkurn veginn jafnt og ekki þarf staðbundna þekkingu til að leysa, en sveitarfélögin hafi með höndum staðbundin verkefni og þjónustu, sem telja má að hlutfallslega jöfn þörf sé fyrir í hverju sveitarfélagi og krefst meiri beinna tengsla við borgarana en þjónusta ríkisins. Jafnframt verði stefnt að fækkun sameiginlegra verkefna ríkis og sveitarfélaga. Við verkefnaskiptinguna verði að því stefnt, að framkvæmd og fjármálaleg ábyrgð tiltekins verkefnis verði í höndum sama aðila. Tekjustofnakerfi ríkis og sveitarfélaga verði tekið til heildarendurskoðunar og sveitarfélögin fái tekjustofna, sem samsvari verkefnum þeirra.
Þetta er í mjög stuttu máli það, sem sveitarfélögin hafa óskað eftir. Og hvað hefur svo gerzt? Af sameiginlegum verkefnum er löggæzlan það eina, sem nú er fært alveg yfir á ríkið, og sveitarfélögin losna við að fjármagna tryggingakerfið, sem þau hafa aldrei ráðið neitt yfir, og sjúkrasamlögin að hálfu. Engin ný verkefni eru færð til sveitarfélaganna. Tekjustofnar þeirra eru rýrðir, miðstjórnarvaldið aukið. Svo er stjórnin að guma af því, að endurskoðuð hafi verið verkefnaskipting samkvæmt ítrekuðum óskum sveitarfélaganna.
Eins og bent hefur verið á, bæði hér á hv. Alþ. og í blöðum, hefur ekkert samráð verið haft við sveitarstjórnarsamtökin við samningu þessa frv. Þeim var ekki gefinn kostur á að tilnefna fulltrúa í endurskoðunarnefndina, og þegar stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga fann að þessu, var reynt að bæta úr því með því að kalla fulltrúa frá sambandsstjórninni á fundi nefndarinnar til þess að kynna þær hugmyndir, sem uppi voru þar. Mun það hafa gerzt eitthvað þrisvar eða fjórum sinnum. Auk þess kom ráðuneytisstjórinn í fjmrn., sem var formaður nefndarinnar, sem endurskoðaði tekju- og eignarskattslögin, á fund um miðjan nóv. s.l., þar sem mættir voru stjórnarmenn sambandsins og nokkrir menn úr fulltrúaráði þess, auk fulltrúa Reykjavíkurborgar. Voru þar enn kynntar ýmsar hugmyndir, sem uppi voru hjá nefndinni, en daginn eftir fékk ríkisstj. kærkomið tækifæri til að höggva á þau litlu tengsl, sem þarna höfðu myndazt, þegar frétt birtist í Morgunblaðinu um það, sem þarna var að gerast. Trúnaðarbrot hafði verið framið og fyrir það skyldi hefnt. Hér átti nefnilega ekkert að kvisast út. Frv. skyldu koma öllum að óvörum. Engan tíma átti að gefa þeim, sem málið raunverulega varðaði, þ.e. sveitarfélögunum og skattborgaranum almennt, til þess að átta sig á, hvað hér væri í rauninni á ferðinni. Hver var svo sökudólgurinn, sem framdi trúnaðarbrotið? Í fyrstu var ekkert fullyrt, aðeins farið með löndum. En í blaði hæstv. félmrh., þann 13. jan. s.l., í annars ágætri kynningargrein um mig, þá er sagt, að það hafi verið ég, sem kom fréttinni á framfæri við Morgunblaðið. Í tillögum endurskoðunarnefndarinnar hafi nefnilega verið ákvæði, sem mundu koma illa við ýmsa borgara í mínu sveitarfélagi, þá, sem búa í stórum húsum og greiða lítið til sveitarfélagsins. Ég hef nú að vísu fengið orð fyrir annað í mínu sveitarfélagi en það, að vilja gæta sérstaklega hagsmuna þessa hóps, en ég get náttúrlega ekki annað en þakkað fyrir, að svo drengilega er hlaupið undir bagga og reynt að hressa við fylgi mitt í mínu sveitarfélagi hjá þessu fólki. Að öðru leyti vísa ég á bug þeim ásökunum, að ég hafi framið trúnaðarbrotið, og ég vil biðja sessunaut minn, hv. 3. landsk. þm., að taka eftir því, en af málfarinu sýnist mér hann hafa skrifað greinina, og alla vega ber hann ábyrgð á henni sem ábyrgðarmaður blaðsins.
