06.03.1972
Neðri deild: 46. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1228 í B-deild Alþingistíðinda. (719)
20. mál, innflutningur búfjár
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð í sambandi við þetta frv., sem hv. landbn. mælir með að verði samþ. með örlitlum breytingum. — Það er ekki ástæða til að rifja það upp, hvers vegna það er ekki fyrr en nú, sem líklegt þykir, að í það verði ráðizt að flytja inn holdanautasæði þrátt fyrir það að lögin um það hafi verið samþ. 28. apríl 1962. Með þeim lögum var landbrh. heimilað að veita innflutningsleyfi á holdanautasæði að fengnum tillögum yfirdýralæknis og forstöðumanns tilraunastöðvarinnar að Keldum og einnig, ef þeir vildu mæla með að flytja inn holdanaut. En ástæðan til þess, eins og hv. frsm. n. sagði, að ekki var leyft að flytja inn, var sú að yfirdýralæknir þorði ekki að mæla með þessum innflutningi, og ég held, að það sé nú ekki sanngjarnt að álasa yfirdýralækni, þótt hann væri hikandi í þessu máli, eins og ástandið var, vegna þess að það var ekki unnt að gera aðrar eins öryggisráðstafanir þá og unnt er að framkvæma nú. Yfirdýralæknir og margir mundu vel, hvílíkt afhroð landbúnaðurinn varð að gjalda fyrir það að hafa áður flutt inn útlenda gripi með lítilli fyrirhyggju. Og það má ekki endurtaka sig, að þetta verði að tjóni, að byrja á þessu að nýju. En eins og ég sagði eru nú fyrir hendi ýmsar öryggisráðstafanir, sem unnt er að gera og beita, sem áður var ekki um að ræða.
Ég ræddi oft við yfirdýralækni um þessi mál. og það var ekki fyrr en haustið 1969, sem okkur fannst ómaksins vert að fara að endurskoða gildandi lög með það fyrir augum að láta af því verða að flytja inn sæði. Og það var þá, sem ég skipaði þriggja manna nefnd, yfirdýralækni, Guðmund Jónsson skólastjóra á Hvanneyri og Ólaf Stefánsson ráðunaut til þess að gera till. um breytingar á gildandi lögum með það fyrir augum, að í það yrði ráðizt að flytja inn holdanautasæði, sérstaklega með tilliti til þess, að nú var mögulegt að djúpfrysta sæði hérlendis, eftir að djúpfrystistöðin kom að Hvanneyri.
Það er með tilliti til þessa, sem þetta frv. var samið, og menn eru nú bjartsýnir um, að takast megi að flytja inn djúpfryst sæði, án þess að það verði þjóðinni til tjóns. Og enginn vafi er á því, að ef þetta tekst, og það eru næstum því 100% líkur fyrir því, að það geti tekizt, ef allrar aðgæzlu er gætt, þá getur það orðið landbúnaðinum og þjóðinni allri til gagns. Það er enginn vafi á því, að afurðir af þessum holdanautum eru miklu meiri og framleiðslan þar af leiðandi ódýrari í því formi en að búa eingöngu við íslenzka kynið. Þess vegna ber að þessu að keppa og hafa fulla gát á, og ég held, að það sé enginn vafi á því, að ef yfirdýralæknir mælir með því, að þetta verði gert, þá verði allar öryggisráðstafanir, sem hugsanlegar og tiltækar eru, notaðar.
Eins og segir í grg. frv., eru líkurnar fyrir því, að hægt sé að sneiða hjá því að sjúkdómar berist með djúpfrystu sæði, nú ólíkt meiri en áður var, þegar nota þurfti sæðið ferskt eða fáum dögum eftir að það var tekið. Það er fleira hér í grg., sem rennir stoðum undir það, að þetta ætti nú að geta orðið nokkurn veginn öruggt, enda þótt yfirdýralæknir hafi sagt nýlega við mig, að jafnvel þó að við notum öll tiltæk ráð, þá sé í rauninni aldrei hægt að segja, að það sé hægt að skapa 100% öryggi. En bændur vilja hætta á þetta, þar sem nú er miklu minni áhætta en áður var. Ég fyrir mitt leyti tel, að með þessu frv. og þeim öryggisráðstöfunum, sem ætlað er að beita, sé áhættan orðin svo lítil, að það sé nú sjálfsagt að gera þessa tilraun, og hafandi það í huga, að ef einhver öryggishlekkur bregzt, getur það valdið óbætanlegu tjóni, og þá held ég, að það hljóti að leiða til þess, að alts öryggis verði gætt. Við skulum minnast þess, að það eru margar þjóðir, sem flytja dýrasæði á milli landa djúpfryst og hafa djúpfrystistöðvar heima, og þetta hefur verið gert árum saman, án þess að það hafi valdið nokkru tjóni. Við verðum að nota þær aðferðir, sem eru þekktar og hafa dugað hjá öðrum þjóðum, og þá ætti það að geta orðið til árangurs og góðs fyrir íslenzkan landbúnað og ekki aðeins fyrir íslenzkan landbúnað, heldur fyrir þjóðina alla.