15.03.1972
Neðri deild: 51. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1200 í B-deild Alþingistíðinda. (699)
133. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð að lokum þessarar umr. Í heild get ég verið harla ánægður með þessar umr. Ég gat aldrei við öðru búizt en stjórnarandstaðan hefði uppi einhver andmæli gegn skattafrv., sem felur í sér grundvallarbreytingar frá fyrra kerfi. Það var því eðlilegt og sjálfsagt, að þeir kæmu með margs konar aths., sínar hugmyndir, sem að sjálfsögðu eru mjög háðar hinni gömlu skattalöggjöf, sem þeir höfðu í gildi alla sína stjórnartíð.
Svo að vikið sé að þeim brtt., sem hv. heilbr.- og félmn. flutti, eru þær til smálagfæringa. Í þeim felast tvær smáefnisbreytingar, þ.e. að samræma orðalag í tveimur gr., fella niður orðið „sparisjóð“ í 10. og 11. gr. og samræma orðalag þannig, að tvisvar í sömu gr. sé sama orðalagið, „innan 16 ára“. Síðan það formsatriði, sem er fjarri því að vera nokkur efnisbreyting, að taka inn í staðinn fyrir 36. gr. kaflann úr lögum um aðstöðugjald, þannig að það verði sjálfstæður kafli, V. kafli, en að vitna til þess í 42. gr., eins og gert var. Það var engin nauðsyn að gera þessa breytingu, en það fer betur á því óneitanlega og þess vegna taldi ég sjálfsagt að gera það. Það var vitnað í lög, sem skyldi fella niður, en svo stóð: sbr. 36. gr. þessara laga, þ.e.a.s. sú grein átti að hafa áframhaldandi gildi, og það nægði, þó að það væri formlega ekki eins áferðarfallegt að vitna til þess í lögum, sem að öðru leyti voru felld niður. Greinin átti að standa og þetta hefði algjörlega staðizt, en ég fellst á það, að það er betra form að taka kaflann upp eins og hann á að vera í frv. Á þessa formsbreytingu hafa líka allir nm. heilbr.- og félmn. fallizt, og ég er þeim sem sagt þakklátur fyrir það. Hins vegar höfðu þeir gert efnislegar aths. við þessa breytingu og gert grein fyrir þeim. Þá vil ég taka það fram, að ég mæli með þeirri till., sem hv. 8. þm. Reykv., Eðvarð Sigurðsson, flutti hér áðan, vegna þess að orlofsheimili launþegasamtaka eru ekki höfð með í upptalningunni. Það eru mistök, það er misgáningur, það hafði verið gengið út frá því, að orlofsheimili launþegasamtaka væru þarna með í upptalningunni, og vænti ég, að menn fallist ágreingslaust á þá breytingu.
Hin gagnrýnin, sem fram hefur komið, hefur auðvitað gengið í þá átt að undanþiggja hina og þessa í þjóðfélaginu sköttum og skyldum, sem er bara afleiðing af góðu hjartalagi þeirra, sem ekki þurfa að bera ábyrgð á því, að endar nái saman í skattalögum. Þeir hafa viljað undanþiggja gamalt fólk, ekkjur, munaðarleysingja og ungt fólk og svo giftar konur alveg sérstaklega, og kannske hafa þeir tínt fleira til. Ég álít, að það sé gott, að menn sýni sitt góða hjartalag. Og þeim er sannarlega þörf á því að komast í stjórnarandstöðu, — það virðist vera nokkuð mannbætandi, — af því að annars hefðum við bara ekki vitað um, hversu góðir menn þetta eru og hversu hjörtu þeirra slá fyrir öllum þeim, sem bágt eiga. En nú er það komið í ljós og skjalfest og þess vegna er mjög gott, að þessir menn skyldu komast í stjórnarandstöðu.
Alþfl. segir, að hann sé fylgjandi ýmsu í þessu frv. M.a. er hann mjög ánægður með niðurfellingu nefskattanna og honum nægir ekki, að heimilað sé að fella niður skatta eða sýna tilhliðrun á sköttun varðandi aldrað fólk, eldra en 67 ára gamalt, það eigi að vera skylda, það skuli fella niður útsvör hjá því fólki. Ég verð að segja það, að áratalan ein finnst mér ekki eigi að ráða þarna. Ég er yfir 67 ára aldrinum og er með hæstu tekjur lífs míns. Ég hef ekki talið nokkra sanngirni í því að fara að undanþiggja mín ellilaun, þegar svo stendur á fyrir mér, bara af því að ég sé orðinn 67 ára gamall. Ég hefði haft ógeð á því að standa að slíkri lagasetningu í mínum sporum og ég tel, að það sé í raun og veru alveg sjálfsagt, að það af öldruðu fólki, sem hefur háar tekjur, borgi skatta og skyldur eins og aðrir, en heimildirnar séu hins vegar notaðar gagnvart því fólki, sem ekki hefur annað en lífeyristekjur sínar frá tryggingunum að sjálfsögðu, og til þess eru fullar heimildir í frv. Mér finnst þess vegna, að góðsemin og hjartagæzkan gangi jafnvel of langt hjá þessu fólki. Það er eingöngu afleiðingin af því, að þeir þurfa ekki að bera ábyrgð á að ná tekjuendum skattafrv. saman. Við, sem erum í stjórnaraðstöðu núna, þurfum hins vegar að sjá því nokkurn veginn borgið, að sveitarfélögin fái með þessari nýju lagasetningu svipaðar tekjur og þau hefðu fengið á árinu 1972, ef gamla kerfið hefði gilt áfram, og það er mín sannfæring, að með þeim heimildum, sem í frv. eru, þá sé þessu takmarki nokkurn veginn náð. Hins vegar hefði þetta alls ekki náðst, ef maður hefði orðið við öllum þeim óskum og beiðnum um undanþágur hinum og þessum til handa, sem stjórnarandstaðan hefur verið að gera sig góða með að flytja.
Fleira er það held ég ekki, sem ástæða er til að segja. Ég vil þó að lokum segja það, að hér var fullyrt í dag, að engir menn, sem vit hefðu á skattamálum, hefðu komið nálægt samningu þessara frv. Þetta er algjörlega ómaklegt í garð þeirra manna, sem stóðu að samningu frv. Þar unnu að margir af okkar færustu mönnum í skattamálum. Það er alveg ástæðulaust að kasta að þeim steini og brigzla þeim um þekkingarleysi. Það er gert af þm., sem ekki hafa þekkingu í skattamálum á við þessa menn marga hverja. (Gripið fram í.) Ég nefndi engan. Nefndi lamb og leit á mig, sagði maðurinn. (Gripið fram í: Það hefur enginn komið nálægt þessu, sem hefur haft heildaryfirsýn.) Ég leit ekki einu sinni á þig. Ég fagna því svo, að það tekst að ljúka umr. um kvöldmatarleytið, en hef fallizt á það, að atkvgr. sé frestað til morguns.