En hvernig verður svo hag hinna ýmsu sveitarfélaga borgið við lögfestingu þessa frv.? Hæstv. ráðh. taldi hér áðan, að þetta mundi allt saman sleppa. Það hefur verið sýnt fram á með rökum, sem ekki hafa verið hrakin, að tekjuskerðing sumra sveitarsjóða verður gífurleg. Ég hef ekki í höndunum útreikninga, sem sýna niðurstöður eftir þær breytingar, sem ríkisstj. hefur gert frá upphaflegu frv., og ég dreg reyndar í efa, að ríkisstj. hafi þá útreikninga heldur, en fróðlegt væri að fá það upplýst. Hins vegar fullyrði ég, að með breytingunum hefur ekki verið bættur hagur þeirra sveitarfélaga, sem nefnd hafa verið sem dæmi um þau, er verst fara út úr þessu.
Samband ísl. sveitarfélaga lét reikna út um áramótin tekjur allra sveitarfélaga í landinu, eins og ætla mætti að þær yrðu samkv. frv. Þessir útreikningar sýndu, að tekjur sveitarfélaganna í heild yrðu nær því hinar sömu og þær voru árið 1971. Hækkun milli ára tapaðist, en var að nokkru bætt upp með því, að ríkissjóður tæki að sér greiðslur, sem áður hvíldu á sveitarfélögunum og sem ég nefndi hér áðan. Þessar áætlanir sýndu hins vegar svo stórfelldar sveiflur í tekjuöflun hinna einstöku sveitarfélaga miðað við siðasta ár, að sérstaka furðu vakti, að ríkisstj. skyldi leggja frv. svona fram. Eina skýringin er raunar sú, að stjórnin hafi ekki gert sér nokkra grein fyrir þessu fremur en ýmsu öðru í sambandi við skattamálin. Nú skyldi maður ætla, að úr þessu hafi verið bætt, en því er bara ekki að heilsa, engin tilraun hefur verið gerð til þess. Það hefur ekki verið hrakið, að ýmsir þéttbýlisstaðir verða fyrir teknatapi, sem nemur frá 10 og allt upp í 50% miðað við síðasta ár. Hér er einkum um að ræða ýmsa útgerðarstaði, staði þar sem mikil og margvísleg verkefni bíða úrlausnar. Þetta hlýtur að leiða af sér stöðvun hinna nauðsynlegustu framkvæmda, svo sem við gatna- og frárennslisgerð, umhverfi fiskvinnslustöðva og ýmislegt það, sem gera þarf til þess að búa atvinnurekstrinum nauðsynlega rekstraraðstöðu og íbúunum mannsæmandi umhverfi. Þetta telur svo hæstv. félmrh. að sé fullnægjandi fyrir sveitarfélögin. Ýmsir dreifbýlisstaðir fá hins vegar allverulega hækkun útsvara, en þeim er það flestum sameiginlegt, að ýmist er þjónusta við íbúana þar í lágmarki, eins og er í sveitahreppum ýmsum af eðlilegum ástæðum, eða þá að meðaltekjur í þessum sveitarfélögum eru lágar. Ég fullyrði, að á ýmsum þessara staða verður verulegur hluti útsvara óinnheimtanlegur, þ.e. sá hluti, sem lagður er á hinar lægstu tekjur. Þar sem tekjur, útsvarstekjur lækka, er ein höfuðorsökin annars sú, að viðkomandi sveitarfélög hafa haft verulegar tekjur af atvinnurekstrinum, en nú eiga tekjuútsvör atvinnurekstrarins að falla niður eða öllu heldur, félög eiga að greiða tekjuskatt eingöngu til ríkisins. Hér er um mjög alvarlegt ákvæði í frv. að ræða, þar sem skorið verður á hin æskilegu tengsl milli atvinnurekstrarins og sveitarfélaganna. Sveitarfélögin eru svipt mikilvægum tekjustofni. Áhugi sveitarstjórnar fyrir því, að vel rekin fyrirtæki starfi innan þeirra marka, minnkar. Þau mörgu sveitarfélög, sem hafa sýnt lofsverðan áhuga á uppbyggingu atvinnulífsins undanfarin ár, fá ekki að njóta arðsins af verkum sínum, en afskipti ríkisins af atvinnurekstrinum hljóta að fara vaxandi. Þetta er auðvitað líka í samræmi við hugsjónir vinstri manna, en það er í ósamræmi við óskir meiri hl. þjóðarinnar og staðaryfirvalda. Hin mikla tekjuskerðing, sem víða mun eiga sér stað, stuðlar ekki að auknu sjálfstæði sveitarfélaganna, þvert á móti gerir hún þau háðari ríkisvaldinu, veldur stöðnun í framkvæmdum og óánægju íbúanna. Er þetta stefna stjórnarinnar eða er hér enn eitt dæmið um, að stjórnin geri sér enga grein fyrir afleiðingum gerða sinna?
