13.03.1972
Neðri deild: 50. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1157 í B-deild Alþingistíðinda. (678)

133. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Ég ætla ekki frekar en í fyrri ræðu minni að hefja hér almennar umr. um þessi skattafrv. í heild sinni, en vík beint að því máli, sem ég gerði einkum að umtalsefni hér fyrr í dag, fasteignasköttunum. Ég beindi örfáum spurningum til hæstv. ráðh. varðandi álagningu fasteignaskattanna, og hvernig þeir hygðust notfæra sér þau fasteignamöt, sem nú lægju fyrir, þegar ljóst væri, að lögin, sem í gildi eru um fasteignamat og skráningu, eru allsendis ófullnægjandi og engin stofnun, engin aðstaða, enginn mannskapur er fyrir hendi til þess að veita þær upplýsingar, sem að því er virðist er gert ráð fyrir samkv. þessu frv. Ég reyndi að vekja athygli á því ófremdarástandi, því öngþveiti, sem ríkir nú, eftir að aðalmatinu lauk, og það tók gildi í ársbyrjun 1970, með tilliti til þess, að þá þegar voru ýmsar eignir vanmetnar. Frá því að þetta mat var tekið í gildi, hafa að sjálfsögðu ýmsar byggingar risið. Þær eru sömuleiðis vanmetnar og sumar jafnvel ómetnar. Þess vegna var spurning mín tvíþætt. Ráðh. svaraði henni eingöngu að öðru leyti, þ.e. hann staðfesti, að verðlag yrði fært til dagsins í dag eða til ársloka 1971 á hinu nýja fasteignamati, en hann gerði hins vegar ekki grein fyrir því, hvernig ríkisstj. ætlaði að leysa úr því augljósa vandamáli, sem fyrir lægi hvað snertir þessar vanmetnu eða ómetnu eignir, sem skipta mjög verulegum fjölda nú þegar. Ég spurðist fyrir um það, hvernig ríkisstj. hygðist grípa á þessu vandamáli, hvort hún hefði nú á prjónunum ráðagerðir um að leggja fram frv. um fasteignamat og fasteignaskráningu, um nýja stofnun, en ég fékk ekki svar við þessum spurningum mínum.

Ráðh. gerði tilraun til að snúa út úr þeim ummælum mínum varðandi 3. mgr. 3. gr. varðandi heimild sveitarstjórna til að innheimta álag á fasteignasköttum, ef eins og í bráðabirgðaákvæði segir, í ljós kemur, að framlög eða tekjuöflun sveitarfélaga reynist ekki næg, eins og gert er ráð fyrir í þessum frv. Ég vildi meina, að þarna væri komin fram viðurkenning ríkisstj. á því, að sá möguleiki mundi geta komið upp, að þessi tekjustofnafrv. og þessar till. reyndust ekki nægilegar fyrir sveitarfélögin og þá væri gripið til þess ráðs að heimila frekari álagningu og síðan frekara framlag frá rn., en þó ekki fyrr en álagningin samkv. 3. mgr. 3. gr. væri nýtt að fullu. Mín hugsun og mín orð voru þau, að það ætti ekki að gera kröfu til þessarar nýtingar á álagsheimildinni í 3. mgr. 3. gr., ætti ekki að gera kröfu til þess, áður en til aukaframlags kæmi af hálfu félmrn., vegna þess að ég tel það óeðlilegan og ranglátan skatt, fasteignaskattinn, og þá sérstaklega með tilliti til þess, hvað hann kemur niður á hinum dreifða fjölda, á öllum almenningi.

Ég segi þetta líka vegna þess að ég er þeirrar skoðunar, að fasteignasköttum á að vera mjög í hóf stillt. Þeir eiga að vera í algeru lágmarki og á jafnvel að leggja þá alveg niður, þegar um er að ræða íbúðarhúsnæði til eigin afnota af ákveðinni lágmarksstærð með tilliti til fjölskyldustærðar. Ráðh. vék nokkuð að þessum sjónarmiðum og taldi, að það væru ekki aðrir möguleikar til en að leggja skatta á eignir og tekjur manna í þessu þjóðfélagi eins og öðrum, og undir það „prinsip“-sjónarmið má að sjálfsögðu taka. En því er haldið fram, bæði af stjórnarsinnum og öðrum, að það eigi ekki að leggja skatta á lágmarksþarfir borgaranna. Það eigi ekki að leggja skatta á þær tekjur, sem eru nauðsynlegar til lífsviðurværis og lágmarkskrafna. Á sama hátt hef ég þá skoðun, að eigin íbúðarhúsnæði sé það mikið takmark í sjálfu sér, að það eigi að vera eitt af keppikeflum þjóðfélagsins að koma því svo fyrir, að allir einstaklingar eigi sínar eigin íbúðir, að ég tel það til þessara lágmarksþarfa, tel það vera einn af hornsteinum lífsviðurværis hvers og eins. Þess vegna tel ég það vera æskilegt markmið í framtíðinni, að hægt sé að losa sig við almenna fasteignaskatta á íbúðum til eigin afnota af ákveðinni lágmarksstærð.

Ég veit ekki, hvort ég á að tefja þessar umr. frekar með að tíunda það, hversu augljós vandkvæði og öngþveiti er komið á varðandi fasteignamötin og álagningu fasteignaskatta. En ég vil vekja athygli á því, að samkv. lögum er gert ráð fyrir því, að hægt sé að byggja á mati, sem á nú þegar að vera fyrir hendi, og enn fremur mati, sem á að framkvæmast í náinni framtíð. Það er engin aðstaða til þess að framkvæma þessa hluti nú þegar í dag, ekki einu sinni gefa almennar upplýsingar, hvað þá að halda þessu mati áfram í eðlilegu horfi. Og því hef ég lagt á það mikla áherzlu, að þessi mál yrðu gripin föstum tökum, ef ríkisstj. hyggst láta á það reyna, að tekjuskattar séu innheimtir og vill að sveitarfélögin hafi af því raunverulegan hag að nota þennan skatt sem tekjustofn á þessu ári og í framtíðinni. Mín skoðun liggur ljóst fyrir varðandi fasteignir og fasteignaskatta.

Ég segi hér aftur: Fólk greiðir skatta af sínum almennu tekjum í þjóðfélaginu. Það fær lán og greiðir sín lán með vísitöluálagi, þegar það ræðst í fasteignakaup eða byggingar. Það greiðir almenn gjöld til sveitarfélaga og ríkis, gatnagerðargjöld, skipulagsgjöld, lóðagjöld. Og það greiðir jafnvel lóðaleigugjöld til sveitarfélaga. Svo á í þokkabót ofan á þetta allt saman að leggja mun hærri og erfiðari fasteignaskatta á þetta sama fólk, sem er náttúrlega, eins og sjá má, löngu búið að borga eðlilega skatta og sinn hlut til ríkisins af þessum tilraunum sínum til þess að koma sér upp eigin húsnæði.