20.03.1972
Efri deild: 60. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1261 í B-deild Alþingistíðinda. (808)

161. mál, lántaka vegna kaupa á þyrlu og viðgerðar á varðskipinu Þór

Utanrrh. (Einar Ágústsson):

Herra forseti. Hv. 6. þm. Reykv., fyrrv. dómsmrh., kveðst harma það, í hvaða ástandi húsnæðismál Landhelgisgæzlunnar eru. Ég get alveg tekið undir þetta. Landhelgisgæzlan hefur á mörgum undanförnum árum og áratugum búið við léleg húsakynni og ónóg, og sérstaklega geri ég ráð fyrir, að húsakynnin verði of lítil nú, þegar ráðgert er að efla Landhelgisgæzluna, svo að ég get alveg tekið undir þetta, og ég ætla alveg að leiða hjá mér allar hugleiðingar um það, hverjum megi nú helzt kenna um það, að húsnæðismál Landhelgisgæzlunnar eru í því ástandi, sem þau hafa verið og raun ber vitni.

Nú er sagt, að lengi hafi staðið til að flytja Landhelgisgæzluna í nýju lögreglustöðvarbygginguna, og það má vel vera, að svo sé. Það er ekki búið, og það var ekki búíð í tíð fyrrv. stjórnar. Hitt er svo annað mál hvers vegna. Því get ég ekki svarað, það verða aðrir að svara fyrir það. En það er rétt, að eftir að lögreglustöðvarbyggingin var fyrst teiknuð, var afráðið, eftir því sem mér skilst, að byggja víðbótarhæð ofan á lögreglustöðina og ætla Landhelgisgæzlunni hluta af því húsnæði. Nú liggja fyrir ákveðnar yfirlýsingar núv. dómsmrh. um það, að á málefnum — þar með talin húsnæðismál — Landhelgisgæzlunnar verði ráðin bót, og ég sé ekki ástæðu til annars en að ætla, að svo verði og það í tæka tíð, þannig að Landhelgisgæzlan geti nú, þegar mest á ríður, verið undir það búin að gegna sínu hlutverki.

Það er verið að efla gæzluna, eins og hv. þm. upplýsti hér. Þessi þyrlukaup voru ráðgerð í tíð fyrrv. hæstv. ríkisstj., og áfram verður haldið með þau. Endurnýjun á skipunum er í gangi og ýmiss konar ráðstafanir til eflingar landhelgisgæzlu, sem ég hygg, að allir flokkar geti verið sammála um.

Hitt er svo rétt, að utanrrn. hefur verið í ákaflega miklum húsnæðisvandræðum, og það var afráðið, að utanrrn. flytji á þá hæð í lögreglustöðinni, a.m.k. til bráðabirgða, sem nú er sagt, að Landhelgisgæzlunni hafi verið ætluð. Það ber vissulega að harma það, ef Landhelgisgæzlan þarf að líða fyrir þetta, en ég vona, að svo þurfi ekki að verða með tilvísun til þess, sem ég áðan sagði.

En af því að menn hafa gert húsnæðismál utanrrn. að umræðuefni, bæði hér og í hv. Nd. um daginn, þar sem ég var ekki viðstaddur, þá held ég, að það sé kannske ekki nema eðlilegt, að ég noti þetta tækifæri til þess að gera grein fyrir því, við hvaða húsnæðisaðstæður utanrrn. býr. Ég ætla að leyfa mér að gera það í örstuttu máli.

Eins og allir vita, er utanrrn. nú til húsa og hefur, að ég hygg, alla tíð veríð í gamla stjórnarráðshúsinu við Lækjargötu. Samanlagt húsrými rn. er 210 fermetrar, þar með taldir gangar, snyrtiklefar og yfirleitt allt það húsnæði, sem rn. hefur yfir að ráða. Það skiptist þannig, að ráðherraherbergið er 28 fermetrar, skrifstofustúlka hefur 10 fermetra, afgreiðsla, þar sem eru tvær stúlkur, er 19 fermetrar, skjalavarzlan er 26 fermetrar, einn fulltrúi í 10 fermetrum, ráðuneytisstjórinn í 14 fermetrum, skrifstofustjórinn í 18 fermetrum. Fulltrúarnir hafa þetta rúma 8 fermetra hver, Hans Andersen þjóðréttarfræðingur 14 fermetra, „protokollcheffinn“ 12 fermetra, vélritunin 15 fermetra, og forsetaritarinn, sem á að vinna hálfan daginn, hefur ekki stól og hefur orðið að vera allan daginn á forsetaskrifstofunni, og þangað hafa honum verið færð þau verkefni, sem hann hefur unnið fyrir rn. Þetta er sá húsakostur, sem utanrrn. hefur nú, og ég held, að það geti varla nokkur maður séð ofsjónum yfir því, þó að þetta rn., sem hefur náttúrlega fengið vaxandi verkefni og viðfangsefni, fái meira húsnæði. Og það húsnæði, sem nú er ráðgert, að utanrrn. flytji í, er ekki mjög stórt, en það er þó geysileg viðbót og framför frá því, sem þarna er, því að það hefur ekki verið hægt, eins og ég segi, að bæta við einni einustu manneskju. Þvert á móti hefur orðið að úthýsa forsetaritaranum, sem á þó að vera hálfs dags starfsmaður, vegna þess að blaðafulltrúi ríkisstj. þurfti að fá vélritunarstúlku.

Ég vildi nota þetta tækifæri til þess að koma þessum upplýsingum á framfæri, fyrst hér er æ ofan í æ vikið að húsnæðismálum utanrrn., og að mér finnst á þann veg, að hér sé mjög djörf áætlun í frammi um húsakost fyrir þetta rn. Ég endurtek það, sem ég sagði áðan, að ég vona, að Landhelgisgæzlan geti fengið húsnæði við sitt hæfi, þó að efsta hæðin á lögreglustöðinni sé tekin til annarra nota um stundarsakir.