Með auknum krafti reyna nú stjórnarflokkarnir að koma því inn hjá almenningi, að verið sé að lækka skatta hjá öllum almenningi, einkum þó á þeim, sem lægri hafa tekjurnar. Hv. 5. þm. Austf., Vilhjálmur Hjálmarsson, sagði hér í umr. í síðustu viku um tekju- og eignarskatt, að ekki yrði ljóst fyrr en í vor, hvernig til hefði tekizt. Hæstv. viðskrh. var þó ekki á því, að það þyrfti að bíða til vors til að sjá það. Það lægi þegar ljóst fyrir, og því til áréttingar birti svo Þjóðviljinn í gær nokkur dæmi og mikið mál, þar sem reynt er að sanna enn einu sinni, að verið sé að lækka skattana. Ég verð að segja, að það þarf mikinn kjark til að halda þessum blekkingum áfram, eftir að allur almenningur getur hjálparlaust gert sér grein fyrir því, sem er að gerast. En áfram skal þó halda við þá þokkalegu iðju að blekkja. Það verður fróðlegt að heyra röksemdir stjórnarliða, þegar skattskrárnar koma út í vor.
Annars þarf ég ekki að fara mörgum orðum um þetta mál. það hefur hv. 7. þm. Reykv. þegar gert, en ég ítreka aðeins, að það eru enn þá notaður sömu aðferðirnar til þess að fá hagstæða útkomu, þegar borin er saman skattbyrði eftir eldra kerfi og hinu nýja. Allar hækkanir eru komnar inn í samanhurðargrundvöllinn. Það er reiknað með skattvísítölu 106.5 stig, fasteigna- og eignarsköttum er sleppt, frádráttur greiddra útsvara ekki lengur með í dæminu, nefskattar reiknaðir í eldra kerfi í algjöru hámarki, þótt upphæð sjúkrasamlagsgjalda, svo að dæmi sé nefnt, sé mjög mismunandi, og að sjálfsögðu er ekkert tillit tekið til frádráttarhæfni nefskattanna í samanburðinum. Svo þegar reynt er að koma hæstv. ráðh. og stjórnarliðum í skilning um það, hvernig á að reikna breytingu á skattbyrði, þá sitja þeir hér undir slíkum lestri flissandi og grípa fram í. Hér er alvarlegt mál á ferðinni, og fyrir því munu þeir vafalaust finna fljótlega.
Að þessu sinni mun ég ekki fara ítarlega út í umr. um einstök ákvæði þessa frv. Þó vil ég aðeins nefna nokkur atriði og þá einkum þær breytingar, sem á frv. hafa verið gerðar frá því sem var, þegar það var lagt fram.
