29.11.1971
Efri deild: 19. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 64 í B-deild Alþingistíðinda. (83)

8. mál, tekjur sveitarfélaga

Frsm. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Frv. þetta, sem hér er til 2. umr., er stjfrv. og komið frá Nd. Þar var það ágreiningslaust samþykkt.

Efni frv. er á þá leið, að tekjur sveitarfélaga, sem miðast við fasteignamat, svo sem vatnsskattur, holræsagjöld og fleiri slík ásamt lóðaleigu, skuli óbreytt vera í krónutölu frá því, sem nú er, þrátt fyrir gildistöku nýs fasteignamats, og skuli þetta ástand samkv. efni frv. gilda þar til nýjar gjaldskrár og reglugerðir varðandi tekjur, sem grundvallast á fasteignamati, hafa verið staðfestar.

Eins og kunnugt er, tekur nýtt fasteignamat gildi frá 1. jan. n.k. Hækkun frá núgildandi fasteignamati mun nema fimmtán- og allt að tuttuguföldu. Þegar gjöld þau, sem ég minntist á, og reyndar fleiri, sem miðuð eru við fasteignamat, eru reiknuð út, mundu slík gjöld hækka að sjálfsögðu í réttu hlutfalli við hækkun mats að óbreyttum málum. Það er mjög ólíklegt, að allar sveitarstjórnir séu svo fljótar til eða gæti þess að samræma þessi gjöld hinu nýja fasteignamati í tæka tíð. Mætti því búast við óhæfilegum hækkunum á þessum gjöldum, ef þetta frv. yrði ekki lögtekið. Þess má geta, að í ráði er, að lög um fasteignaskatt til sveitarfélaga taki gildi 1. jan. 1972, þannig að það má búast við, að frv. þess efnis verði lagt nú innan tíðar fyrir Alþingi.

Um þetta litla frv. þykir mér ekki ástæða til þess að ræða frekar, en heilbr: og félmn. þessarar hv. d. hefur athugað það og mælir með samþykkt þess.