06.03.1972
Efri deild: 50. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1268 í B-deild Alþingistíðinda. (829)

33. mál, Stýrimannaskólinn í Reykjavík

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins blanda mér í þessar umr. að því leyti til, að ég vil undirstrika einmitt þetta atriði í 15. gr., sem síðasti ræðumaður kom hér inn á áðan, með tilliti til þess, hvaða gildi þetta hefur. Það er dálítið erfitt, eins og fram kom hjá ræðumanni, að tilgreina sérstakar ástæður fyrir því, að svona námskeið eigi endilega að vera á ákveðnum stöðum, því að þeir eru svo margir í landinu, sem koma til greina. Ég hef þá skoðun, að það sé rétt stefna, sem hefur verið tekin upp á vegum Stýrimannaskólans með samþykki menntmrn., að reyna að dreifa þessum námskeiðum út um landið til verstöðvanna sjálfra. Ég stend hér upp einmitt til þess að segja frá því hér, að nú stendur yfir í Ólafsvík slíkt námskeið, þar sem þátttakendur eru 20, og þetta eru einmitt sjómannsefni úr byggðarlaginu og nágrannabyggðarlögum, sem að öðrum kosti hefðu átt erfitt með að sækja skóla hingað til Reykjavíkur. Ég tel, að það sé sérstök ástæða til þess að undirstrika þetta atriði, því að það hefur geysilega þýðingu fyrir hina ýmsu útgerðarstaði á landinu, og hér er rétt stefnt. Ég tel, að það ætti ekki að þurfa að taka upp fleiri sérstök heiti á stöðum, eins og er hér í brtt., heldur að heimildarákvæðið, sem er í frv., verði notað með hagsmuni hinna smærri útgerðarstaða fyrir augum, því að einmitt svona námskeið, svona kennsla er áhrifaríkust, þar sem starfsemin er í fullum gangi. Ég lýsi sérstakri ánægju minni yfir því, að einmitt þetta námskeið, sem nú stendur yfir í Ólafsvík og lýkur í lok þessa mánaðar, skyldi hafa komizt á, því að það leysir mjög mikið úr brýnum vandræðum, sem hafa verið á þessu svæði í sambandi við skipstjórnarmenn með réttindum og til að skapa möguleika fyrir nýja skipstjórnarmenn.