Í 1. gr. frv. eru nú aðstöðugjöld tekin inn í d-lið sem einn af tekjustofnum sveitarfélaga, en áður var heimild í bráðabirgðaákvæði um 50% innheimtu þeirra miðað við síðasta ár. Með þessu er að sjálfsögðu verið að fullnægja kröfum Alþb., sem séð hefur fram á, að verið væri að létta óréttlátum skattbyrðum af atvinnurekstrinum. Ég geng út frá því, að framsóknarmenn hafi viljað þóknast Sambandi ísl. samvinnufélaga með því að fella aðstöðugjöldin niður og gera þannig Sambandið og kaupfélögin endanlega skattlaus. Í bréfi Sambandsins til heilbr.- og félmn. Ed. frá 26. jan. s.l. kemur fram viss ótti um, að bráðabirgðaákvæðunum verði breytt, en í bréfinu segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Þá viljum vér leggja áherzlu á, að 1. tölulið ákvæðis til bráðabirgða í frv.“ — það er um aðstöðugjöldin „verði ekki breytt í meðförum Alþ., en þar er gert ráð fyrir fullri niðurfellingu aðstöðugjalds, þó þannig, að sveitarfélögum er heimilt að leggja á aðstöðugjald 1972, er nemi helmingi þess hundraðshluta, er á var lagður 1971. Að vorum dómi eru aðstöðugjöld óheppilegt form skattlagningar á atvinnurekstur. Það leggst með jöfnum þunga á fyrirtæki, hvort sem afkoma þeirra og greiðslugeta er góð eða slæm. Auk þess eru vandséð nokkur veruleg tengsl milli gjaldstofnsins og þeirrar þjónustu, sem sveitarfélögin veita atvinnurekstrinum. Að vísu hafa fasteignaskattar einnig ýmsa vankanta sem réttlát skattlagning á atvinnurekstur, en þó ekki í jafnríkum mæli og aðstöðugjaldið. Mörg dæmi má nefna um það, hversu óraunhæft er að leggja skatta á rekstrarútgjöld, svo sem gert er með aðstöðugjaldinu. Leyfum vér oss að benda á jafnfráleitt dæmi og það, að aðstöðugjald er lagt á tjónabætur vátryggingafélaga. Sú mikla hækkun fasteignaskatts, sem gert er ráð fyrir í b-lið 3. gr. frv., teljum vér að sé í hámarki og megi ekki þyngri vera, sérstaklega þegar gætt er að heimild sveitarstjórnar til þess að innheimta skattinn með 50% álagl. Forsendur fyrir jafnmikilli hækkun fasteignaskatta og hér greinir teljum vér vera fulla niðurfellingu aðstöðugjaldsins, eins og frv. gerir ráð fyrir.“
Undir þessar skoðanir, sem hér koma fram, get ég flestar tekið, en ég tek jafnframt fram, að samtímis niðurfellingu aðstöðugjalda þarf að koma sú regla, að hinum mismunandi formum atvinnurekstrar sé ekki mismunað í skattlagningu, og sveitarfélögin fái hluta af beinum tekjusköttum félaga. Varðandi þetta atriði annars, breytingar á aðstöðugjaldinu frá frv., þá er það nú sérstakur kafli út af fyrir sig, hvernig þær gr. eru úr garði gerðar. Í 36. gr. frv. segir svo:
„Leggja má á aðstöðugjald, samkv. III. kafla l. nr. 51/1964, þó þannig, að það skal ekki hærra vera í hverju sveitarfélagi en nemi 65% þess hundraðshluta, sem þar var á lagður sem aðstöðugjald á árinu 1971.“
Þetta er 36. gr., en svo í 42. gr., — það eru ekki margar gr. á milli, — þar eru þessi lög felld úr gildi, lögin, sem þarna er verið að vísa til. Svona vinnubrögð eru náttúrlega ekki til fyrirmyndar. Efnislega séð er þetta náttúrlega líka hrein vitleysa. Ég vil benda á, hversu fráleitt það er að lögfesta aðstöðugjald, 65% af þeirri upphæð, sem lögð var á í hverju sveitarfélagi 1971, en þetta er gert með 36. gr., sem ég var að lesa áðan. Hérna er enn eitt dæmið um það handahóf, sem er á öllum undirhúningi þessa máls. Þau sveitarfélög, sem ekki lögðu á aðstöðugjald 1971, mega aldrei gera það, þótt þau kunni að vera í brýnni þörf fyrir að nota þá tekjustofna, sem öðrum leyfist að nota, ekki sízt eftir þá kerfisbreytingu, sem nú er gerð.
Annar kafli frv. fjallar um fasteignaskatta. Þar hefur verið bætt inn í 3. gr. fádæma heimskulegu ákvæði, svo ekki sé meira sagt, þar sem heimilað er að leggja sérstakan skatt á hlunnindi, sem eru í eigu utansveitarmanna, og þessi aukaskattur getur orðið allt að 4% eða á að vera 4% af virðingarverði. Hér sýnist mér, að verið sé að ganga til móts við raddir, sem oft hafa komið upp í ýmsum sveitarhreppum, og þarna er sérstaklega átt við laxveiðihlunnindin. Hugmynd Búnaðarfélags Íslands og Stéttarsambands bænda er gleypt alveg hrá og ekkert athugað, hvað þetta raunverulega þýðir. Í fyrsta lagi er hér verið að mismuna mönnum í skattlagningu eftir búsetu, en slíkt getur ekki staðizt, og það mun sannast síðar. Hvernig ætli bóndanum líki, þegar hann af einhverjum ástæðum þarf að bregða búi og flytja brott úr sveit sinni, en ætlar ekki að selja jörðina? Þá hækkar fasteignaskattur hans stórlega, aðeins vegna þess að hann flyzt í annað sveitarfélag. Hvað þýðir þetta raunverulega í skatti? Grundvöllur hlunnindamats er tíföldun arðsins, sem menn hafa af hlunnindum. Ef við tökum lítið dæmi um þetta, að veiðiréttur sé leigður á 100 þús. kr., þá er matið á þessum hlunnindum komið upp í í millj. kr. Fasteignaskattur yrði 4.5% eða 45 þús. kr. Auk þess mundi eigandinn væntanlega, eigandi þessara hlunninda, greiða tekjuskatt og útsvar af þessum 100 þús. kr. Og þegar við höfum reiknað þetta dæmi til enda, þá sé ég ekki betur en það sé nákvæmlega ekki neitt eftir af þessari hlunnindaeign. Svona ákvæði geta náttúrlega ekki staðizt, ef menn hugleiða málið dálítið nánar.
23. gr. frv. hefur orðið mönnum talsvert umhugsunarefni og þá einkum 4. mgr., sem hefur að vísu tekið litillega breytingu frá upphaflega frv., þar sem hér er orðið um heimildarákvæði að ræða. Með þessu ákvæði er beinlínis að því stefnt að gera menn algerlega varnarlausa, ef skattyfirvöldum dettur í hug að breyta framtölum gjaldenda þeim í óhag. Að sjálfsögðu var felld till. sjálfstæðismanna í hv. Ed. um það, að framteljanda yrði gefinn kostur á að gæta réttar síns, ef breytingar væru fyrirhugaðar af hálfu sveitarstjórnar á framtali gjaldanda. Hér er það enn þá hið opinbera vald, sem á að ráða. Það á meira að segja að ákveða, hverjar tekjur gjaldandans hefðu átt að verða. Um raunverulegar tekjur þarf ekkert að spyrja. Réttur einstaklingsins er enginn. Það er í raun alveg furðulegt, að sæmilega viti bornir menn skuli fást til að rétta upp hönd með svona vitleysu. Vonandi hittir þetta ákvæði ekki þá fyrir sjálfa.
Þá er eitt dæmið enn, sem ég held að verði að flokkast undir hroðvirkni í undirbúningi þessa máls, og það er að finna í 26. gr. í frv., eins og það er nú orðið. Samkv. 2. málsl. þeirrar greinar skal veita persónufrádrátt fyrir börn, sem orðin eru sjálfstæðir framteljendur. Þar með er ákvörðun um persónufrádrátt í útsvari orðin önnur en í tekjuskatti og það þarf að fara að leita uppi 16 ára ómaga vegna útsvarsálagningar. Er þetta gert til að einfalda kerfið eða eru þetta bara mistök? Í næsta málsl. í sömu grein er svo aftur komin önnur regla. Þar er talað um börn innan 16 ára. Það væri fróðlegt að vita, hver er meiningin raunverulega með þessu, hvort þetta á að vera svona eða hvort þetta eru mistök.
Með niðurfellingu 1. málsgr. 26. gr., eins og hún var í upphaflega frv., sýnist mér að eitthvað einkennilegt sé á ferðinni. Samkv. 25. gr. frv., eins og það er nú, verða sveitarfélög að ákveða fyrir fram útsvarsprósentu við samningu fjárhagsáætlunar. Samkv. þessu sýnist mér, að engin leiðrétting eða frávik sé heimilt á eftir, þegar kunn er útkoma útsvarsálagningarinnar. Ef t.d. sveitarstjórn áætlar að nýta þurfi heimild til að leggja á 11% útsvar, en við álagningu kemur í ljós, að útsvör reynist 5% hærri en fjárhagsáætlun, þá er engin heimild til þess að lækka. Skyldi þetta líka hafa verið meiningin? Svona mætti lengur telja, en ég ætla að láta þetta nægja að sinni um einstakar greinar frv.
Herra forseti. Ég lýk nú máli mínu og ítreka það, að hér hefur ekki nægilega vel verið að verki staðið. Fjölmörg sveitarfélög verða hart úti við lögfestingu þessa frv. Skattbyrði hinna einstöku gjaldenda þyngist, þegar litið er til allra þeirra skatta, sem nú eru boðaðir. Það stendur enn, sem hv. 1. þm. Reykv. sagði hér í umr. fyrir jól, að ríkisstj. væri meiri sæmd í því að draga bæði skattafrv. til baka og athuga betur sinn gang.